Erlendur annáll: Kosningar og ófriður lituðu árið

Pia Hansson, for­stöðu­maður Alþjóða­mála­stofn­unar Háskóla Íslands, segir að árið 2024 hafi verið óvenju við­burð­ar­ríkt ár. Árið ein­kennd­ist af kosn­ingum þar sem sitj­andi vald­höfum var refsað og blóð­ugum stríðs­á­tökum sem stig­mögn­uð­ust á árinu. Pia seg­ist miðað við það sem undan hefur gengið í heims­mál­unum fari hún því miður ekki full bjart­sýni inn í nýja árið.

Erlendur annáll: Kosningar og ófriður lituðu árið
Lýð­skrum­ari tekur við Ein stærsta frétt árs­ins var án efa sú að Donald J. Trump tryggði sér öruggan sigur í for­seta­kosn­ing­unum í nóv­em­ber. Sitjandi vald­höfum víða um heim var refsað af kjós­endum á þessu stærsta kosn­inga­ári sem farið hefur fram í áraraðir. Mynd: /AFP

Nú þegar árið er liðið er ríkt til­efni til að líta yfir far­inn veg og velta fyrir sér hvaða mál voru efst á baugi í heims­frétt­unum. Árið 2024 var ein­stak­lega við­burða­ríkt ár á alþjóða­vísu. Helm­ingur jarð­ar­búa gekk til kosn­inga og létu kjós­endur víða óánægju sína með stöðu mála bitna á sitj­andi vald­höfum. Ófriður og stríðs­á­tök settu einnig mark sitt á heims­málin. Stríðið fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs og í Úkraínu heldur stig­magn­ast og ótt­ast margir að átökin muni breið­ast út til fleiri ríkja og svæða úti í heimi í náinni fram­tíð.

Þrátt fyrir að hafa fallið í skugg­ann af öðrum kosn­inga­málum voru umhverfis- og lofts­lags­mál enn stórt umfjöll­un­ar­efni. Nátt­úru­ham­farir og breyt­ingar í veðri settu líf margra úr skorðum á árinu, ýmist með beinum eða óbeinum hætti.  

Pia Hansson, for­stöðu­maður Alþjóða­mála­stofn­unar

Pia Hansson, for­stöðu­maður Alþjóða­mála­stofn­unar við Háskóla Íslands, segir í sam­tali við Heim­ild­ina að hún sé ekki skilin eftir með mikla bjart­sýni í huga eftir að hafa fylgst með fréttum og gangi mála víða um heim. Hún hefur áhyggjur af fram­tíð mik­il­vægra valda­stofn­ana í alþjóða­kerf­inu og hvernig heims­byggð­inni muni takast til við að mæta áskor­un­unum sem bíða á næstu miss­erum.  

Kosningaárið mikla

Á árinu var blásið til þing- og for­seta­kosn­inga í yfir sjötta tug ríkja heims. Þar á meðal voru stór og fjöl­menn ríki á borð við Indland, Bangla­desh, Indo­nesíu, Suður-Afríku, Banda­ríkin, Japan, Englandi. Þá fóru einnig fram kosn­ingar til Evr­ópu­þings í júní, og nið­ur­stöður þeirra höfðu þau áhrif að blásið var til þing­kosn­inga í Frakk­landi.

Eitt af því sem þótti ein­kenna margar af þessum kosn­ingum var hversu óhag­felldar þær voru fyrir sitj­andi vald­hafa úr hefð­bundnum stjórn­mála­flokkum í hverju ríki fyrir sig. Bentu sumir á almenna óánægju meðal kjós­enda víða um heim með örar verð­hækk­anir og stöðu efna­hags­mála í kjöl­far heims­far­ald­urs.

Þetta eru á meðal þeirra skýr­inga sem leitað hefur verið til að varpa ljósi á nið­ur­stöður þing- og for­seta­kosn­ing­anna í Banda­ríkj­unum sem komu mörgum á óvart en Donald J. Trump var kjör­inn 47. for­seti Banda­ríkj­anna og Repúblikana­flokk­ur­inn náði meiri­hluta í báðum deildum Banda­ríkja­þings.

Stór­sigur TrumpsDonald J. Trump vann sigur í for­seta­kosn­ing­unum í Banda­ríkj­unum í Nóvember. Repúblikana­flokk­ur­inn náði sömu­leiðis meiri­hluta í báðum þing­deildum.

Kosn­ing­arnar og nið­ur­stöður þeirra voru að mati Piu Hansson eitt stærsta frétta­mál árs­ins. Hún telur að margir sem hafi fylgst með kosn­ing­unum hér á landi og ann­ars staðar hafi bundið vonir við að þær færu á annan veg. Heims­byggðin standi nú frammi fyrir mik­illi óvissu um það hvernig hlut­irnir munu þró­ast á næstu árum.

Popúlismi, lýðræði og molnandi alþjóðakerfi

Pia segir kosn­inga­árið sem nú er liðið hjá hafi að mörgu leyti borið vitni um þá ógn sem steðjar að lýð­ræð­inu víða um heim. Hún segir að á tímum mik­illar upp­lýs­ing­ar­óreiðu og skaut­unar sé það mikið áhyggju­efni að sjá hversu greiða leið popúl­ísk stjórn­mála­öfl eiga að valda­stóli.

„Það er það sem maður hefur mestar áhyggjur af er að við hættum að sjá fyrir okkur stjórn­mála­menn og leið­toga kom­ast til valda sem, þrátt fyrir við kannski deilum ekki sömu póli­tísku skoð­unum með, við getum að minnsta kosti treyst að hafi sam­bæri­leg lýð­ræð­is­leg gildi,“ segir Pia.

Hún bætir við að það sé áhyggju­efni að sjá hversu auð­veld­lega stjórn­mála­menn af þessu tagi geti brot­ist til valda í ríkjum víða um heim sýni fram á að eitt­hvað sé að í alþjóða­kerf­inu.

„Það er eitt­hvað að í þessu kerfi sem við bjuggum til eftir seinna stríð sem virð­ist vera núna að molna niður. Hvernig ætlum við að reyna bæta kerfið sem þó er til, svo við getum haldið utan um þessi átök og þessa erf­iðu stöðu sem er í heim­inum ansi víða,“ segir Pia og bætir við að hún skilji kjós­endur vel sem vilji breyt­ingar, ekki síst vegna þess ójöfn­uðar sem hefur farið vax­andi víða á und­an­förnum árum. Valið milli ólíkra kosta sé gjarnan ekki skýrt og upp­lýs­inga­óreiðan mikil. 

Ár ófriðar sem ekki sér fyrir endanum á

Annað mál sem Pia telur að hafi staðið upp úr á árinu voru þau linnu­lausu stríðs­á­tök sem hafa staðið yfir fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs og í Úkraínu. Pia seg­ist hafa áhyggjur af því að þau tól og tæki sem alþjóða­sam­fé­lagið hefur til þess að bregð­ast við þessum átökum muni ekki duga nema ráð­ist verði í aðgerðir til að byggja upp traust og efla þær valda­stofn­anir sem fyrir eru í alþjóða­kerf­inu.

„Hvernig við eigum að gera það, það er síðan annað. Á meðan við erum alltaf að kjósa yfir okkur popúlista, þá lítur þetta ekki vel út, skulum við segja.“ 

Árásir Ísra­els­hers á Gaza, sem hófust í októ­ber 2023, stig­mögn­uð­ust eftir því sem leið á árið og fjöldi óbreyttra Palest­ínu­manna sem hafa ýmist lát­ist eða slasast alvar­lega í árás­unum óx jafn og þétt. Átökin breidd­ust út til ríkja á borð við Líbanon og Íran. Ísrael réð­ist inn í suð­ur­hluta Líbanon í sept­em­ber. Þá vörp­uðu Ísrael og Íran sprengjum hvort á annað á árinu og mikil óvissa ríkir um hvort átökin milli þess­ara ríkja muni stig­magn­ast enn frekar.

Hörm­ungar í GazaStríðið fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs stig­magn­að­ist árið 2024 og meðan alþjóða­sam­fé­lagið horfði upp á hörm­ungar dynja á óbreyttum borg­urum í Gaza.

Pia segir að augu heims­ins bein­ist um þessar mundir einnig að Sýrlandi. Snemma í des­em­ber flúði Bashar al-Assad, for­seti Sýrlands, til Rúss­lands og upp­reisn­ar­menn þar í landi tóku við stjórn­ar­taumunum. Mikil óvissa ríkir um hvað muni ger­ast í fram­hald­inu og hvers konar stjórn­ar­far muni taka þar við.

Mikil óvissa ríkir einnig um stríð Rúss­lands og Úkraínu sem hefur staðið yfir í tæp þrjú ár. Pia segir að hún hafi skynjað að eftir því sem stríð víða um heim hafi undið áfram og stig­magn­ast, hafi umræðan hér á landi og í Norð­ur­löndum tekið tölu­verðum breyt­ingum.

Augu heims­ins bein­ast að Sýrlandi Asaad Shaybani, sitj­andi utan­rík­is­s­ráð­herra Sýrlands fund­aði nýverið með Andrii Sybiha, utan­rík­is­ráð­herra Úkraínu. Stjórn­völd í Úkraínu hafa kallað eftir því við sýr­lensk stjórn­völd að skeri á tengslin við Rússland sem studdi fyrrum for­seta Sýrlands Bashar al-Assad.

„Mér finnst hafa staðið upp úr að finna hvað umræðan er farin að snú­ast meira um mögu­leik­ann á því að staðan gæti versnað enn meir. Að við séum þá farin að sjá fram á tíma með jafn­vel útbreidd­ari stríðs­á­tökum og við finnum þetta nátt­úru­lega á nor­rænu þjóð­unum sem við berum okkur mikið saman við. Hversu miklar áhyggjur þau hafa og hvernig öll hugsun um við­búnað hefur auk­ist.“

Stærsta áskorunin í aftursætið 

Margir tóku eftir því að á kosn­inga­ár­inu mikla fór lítið fyrir umræðu um umhverfis- og lofts­lags­mál. Samkvæmt mæl­ingum Alþjóða­veð­ur­fræði­stofn­un­ar­innar (WMO) var 2024 heitasta ár frá því mæl­ingar hófust. Þrátt fyrir upp­skeru­bresti og nátt­úru­ham­farir sem skullu á víða um heim á árinu fór lítið fyrir umræðu um þessi mál í aðdrag­anda kosn­inga hér á landi og ann­ars staðar.

Pia tekur undir það að lofts­lags­málin hafi farið í aft­ur­sætið á kosn­inga­ár­inu. Hún segir að það sé að vissu leyti skilj­an­legt í ljósi þeirra krísa sem alþjóða­sam­fé­lagið hefur tek­ist á við á und­an­förnum árum.  

Lofts­lags­málin í aft­ur­sætið Lofts­lags­ráð­stefna Sam­ein­uðu þjóð­anna (COP29) var hald­inn í olíu­ríkiun Aserbaídjan í nóv­em­ber 2024. Þótti mörgum ráð­stefnan ekki hafa skilað miklum árangri.

„Á hinn bóg­inn er þetta stærsta áskor­unin sem við stöndum frammi fyrir og það er nátt­úru­lega svo margt sem teng­ist áhrifum lofts­lags­breyt­inga. Þetta eru nú þegar orðið örygg­is­mál og verða áskor­anir í okkar örygg­is­málum til fram­tíðar.“

Pia segir að fólki sé gjarnan tamt að ein­beita sér að krísu dags­ins og hvernig eigi að bregð­ast við þeim og láta stór og óáþreif­an­leg mál eins og lofts­lags­málin sitja eftir á hak­anum. Það sé engu að síður mik­il­vægt að setja slík mál á dag­skrá og halda áfram að vekja athygli á mála­flokknum.

Málin við ættum að fylgjast með á nýju ári  

Spurð hvaða mál hún telji mik­il­vægt fyrir lands­menn að fylgj­ast með á nýju ári segir Pia að það muni skipta máli að fylgj­ast með fréttum úr Evrópu og þeirri þróun sem er að eiga sér stað á þeim slóðum.

„Hvernig Evr­ópu­sam­band­inu muni takast að halda vel á spöð­unum í þeim ólgu­sjó sem það er statt í og hvort það tak­ist að mynda meiri sam­stöðu um þau mál sem þarf takast á við,“ segir Pia og bætir að það sé ekki síst mik­il­vægt að fylgj­ast vel með þessu í ljósi þess að útlit er fyrir að lands­menn muni fara tala meira um Evr­ópu­sam­bandið á næstu miss­erum. 

Í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórnar Sam­fylk­ingar, Við­reisnar og Flokks fólks­ins kemur fram að rík­is­stjórnin hygg­ist efna til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um fram­hald á við­ræðum um aðild Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu. Stefnt er að því að halda slíka atkvæða­greiðslu eigi síðar en árið 2027.

Beinum sjónum að Evr­ópu­sam­band­inuPia Hansson segir mik­il­vægt að fylgj­ast vel með hvernig Evr­ópu­sam­band­inu tekst að takast á við erf­iðar áskor­anir sem sam­bandið stendur frammi fyrir.

Ásamt þessu leggur Pia áherslu á að lands­menn fylgist náið með ríkjum handan Evrópu og Banda­ríkj­anna sem hafa vaxið hratt á und­an­förnum árum. 

„Valda­jafn­vægið í heim­inum er að breyt­ast mjög mikið. Hvernig upp­gangur Kína mun halda áfram og hvernig sam­skipti Rúss­lands og Kína munu þró­ast verður líka eitt­hvað til að fylgj­ast með. Svo eru önnur lönd að rísa líka, lönd sem við ættum að fylgj­ast með. Fyrir okkur skiptir máli að fylgj­ast með þró­un­inni á Indlandi og Afríka gleym­ist líka svo oft,“ segir Pia. 

Þó svo að það kunni að hljóma eins og óljós ábend­ing að fylgj­ast með því sem er að ger­ast í hinum stóra heimi telur Pia að sé mik­il­vægt að ítreka mik­il­vægi þess, sér­stak­lega í ljósi þess að lands­mönnum hættir til að ein­blína á það sem er að ger­ast hér á landi og í nágranna­lönd­unum. 

Hún segir að það hafa verið jákvætt að sjá hvernig umræðan um örryggis- og varn­ar­mál hafi dýpkað í liðnu ári. 

„Það var lengi í raun­inni ekki hægt að tala um öryggis- og varn­ar­mál á Íslandi. Það var ekki vin­sælt og maður var gjarnan skot­inn í kaf ef maður minnt­ist á það. Það hefur liðkað til í umræð­unni og hún er orðin dýpri og fjöl­breytt­ari en hún var og kannski farin að ná til fleiri.“

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Uppgjör ársins 2024

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár