starfsmenn lyfjaþróunarfyrirtækisins Alvotech í Vatnsmýri hafa leitað til stéttarfélagsins Visku vegna þess að þeir hafa unnið yfirvinnu án þess að fá hana greidda. Þetta kemur fram í samtölum Heimildarinnar við fyrrverandi starfsmenn Alvotech, bæði innlenda og erlenda. Georg Brynjarsson, framkvæmdastjóri Visku, segir að slík erindi hafi komið inn á borð til stéttarfélagsins. Georg vill ekki greina frá fjölda þeirra kvartana sem komið inn á borð til Visku út af Alvotech.
Allir átta fyrrverandi starfsmennirnir sem Heimildin talaði við -enginn vill koma fram undir nafni - hafa bæði jákvæða og einnig neikvæða hluti að segja um fyrirtækið og reynslu sína af því. Enginn þeirra er alfarið neikvæður í umsögnum sínum um fyrirtækið enda störfuðu sumir þeirra hjá Alvotech í fleiri ár. „Heilt yfir er ég ánægð með starfstíma minn hjá Alvotech. Þetta var dýrmæt reynsla en vandamálið er meðal annars að Alvotech vildi ekki greiða mér fyrir yfirvinnuna sem …

































Athugasemdir