Mynd af Katrínu og forsetanum verður fjarlægð úr niðurtalningu kvöldfrétta RÚV

Mynd­skeið af Katrínu Jak­obs­dóttur og Guðna Th. Jóhann­essyni hefur verið sýnt í nið­ur­taln­ingu kvöld­frétta RÚV síð­ustu daga. Frétta­stjóri segir það sjálf­sagt að fjar­lægja mynd­skeiðið, enda við­kvæmt í aðdrag­anda for­seta­kosn­inga.

Mynd af Katrínu og forsetanum verður fjarlægð úr niðurtalningu kvöldfrétta RÚV
Katrín og Guðni fund­uðu þegar hún baðst lausnar fyrr í mán­uð­inum. Mynd: Skjáskot

Í nið­ur­taln­ingu kvöld­frétta á RÚV eru iðu­lega sýnd ýmis stutt mynd­skeið. Síðustu daga hefur eitt þess­ara mynd­skeiða sýnt Katrínu Jak­obs­dóttur for­seta­fram­bjóð­anda þar sem hún situr með Guðna Th. Jóhann­essyni, for­seta Íslands, á Bessa­stöðum. 

Fund­ur­inn átti sér stað þann 7. apríl síð­ast­lið­inn. Var Katrín, sem var þá enn for­sæt­is­ráð­herra, komin á fund for­set­ans til að biðj­ast lausnar til að geta sjálf boðið sig fram til for­seta. Á fund­inum var lausn­ar­beiðnin sam­þykkt en Guðni bað Katrínu að sitja áfram þar til ný rík­is­stjórn hefði verið mynduð. 

Á sam­fé­lags­miðlum hafa nokkrar reiðiraddir heyrst vegna sýn­ingu þessa mynd­skeiðs í vin­sælum frétta­tíma Rík­is­út­varps­ins, enda keppir Katrín nú við aðra um að verða næsti íbúi á Bessa­stöðum.

Viðkvæmt í aðdraganda forsetakosninga

Heiðar Örn Sig­ur­finns­son, frétta­stjóri Rík­is­út­varps­ins, segir að eftir frétt­irnar í gær hafi mynd­skeiðið sem um ræðir verið tekið úr nið­ur­taln­ing­unni. Hann kann­ast ekki við að kvart­anir hafi borist vegna þessa en seg­ist hafa fengið ábend­ingu …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TT
    Týr Thorarinsson skrifaði
    Svo er þetta með skoðanakannaninir sem eru skoðanamyndandi. 4-5 efstu ræddir í þaula í fjölmiðlum og aðrir, bara aðrir og ekki einu sinni nafngreindir. Ekki lagi af fjölmiðlum sem vilja láta taka sig alvarlega.
    1
  • Ólöf Þorvaldsdóttir skrifaði
    Og Heimildin, gleypir við "fréttinni" birtir stóra mynd á forsíðu af núverandi forseta og forsætisráðherranum á skrifstofu forseta. Vel heppnað.
    0
    • Bryndís Dagbjartsdóttir skrifaði
      Já ansi fúlt að Heimildin geti ekki sýnt hlutleysi, þarna fær Katrín enn eina fría auglýsingu
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár