Ár áfallanna

Eldgos, stjórn­mál, slys og mann­dráp ein­kenna árið sem er að líða. Það hefur verið þungt fyrir þjóð­arsál­ina. Aldrei hafa jafn­mörg morð verið framin, né jafn­mörg börn verið myrt á stuttum tíma. Ársins sem er að líða verður minnst sem árs óró­leik­ans og róst­ur­samra tíma.

Ár áfallanna

Þegar farið er yfir árið 2024 hafa ýmis vafasöm met verið slegin. Aldrei í nútíma­sögu Íslands hafa jafn­margir verið myrtir á einu ári. Það hafa aldrei verið jafn­miklar og algengar nátt­úru­ham­farir nærri byggð. Tvennar kosn­ingar voru haldnar á árinu, báðar kosn­ing­arnar voru óvæntar. Fjöldi banaslysa var í hæstu hæðum. Það sem ein­kennir árið fyrst og fremst eru áföll.

Janúar: Maður hverfur

Frétta­árið hófst með kosn­ingum sem áttu eftir að setja sitt mark á alla stjórn­mála­um­ræð­una fram á vor. Guðni Th. Jóhann­es­son til­kynnti í nýársávarpi sínu að hann hygð­ist ekki sækj­ast eftir end­ur­kjöri í þriðja skiptið sem for­seti Íslands. Þetta kom tölu­verðu róti á umræð­una sem hélt áfram fram á vor.

Tíunda jan­úar var til­kynnt um mann sem hafði fallið ofan í sprungu í Grinda­vík. Maðurinn reynd­ist heita Lúðvík Pét­urs­son og var að störfum í bænum þegar hann féll ásamt vinnu­vél ofan í sprung­una. 

RannsóknLúðvík Pét­urs­son féll ofan í sprungu snemma á árinu. Fjöl­skylda hans hefur barist fyrir frek­ari rann­sókn á hvarf­inu.

Lúðvík var rétt fimm­tugur, faðir fjög­urra barna, afi tveggja og stjúp­faðir tveggja barna. Hann skildi jafn­framt eftir sig unn­ustu. Eftir sat fjöl­skylda Lúðvíks í sárum og áleitnar spurn­ingar biðu stjórn­valda. Fjöl­mörgum spurn­ingum er enn ósvarað um ákvarð­ana­töku og atburða­rás í aðdrag­anda þess að Lúðvík féll ofan í sprungu sem lá í gegnum húsa­garð í Grinda­vík. Veð­ur­stofan hafði sér­stak­lega varað við sprungu­hreyf­ingum en áhættu­mat lá ekki enn fyrir. Dóms­mála­ráðu­neytið sam­þykkti nú í des­em­ber erindi fjöl­skyldu Lúðvíks um að fram fari rann­sókn óháðra aðila á atvik­inu.

Hraun­breiðanFrá einu af þeim fjöl­mörgu gosum sem urðu á árinu.

Innan við viku síðar gaus nærri Haga­felli og innan varn­ar­garða, alveg upp við byggð­ina í Grinda­vík. Hraun­rennslið gjör­eyði­lagði þrjú hús í bænum. Eins sló út raf­magni og heita­vatns­lagnir rofn­uðu. Gos­virkni varði ekki lengi og var gos­inu lokið tveimur dögum síðar.

Þessum langa og kalda jan­úar var þó ekki lokið. Í blá­lok mán­að­ar­ins bár­ust fregnir af fyrsta morð­máli árs­ins. Þá fannst sex ára drengur lát­inn á heim­ili sínu að Nýbýla­vegi í Kópavogi. Fimmtug móðir hans var í kjöl­farið ákærð fyrir mann­dráp og ját­aði á sig verkn­að­inn. Þá reyndi hún einnig að bana eldra barni sínu. Móðirin var dæmd í átján ára fang­elsi í Hér­aðs­dómi Reykja­ness síðar á árinu. Dómurinn er á meðal þeirra þyngri sem hafa verið kveðnir upp hér á landi. Konan var þjökuð af alvar­legu þung­lyndi en ekki haldin geð­veiki, að mati dóm­kvaddra mats­manna.

Til þess að kór­óna hörm­ung­arnar í upp­hafi árs­ins lét­ust sex í umferð­ar­slysum á fjórum fyrstu vikum árs­ins.

Og árið var bara rétt að byrja.

Íbúi í Grinda­víkBryndís Gunn­laugs­dóttir upp­skar lófatak eftir kraft­mikla lýs­ingu á íbúa­fundi á sinni upp­lifun af ástand­inu.

Febrúar: Gos og eignakaup

Aftur gaus í Sund­hnúks­gíga­röð­inni í byrjun febr­úar og ljóst var að Grind­vík­ingar gætu ekki snúið heim í bráð. Rík­is­stjórnin kynnti á svip­uðum tíma frum­varp til þess að kaupa upp eignir Grind­vík­inga svo þeir gætu komið undir sig fót­unum ann­ars staðar. Verk­efnið var aug­ljós­lega risa­vaxið og átti eftir að kosta um 60 millj­arða. Um tólf hund­ruð auð hús og íbúðir stóðu eftir í bænum sem var umluk­inn Reykja­nes­eldum. Það var ljóst að þessu myndu að auki fylgja umtals­verðar fjár­hags­legar áskor­anir á fast­eigna­mark­aði ofan í erfitt vaxta­stig sem þá var enn í rúmum níu pró­sentum.

Í febr­úar greindi Heim­ildin frá gjörn­ingum stjórn­end­a hjúkr­un­ar­heim­il­is­ins Sól­túns sem báðu að­stand­end­ur íbúa að hjálpa til við þrif með eig­in tusk­um og hreinsi­efn­um ár­ið 2022. Það var eft­ir að eig­end­urn­ir seldu fast­eign hjúkr­un­ar­fé­lags­ins fyr­ir 3,8 millj­arða, leigðu hús­næð­ið af kaup­and­an­um, greiddu sér tvo millj­arða út úr fé­lag­inu og fóru svo í nið­ur­skurð á þjón­ust­unni. Að­stand­end­ur og starfs­fólk höfðu mis­jafnar sögur að segja af reynslu sinni af starf­sem­i Sóltúns og þjón­ustu þar.

MótmæliAftur og aftur var mót­mælt hér­lendis vegna stríðs­ins á Gazasvæðinu og því sem mót­mæl­endur töldu skort á aðgerðum frá íslenskum stjórn­völdum.

Mars: Menningarstríð

Það var kannski til­viljun, mögu­lega kald­hæðni örlag­anna, að Hera hafði betur gegn hinum palest­ínska Bashar Murad í Söngvakeppni sjón­varps­ins. Sigurinn reynd­ist ekki aðeins taktískur að ein­hverju leyti, og kall­aði á spurn­ingar um fyr­ir­komu­lag keppn­innar, heldur var sig­ur­inn að auki veru­lega umdeildur. Sitt sýnd­ist hverjum um það hvort það væri yfir­höfuð boð­legt að taka þátt í keppn­inni í ljósi stríðs­rekst­urs ísra­el­skra stjórn­valda á Gaza-svæð­inu. Mótmæli urðu að reglu­legum við­burði hér á landi allan vet­ur­inn og und­ir­skrifta­listar gengu á net­inu til þess að hvetja RÚV til þess að snið­ganga keppn­ina af póli­tískum ástæðum.

Söngvakeppni sjón­varps­insBashar Murad sigr­aði...næstum því.

Sjón­varps­stjóri taldi það ekki sitt hlut­verk að taka slíka ákvörðun og svo virt­ist sem mennta­mála­ráð­herra væri ekki til­bú­inn að skera útvarps­stjór­ann úr snör­unni hvað það varð­aði. Því var ákvörð­unin sett í hend­urnar á sig­ur­veg­ara keppn­innar. Úr varð að Hera til­kynnti að hún færi til Sví­þjóðar, þar sem keppnin var haldin, fyrir hönd lands og þjóðar. Þetta dýpkaði all­veru­lega menn­ing­ar­stríðið sem ríkti hér á landi tengt Eurovision og stríð­inu á Gaza-svæð­inu.

SameinuðEin af þó nokkrum palest­ínskum fjöl­skyldum sem sam­ein­uð­ust hér á landi.

Á sama tíma hugs­uðu fjöl­margir um fram­boð til emb­ættis for­seta Íslands og þó nokkur fram­boð höfðu þegar litið dags­ins ljós. Fjórða mars var Katrín Jak­obs­dóttir, þá for­sæt­is­ráð­herra, spurð á Alþingi hvort hún hygð­ist bjóða sig fram til setu á Bessa­stöðum vegna þrá­láts orðróms um að hún væri að íhuga stöðu sína. Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, þing­maður Flokks fólks­ins, reið þá á vaðið og spurði for­sæt­is­ráð­herr­ann að því sem öll þjóðin hafði verið að hugsa. Var hún á leið í fram­boð? Katrín svar­aði með lunknum hætti og vék sér í raun undan svörum þegar hún sagði: „Ég vil bara hug­hreysta hátt­virtan þing­mann og segja að ég er bara enn í starfi sem for­sæt­is­ráð­herra og verð hérna áfram um sinn.“

FramboðBaldur Þór­halls­son var á meðal þeirra for­seta­fram­bjóð­enda sem taldir voru sig­ur­strang­legir en fylgi hans end­aði mun lægra en fyrst var talið lík­legt.

Þetta hleypti hug­rekki í fjölda fólks sem fór að íhuga eigin stöðu, jafn­vel þó svo að eng­inn sér­stakur áhugi væri á starfs­kröftum þeirra. Í sumum til­vikum hafði almenn­ingur varla heyrt um við­kom­andi. Hæst fór hópur þeirra sem íhug­uðu fram­boð upp í sjö­tíu manns sam­kvæmt vef Ísland.is þar sem hægt var að sjá hverjir höfðu skráð sig til þess að safna und­ir­skriftum. Sú stjórn­sýslu­lega martröð rætt­ist þó ekki. Eftir sátu tólf fram­bjóð­endur, og þótti mörgum nóg um, enda höfðu aldrei svo margir verið í fram­boði til emb­ættis for­seta Íslands.

Svo gaus aftur, í þriðja skiptið á jafn­mörgum mán­uðum.

KveðurKatrín Jak­obs­dóttir sagði skilið við for­sæt­is­ráð­herra­stól­inn og fór í fram­boð til for­seta.

Apríl: Upphaf falls ríkisstjórnarinnar

Þegar litið er til baka má segja að straum­hvörf hafi orðið í íslenskum stjórn­málum þegar Katrín Jak­obs­dóttir til­kynnti loks í byrjun apríl að hún hygð­ist sækj­ast eftir emb­ætti for­seta Íslands. Málið reyndi veru­lega á rík­is­stjórn Fram­sóknar, VG og Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Fátt virt­ist sam­eina þessa sund­ur­leitu rík­is­stjórn annað en leið­toga­hæfi­leikar Katrínar. Hún til­kynnti á sam­fé­lags­miðlum að hún hygð­ist segja af sér sem for­sæt­is­ráð­herra sem og for­mennsku í VG.

Fram­bjóð­endurKatrín Jak­obs­dóttir faðmar hér mót­fram­bjóð­anda sinn og nú nýjan þing­mann Við­reisnar, Jón Gnarr.

Þá þegar höfðu ell­efu aðrir fram­bjóð­endur stigið fram, sum þekkt and­lit eins og Jón Gnarr, Baldur Þór­halls­son og Ástþór Magn­ús­son, sem lætur sig aldrei vanta í for­seta­kosn­ingar. Önnur and­lit voru minna þekkt, eins og Halla Hrund Loga­dóttir og Arnar Þór Jónsson, lög­maður og fyrr­ver­andi hér­aðs­dóm­ari.

Stjórn­málin voru í nokkru upp­námi á eftir þrátt fyrir til­raunir Katrínar til þess að yfir­gefa hið póli­tíska svið með friði. Uppi voru hug­myndir um að kjósa þá þegar um vorið sam­hliða for­seta­kosn­ing­unum, nokkuð sem leið­togum rík­is­stjórn­ar­innar hugn­að­ist ekki vegna for­seta­kosn­ing­anna. Úr varð að Bjarni Bene­dikts­son færði sig úr utan­rík­is­ráðu­neyt­inu, þar sem hann hafði dvalið í um ár eftir að hafa sagt af sér sem fjár­mála­ráð­herra.

Brottför Katrínar er talin hafa markað upp­hafið að enda­lokum rík­is­stjórn­ar­sam­bands­ins.

Á meðan stjórn­mála­fólkið þref­aði og von­góðir for­seta­fram­bjóð­endur mættu í fjöl­miðla­við­töl til þess að kynna erindi sín áttu sér stað tvö morð. Annars vegar í sum­ar­húsi á Suð­ur­landi þar sem litáískur maður lést eftir bar­smíðar, og svo hins vegar þegar eldri kona, sem hafði þolað hrylli­legt heim­il­is­of­beldi, var myrt af manni sínum.

Í þessum mán­uði hófst ekki nýtt gos. En síð­asta gosi var ekki enn lokið.

HöllurHalla Hrund þótti lengi vel sig­ur­strang­leg í for­seta­kapp­hlaup­inu. Nafna hennar Halla Tóm­as­dóttir fór þó með sigur af hólmi að lokum.

Maí: Slæðubyltingin

Halla Hrund Loga­dóttir kom eins og storm­sveipur inn í for­seta­kosn­ing­arnar og virt­ist í fyrstu sem að gangna­menn á Austur-Síðu­af­rétti, sem skor­uðu fyrst á orku­mála­stjór­ann að bjóða sig fram, hefðu eitt­hvað fyrir sér hvað vin­sældir hennar varð­aði. Hún mæld­ist í fyrstu ítrekað hæst í fylgiskönn­unum fyrir kosn­ingar en svo fór fylgið að dala. Það lækk­aði sífellt meira eftir því sem hún birt­ist oftar á skjáum lands­manna í við­tölum.

Á sama tíma stóð mik­ill styr um fram­boð Katrínar sem náði for­skoti í fylg­is­mæl­ingum og virt­ist nokkuð örugg í sinni stöðu. Sann­að­ist þá hið forn­kveðna; eng­inn á neitt í póli­tík. Annar fram­bjóð­andi fór að verða sífellt meira áber­andi í umræð­unni. Það var Halla Tóm­as­dóttir, sem reyndi nú fyrir sér í annað skipti í for­seta­fram­boði eftir frækna bar­áttu við Guðna Th. Jóhann­es­son árið 2016. Náði hún slíku risi í þeim kosn­ingum að það var haft í flimt­ingum að ef kosn­ing­unum hefði seinkað um einn dag hefði hún lík­lega haft sig­ur­inn af Guðna. 

Halla var harð­á­kveðin í að end­ur­taka ekki tapið og var áber­andi í fjöl­miðlum og heill­aði land­ann í kapp­ræðum í sjón­varp­inu. Hún fór á flug í fylg­is­mæl­ingum og tók að lokum fram úr nöfnu sinni, Höllu Hrund. Þó að nokkuð hafi munað á Katrínu og Höllu Tóm­as­dóttur má segja að kosn­ing­arnar hafi verið nokkuð tví­sýnar. Úrslitin voru óvænt, Halla var kjörin for­seti og eftir sat fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra með sárt ennið. Kosn­ing­arnar reynd­ust taktískar að mati stjórn­mála­fræð­inga, þó að um það sé deilt. Það skipti litlu, konur brut­ust undan ára­löngum for­dómum gagn­vart slæðu­konum og efndu til menn­ing­ar­bylt­ingar vopn­aðar lit­ríku háls­taui og skjanna­hvítu brosi, í takt við stíl nýkjör­ins for­seta.

Halla og GuðrúnNýr for­seti og nýr biskup. Í fyrsta sinn sinna konur báðum hlut­verkum sam­tímis, önnur með slæðu og hin með kraga.

Undir lok mán­aðar sauð upp úr á milli lög­reglu og stuðn­ings­manna Palest­ínu­manna sem mót­mæltu fyrir utan rík­is­stjórn­ar­fund sem fram fór í hús­næði umhverf­is­ráðu­neyt­is­ins. Lög­reglan not­aði piparúða en um tíu mót­mæl­endur voru illa haldnir eftir átökin. Auk þess slas­að­ist lög­reglu­maður þegar ráð­herra­bíl var ekið á hann. Lögregla hélt því fram að mót­mæl­endur hefðu ekki fylgt fyr­ir­mælum lög­reglu.

Svo gaus aftur. Fyrra gosi lauk í maí eftir að það hafði verið virkt í um tvo mán­uði.

Júní: Hvalveiðar og trjákurl

Eins og lóan snýr aftur á vorin, var Kristján Loftsson mættur í fjöl­miðla með skut­ul­inn á lofti í júní þegar Bjarkey Olsen, þá mat­væla­ráð­herra, heim­il­aði hval­veiðar á ný með stysta mögu­lega fyr­ir­vara, og þá til eins árs. Hann sagð­ist ekki geta hafið veiðar með svo skömmum fyr­ir­vara en veiði­leyfið var í það minnsta í höfn í bili og átti staða Krist­jáns eftir að vænkast enn frekar síðar árinu.

Þá ráð­herraBjarkey Olsen end­aði á að gefa út hval­veiði­leyfi en samt var Kristján Loftsson ekki sáttur enda var leyfið veitt afar seint.

Lofts­lags­málin tóku nokk­urt pláss í umræð­unni þegar Heim­ildin greindi frá fyr­ir­tæki sem fáir höfðu heyrt um, Running Tide. Félagið var stað­sett á Akranesi og Grund­ar­tanga. Markmið þess var hóf­samt, eins og ávallt þegar kemur að nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækjum, en það stefndi að því að bjarga öllu mann­kyn­inu með því að sporna við lofts­lags­breyt­ingum með bylt­ing­ar­kenndri tækni.

Running TideTrják­ur­lið sem end­aði í sjónum.

Fyr­ir­tækið stefndi að því að rækta risa­þör­unga á sér­stakar baujur. Átti þör­ung­ur­inn að draga í sig koldí­oxíð úr and­rúms­loft­inu á hafi úti og sökkva að lokum og þar með end­aði þessi flókni vandi heims­ins á botni Atl­ants­hafs­ins, þökk sé hug­viti frum­kvöðl­anna.

Stjórn­mála­menn misstu að því er virð­ist alla stjórn á skrif­finnsku­bákn­inu þegar fyr­ir­tækið kynnti hug­myndir sínar. Eftir sat stjórn­mála­fólk með þara í hár­inu og stjörnu­fiska í aug­unum og keppt­ist við að veita fyr­ir­tæk­inu alls kyns und­an­þágur frá eft­ir­liti og til­rauna­magni. Umhverf­is­ráð­herra, Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, gekk svo langt að mæta í púlt Alþingis og upp­lýsti alþjóð um að á Akranesi væri hrein bylt­ing að eiga sér stað:

„Það sem menn kannski átta sig ekki á er að við Íslend­ingar erum núna komin með lausnir þegar kemur að kolefn­is­föngun. Bara hér á stað sem við öll þekkjum, Akranesi, þar er til dæmis stærsta var­an­lega kolefn­is­föng­un­ar­verk­efni í heimi, Running Tide.“

Við nán­ari skoðun kom í ljós að fyr­ir­tæk­inu tókst ekki ætl­un­ar­verk sitt, sem var að rækta þör­unga á baujum og sökkva í því magni sem að var stefnt, heldur urð­aði það þús­undir tonna af trják­urli á hafs­botni og skráði það sem kolefn­is­bind­ingu og seldi hana erlendum stór­fyr­ir­tækjum. Fyr­ir­tækið lagði svo upp laupana í júní. Það gerði gosið einnig sem hafði haf­ist í lok maí.

Júlí: Engar fréttir eru góðar fréttir

Fregnir fóru að ber­ast um kólnun í hag­kerf­inu í júlí og ýmis­legt benti til þess að ákvarð­anir Seðla­banka Íslands væru að hafa til­ætluð áhrif. Jafnvel Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn var bjart­sýnn og taldi að verð­bólgu­mark­mið rík­is­stjórn­ar­innar næð­ust í byrjun árs 2026.

Þjóðin var á far­alds­fæti. Gúrku­tíðin tók yfir og engar fréttir reynd­ust ágætar fréttir.

Bryn­dísar minnstFrá minn­ing­ar­at­höfn um Bryndísi Klöru sem var stungin til bana á Menn­ing­arnótt. For­eldrar hennar og vinir hafa kallað eftir breyt­ingum á íslensku sam­fé­lagi.

Ágúst: Þjóð í áfalli

Nóró­veiru­sýk­ing gerði göngu­fólki lífið leitt í byrjun ágúst en hátt í hund­rað manns fengu ill­vígan nið­ur­gang uppi á hálend­inu aðra helg­ina í ágúst. Engum varð alvar­lega meint af. Svo bætt­ist við annað mann­dráp. Fregnir bár­ust af lög­reglu­að­gerðum á Snorra­braut í Reykja­vík þar sem bif­reið var stöðvuð. Maður var hand­tek­inn og í ljós kom að hann hafði flúið morð­vett­vang í Nes­kaup­stað þar sem eldri hjón höfðu verið myrt. Maðurinn reynd­ist alvar­lega veikur á geði eftir að hafa verið í lang­tíma­neyslu. Það mál er óklárað fyrir dóm­stólum.

Málið var reið­ar­slag fyrir íbúa í Nes­kaup­stað sem máttu þola mik­inn missi. Tveggja ára gam­alt barn hafði lát­ist á sjúkra­hús­inu þar í byrjun árs­ins. Þá lést Norð­firð­ingur á fer­tugs­aldri af slys­förum við gæsa­veiðar í ágúst. Árið var því þungt og erfitt fyrir bæj­ar­búa, sér­stak­lega í ágúst­mán­uði þegar slysið og mann­drápið bætt­ust við.

Aðeins tveimur dögum síðar, á menn­ing­arnótt, var sautján ára stúlka stungin af sextán ára gömlum pilti í miðbæ Reykja­víkur. Árásin var ill­víg og særð­ist önnur stúlka í átök­unum. Stúlkan var lífs­hættu­lega slösuð og flutt á sjúkra­hús til aðhlynn­ingar. Hún lést nokkru síðar af sárum sínum og eftir sat þjóð í áfalli. Hnífa­of­beldi fór vax­andi á meðal ung­menna og mann­drápin voru orðin svo mörg á einu ári að þjóðin spurði sig ein­fald­lega: Hvað er að ger­ast? Enginn virt­ist hafa svör á reiðum höndum.

Vatna­jök­uls­þjóð­garðurFrá slys­stað á Breiða­merk­ur­jökli í ágúst.

Því næst varð slys á Breiða­merk­ur­jökli. Einn lést og annar slas­að­ist þegar klaka­brot féll á göngu­fólk sem var þar í íshella­ferð. Mikil leit fór af stað en í fyrstu var ótt­ast að tveir hefðu farið undir klaka­bunk­ann. Það reynd­ust þó mis­tök leið­sögu­manna sem virt­ust ekki hafa talið hóp­inn rétt. Þá greindi Heim­ildin frá því að sá látni hefði verið á ferð með barns­haf­andi eig­in­konu sinni en bæði voru banda­rísk. Hörð umræða fór þá af stað um ferða­mennsku á jöklum lands­ins og spurn­ing­ar­merki var sett við ferðir á jökl­inum svo seint um sumar. Í kjöl­far slyss­ins sendi Félag fjalla­leið­sögu­manna frá sér yfir­lýs­ingu þar sem kallað var eftir strang­ari umgjörð og laga­setn­ingu um jökla­ferðir. Rík­is­stjórnin tók málið til sín og sendi frá sér til­lögur í kjöl­farið. Þá hefur eft­ir­lit verið styrkt umtals­vert með jökla­ferðum af hálfu Vatna­jök­uls­þjóð­garðs.

Að end­ingu var vafasömu afmæli hárra stýri­vaxta fagnað. Þeir höfðu staðið óbreyttir í 9,25 pró­sentum sam­fleytt í heilt ár.

Svo gaus aftur.

September: Brottvísun og barnsmorð

Eitt mál hafði skotið upp koll­inum ítrekað í gegnum árið án þess að ná almenni­lega eyrum almenn­ings. Ungum palest­ínskum dreng, með hrörn­un­ar­sjúk­dóm­inn Duchenne, og for­eldrum hans hafði verið hafnað um hæli hér á landi og stóð til að flytja þau til Spánar á grund­velli Dyfl­innar-reglu­gerð­ar­innar. Fjöl­margir höfðu mót­mælt þessum brott­flutn­ingi vegna veik­inda drengs­ins, Yazan Hassan, og kom málið eins og eldi­brandur inn í harð­vít­uga umræðu um stríðs­á­tökin fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs. Snemma á mánu­dags­morgni í síð­ustu viku sept­em­ber bár­ust fregnir af því að það ætti að flytja fjöl­skyld­una á brott, og að dreng­ur­inn hefði verið sóttur á hjúkr­un­ar­heim­ili á vegum Land­spít­ala. Svo skyndi­lega, eins og hendi væri veifað, bár­ust fregnir af því að hætt hefði verið við brott­flutn­ing drengs­ins. 

BjargaðYazan er lang­veikt barn sem var bjargað frá brott­flutn­ingi á síð­ustu stundu. Það reynd­ist íslenskum stjórn­málum dýr­keypt.

Síðar kom í ljós að rík­is­stjórnin var í upp­námi vegna máls­ins. Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, þá for­maður VG, hafði sam­band bæði við for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins og rík­is­lög­reglu­stjóra. Úr varð að Guðrún Haf­steins­dóttir dóms­mála­ráð­herra stöðv­aði brott­flutn­ing­inn. Málið þótti sýna að rík­is­stjórn­ar­sam­starfið væri á loka­metr­unum.

Enn eitt áfallið reið svo yfir um miðjan sept­em­ber þegar greint var frá því að faðir hefði verið hand­tek­inn, grun­aður um að hafa banað tíu ára gam­alli dóttur sinni. Þá þegar var ljóst að Íslend­ingar höfðu slegið vafa­samt met; aldrei í nútíma­sögu Íslend­inga höfðu svo margir verið myrtir á einu ári. Aldrei hafa svo mörg börn, þrjú, verið fórn­ar­lömb slíkra glæpa á svo skömmum tíma.

Október: Kosningar og enn eitt morðið

Árið 2024 ætl­aði að vera ár póli­tískrar upp­lausnar, alvar­legra glæpa og fjár­hags­legrar dýr­tíðar. Bjarni Bene­dikts­son mætti ábúð­ar­fullur í beina útsend­ingu á RÚV og til­kynnti að hann hefði tekið þá ákvörðun að slíta rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu. Ljóst var að flokk­arnir, þá aðal­lega Sjálf­stæð­is­flokkur og VG, voru ósam­mála í mörgum málum og sam­starfið gekk hrika­lega. Bjarni taldi best að boða til kosn­inga. Í ljós kom að for­sæt­is­ráð­herr­ann hafði ekki borið málið undir sam­starfs­flokka sína í rík­is­stjórn. VG brást illa við. For­mað­ur­inn Svandís Svav­ars­dóttir til­kynnti að flokk­ur­inn myndi ekki sitja í starfs­stjórn fram að kosn­ingum. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn benti á að VG hefði tækni­lega séð þegar slitið sam­starf­inu, þegar sam­þykkt var á lands­fundi flokks­ins að for­mann­inum væri gert að slíta sam­starf­inu og boða til kosn­inga næsta vor.

SlitBjarni Bene­dikts­son á leið á fund for­seta eftir stjórn­ar­slitin.

Bjarni varð þó fyrri til og þjóðin bjó sig undir óhefð­bundnar jóla­kosn­ingar. Flokk­arnir settu sig í stell­ingar og ljóst var að það var á bratt­ann að sækja fyrir rík­is­stjórn­ar­flokk­ana. Sam­fylk­ingin var þá að mæl­ast í hæstu hæðum, oft­ast í kringum 25 pró­sent.

Sjöunda morðið var svo framið í lok mán­aðar þegar maður var hand­tek­inn, grun­aður um að hafa orðið móður sinni að bana í Reykja­vík. Átta höfðu verið myrt á árinu.

Nóvember: Kosningabarátta og mögulega saknæmt grín

Kosn­inga­bar­áttan náði nokkru flugi um miðjan nóv­em­ber. Á meðal þess sem hæst bar í umræð­unni voru smekk­laus skrif Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar, fram­bjóð­anda Sam­fylk­ing­ar­innar og fyrr­ver­andi rit­stjóra hjá Heim­ild­inni. Skrifin voru um 20 ára gömul. 

Það sem varSvandís og Bjarni reynd­ust ekki hrifin af því að starfa hvort með öðru og sleit Bjarni sam­starf­inu fljót­lega eftir að Svandís tók við stjórn­ar­taumum VG.

Athygli var vakin á þeim í Spurs­málum Morg­un­blaðs­ins. Úr var að Þórður Snær baðst afsök­unar og ákvað að gefa eftir þriðja sætið í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður hjá Sam­fylk­ing­unni, þar sem hann var í fram­boði. Fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar dal­aði nokkuð og fór úr 25 pró­sentum í könn­unum niður í um 20 til 22 pró­sent. Þá var Dagur B. Egg­erts­son, annar fram­bjóð­andi Sam­fylk­ing­ar­innar, sak­aður um lög­brot þegar hann gerði til­raun til fyndni á Facebook og hvatti kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins til þess að strika sig út af lista Sam­fylk­ing­ar­innar. Þeir sem þekktu kosn­inga­lögin hlógu lágt, en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn ótt­að­ist að kjós­endur þeirra myndu taka borg­ar­stjór­ann fyrr­ver­andi á orð­inu og þannig ógilda kjör­seð­il­inn.

Málið var að end­ingu kært til hér­aðs­sak­sókn­ara. Áður hafði for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar sent kjós­endum furðu hrein­skilin skila­boð þar sem hún lof­aði því að Dagur yrði ekki ráð­herra í nýrri rík­is­stjórn og bætti við að hann væri ekk­ert annað en auka­leik­ari í stóra plan­inu.

Svo kom furðu­leg­asta mál árs­ins fram að öllum lík­indum. Karl­maður sem kynnti sig sem full­trúa sviss­nesks fjár­fest­inga­sjóðs blekkti son Jóns Gunn­ars­sonar, fyrr­ver­andi ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og sagð­ist vilja ræða við hann við­skipti. Á fundi þeirra, sem mað­ur­inn tók upp í leyni, tal­aði son­ur­inn, Gunnar Bergmann, fjálg­lega um föður sinn og hélt því fram að Jón hygð­ist stuðla að því að hval­veiðar yrðu leyfðar á ný. Þá sat Jón sem sér­legur full­trúi for­sæt­is­ráð­herra í mat­væla­ráðu­neyt­inu, eftir að VG hafði hafnað því að sitja í starfs­stjórn út kjör­tíma­bilið. Jón og Bjarni Bene­dikts­son höfn­uðu þessu alfarið og sögðu þetta ekki á döf­inni. Svo kom í ljós, skömmu eftir kosn­ingar í des­em­ber, að spá son­ar­ins um kom­andi hval­veiði­leyfi reynd­ist sönn. Bjarni, sem sat á þessum tíma bæði sem for­sæt­is­ráð­herra og mat­væla­ráð­herra, leyfði hval­veiðar á ný til fimm ára. Það var gert þrátt fyrir að heild­ar­end­ur­skoðun fari nú fram vegna hval­veiða hér á landi, og hefur sú nefnd ekki lokið störfum enn.

Svo gaus aftur.

Fagn­að­ar­lætiSam­fylk­ing­unni gekk vel í Alþing­is­kosn­ing­unum og end­aði hún með mest fylgi. Hér sést for­maður flokks­ins, Kristrún Frosta­dóttir, ásamt tveimur þing­mönnum, Jóhanni Páli og Dag­björtu Hákon­ar­dóttur.

Desember: Valkyrjurnar

Kosn­ingar fóru fram og gengu að mestu hnökra­laust fyrir sig. Þegar talið var upp úr köss­unum kom í ljós að Sam­fylk­ingin var stærstur flokka á Íslandi, með rúm­lega 20 pró­senta fylgi. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn var í sjald­gæfri stöðu, með rúm­lega nítján pró­senta fylgi og hafði aldrei áður fengið svo lítið fylgi.

Sam­starfiðÞor­gerður, Kristrún og Inga segja stjórn­ar­sátt­mála í smíðum.

Flokkur fólks­ins náði óvæntum sigri og end­aði stærstur í Suð­ur­kjör­dæmi. Eins náði Viðreisn tölu­verðu fylgi. Formenn Flokks fólks­ins, Sam­fylk­ing­ar­innar og Við­reisnar ákváðu að hefja við­ræður. Allir for­menn­irnir eru konur og voru nefndar val­kyrj­urnar í fjöl­miðlum. Samn­inga­við­ræður hófust fljót­lega eftir kosn­ingar en rík­is­stjórn þess­ara þriggja flokka var svo til­kynnt skömmu fyrir jól.

Svo lauk síð­asta gos­inu. Í bili.

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Uppgjör ársins 2024

Erlendur annáll: Kosningar og ófriður lituðu árið
ErlentUppgjör ársins 2024

Erlendur ann­áll: Kosn­ingar og ófriður lit­uðu árið

Pia Hansson, for­stöðu­maður Alþjóða­mála­stofn­unar Háskóla Íslands, segir að árið 2024 hafi verið óvenju við­burð­ar­ríkt ár. Árið ein­kennd­ist af kosn­ingum þar sem sitj­andi vald­höfum var refsað og blóð­ugum stríðs­á­tökum sem stig­mögn­uð­ust á árinu. Pia seg­ist miðað við það sem undan hefur gengið í heims­mál­unum fari hún því miður ekki full bjart­sýni inn í nýja árið.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár