Halla Tómasdóttir sótti fylgi sitt til þeirra ungu og þeirra ríku

Samkvæmt síð­ustu könnun Maskínu fyrir kosn­ingar má sjá hvernig vænt­an­legir kjós­endur Höllu Tóm­as­dóttur dreifast á mis­mun­andi hópa sam­fé­lags­ins. Halla sótti hvað mest fylgi til ungs fólks, hæstu tekju­hópanna og kvenna.

Halla Tómasdóttir sótti fylgi sitt til þeirra ungu og þeirra ríku
Sam­fé­lags­miðla­stjarna Áhrifa­vald­ur­inn Arnar Gauti Arn­ars­son eða Lil Curly var meðal fjöl­margra ung­menna sem sótti kosn­inga­vöku Höllu Tóm­as­dóttur í Grósku fyrir viku. Mynd: Golli

Halla Tóm­as­dóttir, verð­andi for­seti Íslands, sótti fylgi sitt mikið til ungs fólks og þeirra sem eru vel settir í sam­fé­lag­inu í nýliðnum kosn­ingum. Þetta má sjá ef rýnt er í nið­ur­stöður síð­ustu fylgiskönn­unar Maskínu. Söfnun svara í hana lauk kvöldið 31. maí, kvöldið fyrir kjör­dag, og var könn­unin því birt eftir að nið­ur­stöður kosn­ing­anna lágu fyrir. 

Í könn­un­inni er deg­inum ljós­ara að Halla Tóm­as­dóttir yrði næsti for­seti lýð­veld­is­ins þann 1. júní, en hún mæld­ist þar með 7% meira fylgi en Katrín Jak­obs­dóttir, sem var mark­tækur munur. En hvaða hópar voru það sem Halla Tóm­as­dóttir sótti hvað mest fylgi til?

Af þeim sem völdu Höllu í könnun Maskínu voru nokkuð fleiri konur en karlar. Hún mæld­ist þó vin­sæl­asti fram­bjóð­and­inn hjá báðum hóp­unum en vin­sæld­irnar voru tals­vert meira afger­andi meðal kvenna.

Af þeim 689 sem sögð­ust vilja kjósa Höllu Tóm­as­dóttur í könnun Maskínu voru …

Kjósa
46
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

Halla Tómasdóttir verður sjöundi forseti lýðveldisins
GreiningForsetakosningar 2024

Halla Tóm­as­dóttir verður sjö­undi for­seti lýð­veld­is­ins

Kjarna­fylgi tveggja efstu fram­bjóð­enda til for­seta var hnífjafnt dag­inn fyrir kosn­ingar. Fjöldi kjós­enda valdi að velja á milli þeirra á kjör­dag og lang­flestir þeirra völdu Höllu Tóm­as­dóttur, sem vann afger­andi sigur. Þrjár konur fengu þrjú af hverjum fjórum atkvæðum, kjós­endur Jóns Gnarr kusu „með hjart­anu“ og fjöldi fram­bjóð­enda fékk mun færri atkvæði en með­mæli með fram­boði sínu.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár