Á vettvangi með kynferðisbrotadeildinni: Leigubílstjórinn handtekinn

„Halló. Þú þarft að koma með okkur,“ segir lög­reglan við mann sem verður færður á lög­reglu­stöð vegna gruns um kyn­ferð­is­brot. Áður hafði leigu­bíl­stjóri verið hand­tek­inn vegna sama máls. Báðir menn­irnir eru komnir í far­bann. Á vett­vangi er ný hlað­varpss­ería þar sem Jóhannes Kr. Krist­jáns­son fylgist með störfum kyn­ferð­is­brota­deildar lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Hér er fyrsti þáttur.

Eft­ir­far­andi er texta­út­gáfa fyrsta þáttar Á vett­vangi, nýrrar hlað­varps­þáttar­aðar í umsjón Jóhann­esar Kr. Krist­jáns­sonar, sem aðgengi­legur er vef Heim­ild­ar­innar. Þáttinn má nálg­ast hér.

Erfiðast? Það er bara svo margt sem getur komið upp sem er erfitt. Lýsingar á langvar­andi og grófum brotum gegn börnum, jafn­vel af hálfu náins ætt­ingja, for­eldra eða systk­ina. Svo nátt­úr­lega bara hrotta­legar lík­ams­árásir og nauðg­anir, heim­il­is­of­beldi. Þetta eru nátt­úr­lega ljótar og vondar lýs­ingar en eins og ég segi, maður getur ekk­ert verið að dvelja við þetta. Við bara höldum áfram – vinnum málin og reynum að vinna þau að mestu gæðum. 

Þetta er Ævar Pálmi Pálmason, yfir­maður kyn­ferð­is­brota­deildar lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Ævar hefur starfað sem lög­reglu­maður í rúm 20 ár – fyrst í almennu deild­inni.

Ævar: Ekkert löngu seinna, 2004 eða 2005, þá var nefni­lega starf­andi á hverri vakt svo­kallað civil eft­ir­lit – óein­kennt eft­ir­lit – og fljót­lega sýndi ég því mik­inn áhuga og fékk að fara í það. Þetta var inn­brota­eft­ir­lit og eft­ir­lit með virkum brota­mönnum og fíkni­efna­sölum.

Þaðan lá leiðin í ávana og fíkni­efna­deild­ina, fíknó, þar sem Ævar starf­aði í 10 ár eða allt þar til hann fékk stöðu­hækkun og var gerður að lög­reglu­full­trúa og síðar fékk hann tit­il­inn aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn.

Ævar: Og svo 2018 þá kem ég hérna í kyn­ferð­is­brotin.

Ég hef starfað við blaða­mennsku í rúm 20 ár og á ferl­inum hef ég fjallað mikið um kyn­ferð­is­brot – fyrst í frétta­skýr­inga­þætt­inum Kompási á Stöð 2 þar sem við meðal ann­ars fjöll­uðum um full­orðna karl­menn sem settu sig í sam­band við tál­beitu Kompáss – sem þeir héldu að væri stúlka á ferm­ing­ar­aldri. Hér ræðir einn þeirra við tál­beit­una. 

Úr Kompási

Tálbeita: En hvað ertu gam­all?

Karl­maður: Ég er fimm­tugur.

Tálbeita: Ok. Og finnst þér allt í lagi að ég sé bara þrettán?

Karl­maður: Ertu bara þrettán? Ég hélt að þú værir orðin fjórtán.

Ágúst Magn­ús­son, dæmdur barn­a­níð­ingur, var einn þeirra sem kom til að hitta stúlk­una – tál­beitu Kompáss.

Tál­beitanKompás afhjúpaði Ágúst þegar hann var á áfanga­heim­il­inu Vernd og hafði mælt sér mót við barn­unga stúlku.

Ágúst bjó á þessum tíma á áfanga­heim­il­inu Vernd þar sem hann afplán­aði fimm ára dóm sem hann fékk vegna kyn­ferð­is­brota gegn sex ungum drengjum á aldr­inum 14 til 18 ára. Á þessum tíma var þetta einn þyngsti dómur í kyn­ferð­is­brota­máli hér­lendis. Eftir afhjúp­un­ina í Kompási var Ágúst fluttur aftur í afplánun á Litla-Hrauni þar sem honum var gert að sitja af sér allan dóm­inn.

Það var góð til­finn­ing fyrir okkur í Kompási að hafa náð Ágústi á þennan hátt því hann var greini­lega að leita sér að næsta dreng eða stúlku til að nauðga. Í sál­fræði­mati sem lagt var fyrir í dóms­mál­inu gegn Ágústi Magn­ús­syni kemur fram að hann sé hald­inn rót­gró­inni barna­girnd á alvar­legu stigi sem hann hafi enga stjórn á.

Úr Kompási

Jóhannes Kr.: Hvað ert þú að gera hér?

Ágúst Magn­ús­son: Nei, góða kvöldið. Það er akkúrat það sem mig grun­aði.

Jóhannes Kr.: Fáðu þér sæti hérna.

Ágúst Magn­ús­son: Nei, það verður ekki af því.

Jóhannes Kr.: Þú ert dæmdur barn­a­níð­ingur. Ég ætla að láta þig fá umslag hérna. Gjörðu svo vel, taktu við þessu umslagi. Þú skalt taka við þessu umslagi vegna þess að það koma fram þarna upp­lýs­ingar sem þú þarft á að halda.

Þessir þættir vöktu mikla athygli og við sem störf­uðum í Kompási fundum að þeir skiptu máli – sköp­uðu umræður um hætt­urnar á inter­net­inu og voru not­aðir í fræðslu í grunn­skólum í mörg ár. Kompás afhjúpaði líka Byrg­is­málið og í Kast­ljós­inu á RÚV fjöll­uðum við um 50 ára brota­sögu Karls Vignis Þor­steins­sonar.

Ástæðan fyrir því að ég rifja upp nokkrar af þeim fréttum sem ég hef komið að síð­ustu 20 árin sem fjalla um kyn­ferð­is­brot er sú að þessar fréttir skiptu máli. Þær breyttu ein­hverju til hins betra og fyrir mig sem blaða­mann skiptir það miklu máli. Þegar ég er að und­ir­búa fréttaum­fjöllun í kannski erf­iðum mála­flokki þá hugsa ég; ef að þessi frétt bætir líf eða breytir hlutum til hins betra – þá er til­gang­inum náð.

Ég hef margoft tekið við­töl við starfs­menn kyn­ferð­is­brota­deild­ar­innar í tengslum við fréttir sem ég hef unnið og ég hef lengi haft áhuga á því að fá leyfi til að fylgj­ast með starf­inu á deild­inni. Ég sótti um leyfi og í næstu fjórum þáttum kynn­umst við starfi kyn­ferð­is­brota­deildar lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og starfs­fólk­inu sem þar vinnur.

Ég heiti Jóhannes Kr. Krist­jáns­son og þetta er þátt­ur­inn – Á vett­vangi – sem er unn­inn í sam­starfi við Heim­ild­ina.

YFIRMAÐURINN

Jóhannes Kr.: Ég er kom­inn hérna fyrir utan lög­reglu­stöð­ina og ég ætla bara að fara hérna inn og hringja í Ævar og biðja hann að opna fyrir mér. Maður fer hérna aust­an­megin inn. Ég ætla að hringja í hann.

ÆvarYfir­maður kyn­ferð­is­brota­deildar lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu tók á móti Jóhann­esi og veitti inn­sýn í störf deild­ar­innar.

Ævar: Halló.

Jóhannes Kr.: Bless­aður, þetta er Jóhannes.

Ævar: Bless­aður, ertu kom­inn?

Jóhannes Kr.: Ég er kom­inn aust­an­megin.

Ævar: Kem og næ í þig.

Jóhannes Kr.: Bless­aður.

Ævar: Vel­kom­inn.

Jóhannes Kr.: Takk fyrir það.

Ævar: Gakktu í bæinn.

Jóhannes Kr.: Það er ansi langt síðan við fórum að tala um þetta fyrst. Það var þegar ég var að mynda fyrir Storm þegar þú varst yfir­maður yfir smitrakn­ingateym­inu.

Ævar: Já, fjögur ár síðan – tæp­lega.

Jóhannes Kr.: Ég er nú búinn að vera lengi í blaða­mennsku og fjallað mikið um kyn­ferð­is­brot og alltaf verið áhuga­samur um það hvernig kyn­ferð­is­brota­deildin fún­kerar og svo er tæki­færið komið og ég ætla að fá að vera með ykkur í ein­hverja daga.

Ævar: Já, bara um að gera. Við viljum endi­lega að fólk sjái og viti hvernig við erum að vinna og hvað fer hér fram.

Jóhannes Kr.: Hvernig leist fólk­inu þínu á þetta?

Ævar: Bara vel. Þau tóku mjög vel í þetta og til í þetta.

Jóhannes Kr.: Ég er spenntur.

Ævar: Er það ekki? Heyrðu komum hérna.

Jóhannes Kr.: Við erum uppi á annarri hæð.

Ævar: Hérna er langur dimmur gangur. Svo er alltaf verið að breyta hús­inu þannig að það er mjög algengt að fólk villist hérna. Ég veit nú ekki um neinn sem hefur týnst en ég kom fyrst inn í þetta hús held ég fyrir 44 árum því pabbi var lög­reglu­maður. Ég byrj­aði að vinna hérna fyrir rúm­lega 20 árum. Það kemur alveg fyrir að maður – bíddu nú við – hefur þessi veggur alltaf verið hérna?

Jóhannes Kr.: Er þetta sem­sagt ykkar starfs­stöð, þessi gangur hérna með her­bergjum til beggja hliða?

Ævar: Já, þessi gangur hérna er sem sagt kyn­ferð­is­brota­deildin en ég verð að taka það fram að rann­sókn kyn­ferð­is­brota fer ekki ein­göngu fram hér því það eru svo margir aðilar sem koma að rann­sókn kyn­ferð­is­brota.

Jóhannes Kr.: En af því að það eru lög­reglu­stöðvar úti á landi líka – eru kyn­ferð­is­brot líka rann­sökuð þar?

Ævar: Já. Meg­in­reglan er sú að rann­sókn máls fari fram í því umdæmi sem það ger­ist. Lög­reglu­stjórar úti á landi eru nátt­úr­lega með rann­sókn­ar­deildir þannig að brot sem ger­ist á Akureyri eða í umdæmi lög­regl­unnar á Norð­ur­landi eystra er rann­sakað þar.

Jóhannes Kr.: Þið eruð nátt­úr­lega með stærsta svæðið. Eruð þið með flest málin til rann­sóknar í þessum flokki brota?

Ævar: Já, það eru svona 68 til 70 pró­sent kyn­ferð­is­brota á land­inu sem lenda hérna og eru rann­sökuð hér.

Jóhannes Kr.: Hvað eru margir starfs­menn að vinna á þess­ari deild?

Ævar: Þau sem eru að koma beint að rann­sóknum þess­ara mála eru 17, 10 konur og 7 karlar.

Jóhannes Kr.: Ég á eftir að vera hérna í ein­hverja daga og kannski vikur. Hvað heldur þú að eigi eftir að koma mér á óvart svona í byrjun?

Ævar: Ég held að það eigi eftir að koma þér á óvart í raun­inni hversu fjöl­breytt málin eru sem eru að koma hérna inn á borð til okkar. Og ég held að það eigi líka eftir að koma þér á óvart hvað það eru margir sem koma að rann­sókn hvers kyn­ferð­is­brots og hversu umfangs­mikil rann­sóknin er.

Jóhannes Kr.: Eru ein­hver stór mál í gangi núna?

Ævar: Það eru nátt­úr­lega alltaf stór mál í gangi hérna og margar opnar rann­sóknir en það er akkúrat núna einn rann­sókn­ar­lög­reglu­maður hjá okkur að taka skýrslu af brota­þola í því sem lítur út fyrir að vera frekar umfangs­mikið mál – nauðg­un­ar­mál.

HLUTLÆGNISSKYLDAN

Drífa: Ég var sem sagt að taka skýrslu hérna af konu sem varð fyrir kyn­ferð­is­broti um helg­ina. Hún tók leigu­bíl og taldi sig vera örugga í leigu­bílnum og var mjög ölvuð. Hún rankar svo bara við sér ein­hvers staðar úti í bæ og telur að hann hafi brotið gegn henni. Það sem er erfitt við málið kannski er að í upp­hafi vissum við ekk­ert um vett­vang, við vitum ekk­ert hvaða bíll þetta er. Hún hafði engar upp­lýs­ingar um ger­and­ann og það voru í raun­inni engar upp­lýs­ingar, þannig að við þurfum að fikra okkur svo­lítið áfram og skoða mynda­vélar eða reyna að kom­ast að því hvernig hún borg­aði og það er svo­lítið erfitt að elta þetta og tekur mik­inn tíma.

Hér er Drífa rann­sókn­ar­lög­reglu­maður á fyrstu stigum rann­sóknar og þarf sam­kvæmt lögum að gæta að hlut­lægn­is­skyldu. Í lögum um með­ferð saka­mála kemur fram að „þeir sem rann­saka saka­mál skulu vinna að því að hið sanna og rétta komi í ljós og gæta jafnt að þeim atriðum sem horfa til sýknu og sektar“. Ég bað Hildi Sunnu Pálma­dóttur aðstoð­ar­sak­sókn­ara og Benedikt Smára Skúlason, sak­sókn­ar­full­trúa á ákæru­sviði lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, að útskýra hvað þetta þýðir á manna­máli.

Sak­sókn­ararHildur Sunna Pálma­dóttir aðstoð­ar­sak­sókn­ari og Benedikt Smári Skúlason, sak­sókn­ar­full­trúi á ákæru­sviði lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, útskýra hvað það þýðir að horfa jafnt til sýknu og sektar.

Hidur Sunna: Allir telj­ast sak­lausir uns sekt er sönnuð. Það þýðir að þú verður ekki ákærður eða sak­felldur fyrir brot nema að það hafi tek­ist að sanna það og til þess að sanna það þurfa að vera sönn­un­ar­gögn.

Benedikt: Ég hef nú alltaf litið líka á það þannig að okkur beri að horfa til atriða sem horfa til sekt og sýknu. Við eigum auð­vitað að horfa á málið heild­stætt en svo erum við nátt­úr­lega samt í því umhverfi að við erum und­ir­orpin ákveðnum meg­in­reglum saka­mála­laga um að vafa beri að skýra sak­born­ingi í hag og þetta auð­vitað skapar þennan þrösk­uld. Það þarf í raun­inni að sanna umfram vafa að hann sé sekur en hlut­lægn­is­reglan teng­ist því að ein­hverju leyti að við horfum bara hlut­laust á málið eðli­lega í byrjun en yfir­leitt þegar það er samt komin kæra þá er það sem betur fer yfir­leitt ekki að ástæðu­lausu …

Hildur Sunna: Já, þegar það er komin ákæra …

Jóhannes Kr.: Gagnrýni sem kerfið fær á sig frá sér­stak­lega brota­þolum, og eig­in­lega bara brota­þolum, er akkúrat að kerfið sé að vinna fyrir sak­born­inga. Skiljið þið þessa gagn­rýni og á hún rétt á sér?

Hildur Sunna: Auðvitað skilur maður það og það eru auð­vitað allir sem kæra mál og það verður ekk­ert úr því ekki sáttir – skilj­an­lega. En það er nákvæm­lega þarna sem við erum ekki … ég er að tala fyrir sjálfa mig – ekki sam­mála því að kerfið sé að vinna með ger­endum eða hygla ger­endum eins og ég las um helg­ina. Það er auð­vitað nákvæm­lega eins og Benedikt var að segja að okkur ber að horfa bæði til sektar og sýknu. Og ef það er ein­hver vafi þá eru það mann­rétt­indi þess sem er kærður eða sak­aður að málið fari ekki lengra. Hans rétt­indi eru mjög mik­il­væg og við viljum, geri ég ráð fyrir, öll hafa þannig kerfi að ef að við sjálf eða menn­irnir okkar, synir, bræður, feður, eru sak­aðir um eitt­hvað, þá viljum við að þeir fái rétt­láta máls­með­ferð. Og það er bara það sem þetta snýst um, það er rétt­læti og að það dugi ekki að það sé komin kæra og þá er þér kastað í stein­inn. Þú átt rétt á þinni vörn og þú átt rosa­lega mik­inn rétt af því að þú ert í þess­ari stöðu að vera sak­aður, sem er auð­vitað mjög alvar­legt en langoft­ast og í 99 pró­sent til­fellum á það rétt á sér.

Jóhannes Kr.: En, Ævar – hvernig takið þið gagn­rýni til dæmis frá brota­þolum á rann­sókn mála?

Ævar: Við tökum henni að sjálf­sögðu alvar­lega ef svo ber undir og við metum hvert til­vik fyrir sig þar sem okkar vinnu­brögð eru gagn­rýnd. Og við erum ekk­ert hafin yfir gagn­rýni. Og ég segi nú bara eins og aðrir hafa sagt – gagn­rýni verður að vera rétt­mæt og rétt­mæt gagn­rýni – hún er upp­byggi­leg. Og við tökum hana og metum og tökum þá til greina og förum í úrbætur.

HVER ER MAÐURINN?

Drífa rann­sókn­ar­lög­reglu­maður og Rannveig, lög­reglu­full­trúi og teym­is­stjóri í rann­sókn­arteym­inu hennar Drífu, halda leit­inni áfram að leigu­bíl­stjór­anum. Í upp­hafi var ekki vitað í hvaða leigu­bíl brota­þoli fór, hver leigu­bíl­stjór­inn var eða á hvaða leigu­bíla­stöð hann starfar. Brota­þoli greiddi leigu­bíla­ferð­ina með greiðslu­korti og var óskað eftir upp­lýs­ingum frá posa­fyr­ir­tækjum um hvaða nafn sé á bak við greiðslu­pos­ann þar sem greiðslan fór í gegn. Fyr­ir­tækið neit­aði að afhenda þau gögn án dóms­úr­skurðar. Ákæru­svið lög­reglu­stjór­ans á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fór með kröfu fyrir dóm­ara og úrskurður lá fyrir – posa­fyr­ir­tækið var krafið um að afhenda lög­reglu gögnin og í þeim gögnum var nafn ein­stak­lings sem allt kapp er nú lagt á að finna. Í gegnum tíð­ina hafa gögn sem fást úr leigu­bílum skipt miklu máli í rann­sóknum á kyn­ferð­is­brotum.

Leita leigu­bíl­stjór­ansDrífa rann­sókn­ar­lög­reglu­maður og Rannveig lög­reglu­full­trúi leita að leigu­bíl­stjór­anum.

Ævar: Áður fyrr var þetta þannig að leigu­bíl­stjór­arnir voru mik­il­væg­ustu vitnin – voru að láta okkur fá gögn jafn­vel úr mynda­vélum – um akst­ur­inn – til og frá – upp­lýs­ingar úr greiðslu­kerf­inu.

Bylgja: Hvert við­kom­andi var sóttur eða hvert var farið með hann …

Ævar: Mjög mik­il­væg gögn sem hjálp­uðu til við að upp­lýsa málið en núna er þetta orðið þannig að við erum að rann­saka leigu­bíl­stjóra.

Jóhannes Kr.: Viltu segja mér hvað ger­ist næst?

Rannveig: Við erum að reyna að finna út dval­ar­stað þess sem er grun­aður í mál­inu.

Jóhannes Kr.: Skiptir miklu máli að ná honum, þessum meinta ger­anda, núna?

Drífa: Já, það eru liðnir þrír sól­ar­hringar frá brot­inu en það skiptir miklu máli að ná honum svo hann geti bent á jafn­vel vett­vang­inn svo við getum farið þangað sem fyrst. En það skiptir alltaf máli að í svona rann­sókn ger­ist allt sem fyrst.

Rannveig: Mögulega þessi aðili sem við erum að leita að, hann þarf ekk­ert endi­lega að vera ger­andi en hann getur vísað okkur á hver ger­andi er og vett­vangur.

Drífa: Af því það eru tveir nefndir í mál­inu – að það hafi verið tveir á staðnum. Ef hann verður hand­tek­inn þá fer hann hérna. Við erum að meta hvort hann fer í lækn­is­skoðun – það eru nátt­úr­lega þrír sól­ar­hringar liðnir frá brot­inu. Við þurfum aðeins að meta það – það er orðið svo­lítið langt liðið. Ef hann yrðu hand­tek­inn strax, innan tveggja sól­ar­hringa, þá myndum við setja hann í lækn­is­skoðun.

Rannveig: Það er alltaf tekið DNA-sýni.

Drífa: Og við nátt­úr­lega tökum það – hérna DNA-sýni úr honum og síðan tökum við skýrslu af honum og yfir­heyrum hann og nátt­úr­lega reynum að fá upp úr honum vett­vang­inn, bara allt sem hann getur sagt okkur.

Jóhannes Kr.: Er það algjört lyk­il­at­riði að konan hafi farið á neyð­ar­mót­tök­una?

Drífa: Já, það er algjört lyk­il­at­riði.

NEYÐARMÓTTAKAN

Neyð­ar­mót­taka fyrir þolendur kyn­ferð­is­of­beldis er á hæð­inni fyrir ofan bráða­mót­töku Land­spít­al­ans í Fossvogi. Þar hitti ég Huldu Hrönn Björg­úlfs­dóttur hjúkr­un­ar­fræð­ing sem er verk­efn­is­stjóri neyð­ar­mót­tök­unnar.

Neyð­ar­móttakanHulda Hrönn Björg­úlfs­dóttir hjúkr­un­ar­fræð­ingur er verk­efn­is­stjóri neyð­ar­mót­tök­unnar, þar sem tekið er á móti brota­þolum kyn­ferð­is­of­beldis.

Jóhannes Kr.: Hvernig er tekið á móti brota­þola? Hvað skiptir máli?

Hulda: Fyrst og fremst myndi ég halda að það væri að vera bara – sýna skiln­ing og hlýju og sam­kennd með fólki af því að margir eru kannski efins. Sumir eru hrein­lega bara efins um hvort það hafi verið brotið á þeim eða ekki og þá skiptir vænt­an­lega miklu máli að þeim sé trúað þegar það kemur og er að segja frá. Að fólki líði þannig að það sé að segja sögu sína við ein­hvern sem er að hlusta og trúir því og því sem gerð­ist – vegna þess að þetta er svo oft þannig að fólk er að efast. Efast um hvað kom fyrir eða efast um hrein­lega að það hafi verið brotið á því.

Jóhannes Kr.: Ef ég væri nú brota­þoli, hvaða ferli tekur við eftir að ég er kom­inn hingað inn?

Hulda: Við reynum alltaf að byrja á því að útskýra fyrir við­kom­andi hvaða þjón­ustu við bjóðum upp á. Þolandi ræður alltaf ferð­inni – hvað er gert – hvað við gerum en við útskýrum til­gang­inn með til dæmis ef fólk er að koma beint á eftir – eða á fyrstu þremur sól­ar­hring­unum – hvað er hægt að gera. Stundum er hægt að ná bara mjög góðum gögnum og við vitum ekk­ert , það er gerð lækn­is­skoðun og það er gerð lík­ams­skoðun frá toppi og niður. Ef mann­eskjan talar til dæmis um ein­hver átök eða það hefur verið eitt­hvað, þá skoðum við það. Já, síðan útskýrum við hvað við getum gert, það er hægt að taka þessi gögn,  DNA, þá erum við að leita að sæði eða munn­vatni eða bara taka sýni af húð – líka bara hendur ef það hefur verið eitt­hvert káf eða eitt­hvað svo­leiðis, þá er hægt að taka það ef mann­eskjan þar að segja hefur ekki baðað sig áður en hún kemur. Í lækn­is­skoð­un­inni er þetta kannski fyrst og fremst heil­brigð­is­skoðun, bara til að athuga hvort það sé allt í lagi – ein­hverjir áverkar eða eitt­hvað að sjá og tökum þá þessi sýni í leið­inni – svona strok­p­inna­sýni.

Við komum aftur að rann­sókn leigu­bíla­máls­ins eftir smá stund, fyrst ætla ég að segja frá mynd­inni sem ég hafði í hausnum á mér af starf­semi og starfs­mönnum kyn­ferð­is­brota­deild­ar­innar. Myndin sem ég hafði búið mér til var sirka svona; lit­laust gam­alt stofn­ana­rými með gömlum hús­gögnum og skjala­bunkum á skrif­borðum og í hillum. Í gömlum skrif­borðs­stólum sitja rann­sókn­ar­lög­reglu­menn, flestir karlar, og skoða frétta­síð­urnar á milli þess sem þeir skipu­leggja páska- og sum­ar­frí. Rann­sókn­ar­lög­reglu­menn sem brosa sjaldan eða aldrei í vinn­unni, því málin sem þeir rann­saka tengj­ast því versta í mann­legri hegðun.

Starfs­fólkiðÞrátt fyrir þungar rann­sóknir þá leyfir starfs­fólk sér að hlæja í vinn­unni.

Það fyrsta sem ekki er rétt hjá mér í þess­ari grein­ingu er að á deild­inni vinna fleiri konur en karlar – þær eru tíu og karl­arnir sjö. Og starfs­fólkið brosir og það leyfir sér að hlæja í vinn­unni. En hús­næðið er vissu­leg gam­alt og lit­laust – svona eins og öll stofn­ana­rými eru. Kaffi­stofan er hjarta deild­ar­innar og er innst á gang­inum vestan megin. Þar er fund­ar­borð við glugg­ann og sjón­varps­skjár hangir á veggnum við end­ann á borð­inu. Við vegg­inn eru fjórir hæg­inda­stólar og lítið sófa­borð í miðj­unni. Klaka­vélin er alltaf í vinnu og á eftir kaffi­vél­inni er hún mest not­aða tækið á kaffi­stof­unni. Í litlu rými inn af kaffi­stof­unni er upp­töku­her­bergi fyrir brota­þola sem er hinum megin við vegg­inn og yfir­heyrslu­her­bergin, en í öllum her­bergj­unum eru mynda­vélar sem tengj­ast tölvunum í þessu rými. Áður en skýrslu­taka hefst fer rann­sókn­ar­lög­reglu­mað­ur­inn, eða rann­sak­ar­inn eins og þau eru titluð á deild­inni, inn í rýmið til að kveikja á upp­töku og stoppa svo upp­töku þegar skýrslu­töku yfir brota­þola eða sak­born­ingi lýkur.

LEIT AÐ SAKBORNINGI

Núna eru engar skýrslu­tökur í gangi en við stóra fund­ar­borðið á kaffi­stof­unni sitja nokkrir rann­sak­arar og eru að hefja leit að leigu­bíl­stjór­anum í mál­inu sem Drífa er að rann­saka og sagði okkur frá áðan. Sjón­varps­skjár­inn á veggnum við fund­ar­borðið er not­aður sem tölvu­skjár og hin ýmsu for­rit eru notuð við leit­ina. Rannveig og Bylgja eru teym­is­stjórar yfir sitt­hvoru rann­sókn­arteym­inu á deild­inni og stjórna leit­inni.

Fylgst með leit­inni Arndís ásamt þeim Rann­veigu og Bylgju stýra leit­inni úr höf­uð­stöðv­unum.

Bylgja: Varstu búin að fletta honum upp, þessum aðila, í LÖKE?

Drífa: Nei, ég var ekki búin að því.

Bylgja: Var hann með ein­hverja sögu?

Rannveig: Ég er búin að fletta honum upp.

Bylgja: Er hann með sögu?

Rannveig: Bara svona umferð­ar­laga.

Drífa: Ég var búin að fletta upp bíl­núm­er­inu en ekki honum sjálfum.

Bylgja: En honum sem ein­stak­lingi, sem auka­að­ila?

Drífa: Nei, ég var ekki búin að því. Á pos­anum stendur Taxi Keflavík þannig að hann er með ein­hverja teng­ingu við Keflavík.

Bylgja: Kíkjum á, hvað heitir þetta? Ef hann er ekki þar þá höfum við sam­band við Keflavík og biðjum þá að fara að ... og sjá hvort bíll­inn er þar. Ef við finnum ekki bíl­inn, hvorki þarna eða við ... þá sendum við á alla lög­reglu­menn að ef þessi bíll sést í umferð að stoppa hann og hand­taka aðil­ann og láta okkur vita.

Fjölnir: Eigum við að taka rúnt þarna?

Bylgja: Látið okkur vita um leið og þið vitið eitt­hvað. Guðrún hefur sam­band við Keflavík. Mér finnst mjög lík­legt að þetta sé í Keflavík.

Leigu­bíl­stjór­inn fannst ekki í Keflavík og dag­inn eftir var leit­inni fram haldið. Hér er Bylgja teym­is­stjóri sem stjórnar aðgerðum.

Bylgja: Við ætlum að kanna í kerf­inu hjá okkur hvort við finnum bíl­inn á ferð­inni núna. Það eru sem sagt mynda­vélar hér á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem við höfum aðgang að í sér­stökum til­fellum og þetta myndi flokk­ast undir það. Af því við vitum núm­erið á bif­reið­inni þá getum við séð ef bif­reiðin hefur komið inn í ein­hverja af þessum mynda­vélum nýverið. En þetta gæti til dæmis auð­veldað okkur að finna þennan ein­stak­ling sem við erum núna nota bene búin að vera að leita að í sól­ar­hring.

Bylgja: Geturðu ekki bara leitað eftir bíl­núm­er­inu?

Hallur: Svona? Og hvað er í dag? Klukkan 13:01.

Bylgja:Reykja­vík­ur­vegur.

Hallur: Já, hérna er þetta.

Lilja: Klukku­tími síðan. Er hann að keyra inn í Hafn­ar­fjörð þarna?

Hallur: Já, þarna var hann.

Birgir: Hvað er hann á ferð­inni í dag?

Bylgja: Já, bara núna áðan.

Hallur: Það var þessi hérna vél og við eigum þá að geta séð hvar hún er.

Bylgja:  Já, við hvern tala ég? Hæ, já, þetta er Bylgja hérna í R-1. Eruð þið til í að kalla fyrir okkur aftur út þetta bíl­númer og bara það er mjög mik­il­vægt að ná í þennan mann sem allra, allra fyrst.

Fjar­skipta­mið­stöð: Og það er aftur frá Fjar­skipta­mið­stöð – ítrekun að ósk R-1 að hafa afskipti af bif­reið­inni ... ef hún verður á vegi ykkar. Handtaka aðila og skrá niður allar upp­lýs­ingar um þá sem eru í bílnum. Hefur síð­ast sést í Hafn­ar­firð­inum í dag.

Talstöð: Hafn­ar­fjörður.

Talstöð: Kópa­vogur.

Talstöð: 221

Talstöð: Hverfis.

Talstöð: Land.

Talstöð: Umferð­ar­deild.

Jóhannes Kr.: Nú er hvað farið í gang, seg­irðu?

Bylgja: Nú erum við búin að kalla út bif­reið­ina og eins og þú heyrðir þá eru bif­reið­arnar sem eru úti að vinna búnar að melda að þær hafi mót­tekið skila­boðin. Þannig að nú bara treystum við á það að við­kom­andi detti upp í hend­urnar á þeim fyrr en seinna.

AÐ KOMAST AÐ SANNLEIKANUM

Þó að allt kapp sé lagt á að finna sak­born­ing í leigu­bíla­mál­inu og nokkrir rann­sókn­ar­lög­reglu­menn komi að þeirri leit – þá er verið að vinna í fleiri málum á kyn­ferð­is­brota­deild­inni. Hér er Birgir Örn Guð­jóns­son rann­sókn­ar­lög­reglu­maður, betur þekktur sem Biggi lögga.

BirgirVinnur að því að fá í skýrslu­töku sak­born­inga í tveimur málum. Í báðum til­fellum greindu ung­lings­stúlkur frá kyn­ferð­is­of­beldi á hendur sér. Í öðru til­fell­inu var ger­and­inn líka ung­lingur, í hinu var hinn grun­aði fyrr­ver­andi kær­asti móður stúlkunnar.

Jóhannes Kr.: Í hverju ert þú að vinna núna?

Birgir: Heyrðu, ég er sem sagt að reyna að fá í skýrslu­töku sak­born­inga í alla­vega tveimur málum, annað því miður svo­lítið gam­alt en stutt síðan ég fékk það í hend­urnar. Það lítur út fyrir að þetta séu ung­lingar. Hún sakar hann um að hafa nauðgað sér. Svo er annað mál þar sem það er í raun og veru stúlka sem kemur fram eða ung­lings­stelpa sem segir að það hafi verið brotið á sér þegar hún var yngri. Þannig að ég er að reyna að fá þá fyrr­ver­andi kærasta mömm­unnar og hann er grun­aður í því máli. Þannig að það er svona það sem ég er að vinna að í dag en svo eru nátt­úr­lega fleiri mál á borð­inu.

Jóhannes Kr.: Svo eru alltaf að koma inn ný mál?

Birgir: Svo eru alltaf að koma inn ný mál og svo bara tekur þetta allt sinn tíma. Það er eitt mál sem ég er að vinna í þar sem ger­and­inn er kona sem á við geð­ræn vanda­mál að stríða og hún er reglu­lega inn á deild. Og maður vill nátt­úr­lega reyna að hitta á hana þegar hún er í góðu standi en samt vill maður heldur ekki að þetta mál verði til þess að henni líði verr og verði veik­ari. Það er oft svona svo­lítið erfitt. Í grunn­inn þá snýst þetta nátt­úr­lega ekki um það að í raun og veru að ná ein­hverjum. Þetta snýst um það að kom­ast að sann­leik­anum – það er til­gang­ur­inn með lög­reglu­rann­sókn.

Þú veist það er ekki eitt­hvað bara, jess, við náðum ein­hverjum – það skiptir engu máli. Málið snýst um það að kom­ast að sann­leik­anum. Og maður vill nátt­úr­lega bara að það komi allir sem heil­astir út úr því sem við erum að gera. Og eins og þarna þegar mann­eskjan er greini­lega veik og virð­ist hafa verið veik þegar hún fremur þetta brot sem er til rann­sóknar og maður leiðir að því líkum að hún verði þar af leið­andi dæmd ósak­hæf fyrir vikið en samt erum við í þeirri stöðu að þurfa að rann­saka það og klára málið.

HUNDRAÐ ÞRJÁTÍU OG TVÖ MÁL

Rannveig: Við erum með svona system þar sem við erum með ný mál sem koma inn og tökum þau alltaf fyrir á grein­ing­ar­fundi – þá erum við með ný mál og svo mál sem við erum að skila. Og það er alltaf betra að hafa fleiri mál þarna megin.

Mál til rann­sóknarMöpp­urnar eru fyrir málin sem voru kærð til lög­reglu í vik­unni. Bleikar möppur eru vegna barn­a­níðs­mála. Gular fyrir full­orðið fólk með þroska­hömlun. Og bláar vegna barna sem eru yngri en fimmtán ára.

Drífa: Já, við viljum helst hafa fleiri hér.

Rannveig: Hérna eru líka mál sem eru að koma inn sem eiga eftir að fara í möppur.

Drífa: Eru þetta allt ný mál?

Rannveig: Já, þetta er frá því bara á mánu­dag­inn – við erum með fund tvisvar í viku – mánu­dögum og fimmtu­dögum og þá förum við yfir allt nýtt og öll skil.

Jóhannes Kr.: Hvað eru þetta mörg mál sem eru núna fyrir þennan grein­ing­ar­fund?

Rannveig: 1-2-3-4-5-6-7-8-9-10-11-12-13-14, fimmtán mál sem verða tekin fyrir á fund­inum og þá líka málið sem við erum að vinna í núna, málið hennar Drífu.

Jóhannes Kr.: Af þessum fimmtán eru þá fimm sem er verið að skila?

Drífa: Já, sem er lokið, en hin eru öll ný sem á eftir að greina og rann­saka í raun­inni.

Jóhannes Kr.: Hvað eru mörg í miðj­unni?

Rannveig: 132.

Drífa: En 132 er nýtt met. Við höfum venju­lega verið í 150–170.

Rannveig: Við vorum með 260–270.

Drífa: 132, það kom í gær bara þú veist fögn­uður – við höfum aldrei verið með svona fá mál.

Jóhannes Kr.: Hvað er mikið og hvað er lítið af nýjum málum á milli funda eða á viku?

Rannveig: Þetta er að aukast núna, við sjáum það. Það er búið að vera rólegt og það hefur líka hjálpað til við að ná þessu niður en þetta er að aukast svo­lítið mikið. Ég sé að hér eru tvö frá barna­vernd til dæmis. Þetta er barna­mál líka – við setjum þetta í mis­litar möppur. Þetta er varð­andi þá sem eru eldri en 18 ára.

Jóhannes Kr.: Það eru hvítar möppur fyrir þá sem eru eldri en 18 ára.

Rannveig: Blá fyrir börnin yngri en 15 ára. Og grá fyrir 15 til 18. Svo erum við með gular möppur fyrir þá sem eru með ein­hverja þroska­hömlun full­orðið. Og bleiku er barn­a­níð – það er yfir­leitt netið.

HANDTAKA

En aftur að leit­inni að leigu­bíl­stjór­anum sem hefur nú staðið yfir í sól­ar­hring. Eins og við heyrðum áðan var óskað eftir því að fjar­skipta­mið­stöð ítrek­aði leit­ina að bif­reið­inni. Einum og hálfum klukku­tíma síðar ger­ist þetta.

Fjölnir: Taka sím­ann hans – hald­leggja bíl­inn og ég sendi svo bara ein­hvern á móti ykkur frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Við viljum bara fá hann á Hverf­is­götu til að yfir­heyra hann.

Lög­reglu­maður: Ok.

Fjölnir: Ef hann vill ekki leyfa ykkur að keyra bíl­inn þá verðum við bara að skilja hann eftir þarna á vell­inum og draga hann seinna eða eitt­hvað.

Lög­reglu­maður: En upp á að upp­lýsa hann um hand­töku …

Fjölnir: Þú segir bara að hann sé hand­tek­inn grun­aður um kyn­ferð­is­brot um síð­ustu helgi.

Lög­reglu­maður: Já, ég græja það. Ég var bara í útkall­inu á land­inu og fer bara í átt­ina að Reykja­vík.

Fjölnir: Flott, ég bið ein­hvern að koma á móti. Ánægður með þessa stelpu, ég hringdi í hana í morgun, hún er búin að vera í allan dag að leita. Þetta er gott.

Hallur: Þeir fiska sem róa.

Fjölnir: Hann var sem sagt hand­tek­inn við flug­stöð­ina í Keflavík í röð­inni þar.

Lög­reglu­maður Reykja­vík: Hvenær leggið þið af stað?

Lög­reglu­maður Keflavík: Við erum bara að leggja af stað.

Lög­reglu­maður Reykja­vík: Ok, eigum við ekki bara að stefna á að hitt­ast í Hvassa­hrauni? 206 kemur.

Lög­reglu­maður Keflavík: Jú, það er flott.

Lög­reglu­maður Reykja­vík: Já, flott.

Bylgja: Þau koma bara með hann hingað núna og hann verður settur inn í geymslu og við finnum fyrir hann verj­anda og svo bara verður skýrsla tekin af honum.

Jóhannes Kr.: Var eitt­hvað talað um það hvernig hann brást við?

Hallur: Svona 99 pró­sent líkur að það hafi verið: Ha, í alvöru? og svo bara svona: Ó. Eða, ohhh.

Fjölnir: En þeir sögðu að hann hefði ekk­ert verið að streit­ast á móti eða neitt. En svo nátt­úr­lega vitum við ekki hvort þetta er sak­born­ing­ur­inn eða hvort vin­ur­inn er sak­born­ing­ur­inn.

Hallur: Það er nefni­lega málið. Eða hvort þeir séu fjórir sem keyra þennan bíl.

Fjölnir: Þetta er alla­vega þessi – eig­andi bíls­ins.

Hallur: Eigandi bíls­ins, já.

Fjölnir: En þessi bíll er merktur leigu­bíla­stöð. En við hringdum í ………. og þeir sögðu nei, hann vinnur ekki hjá okkur. Þeir sögðu, það vinnur eng­inn útlend­ingur hjá okkur.

Hallur: Voru þau að skipta núna, Hafn­ar­fjörður ... Ok það stytt­ist í hann. Ég ætla að fara að finna máls­númer og taka af honum fingraför og ljós­myndir.

Fjölnir: Lög­mað­ur­inn ætl­aði að koma um svona fimm.

LJÓSMYND OG FINGRAFÖR

Leigu­bíl­stjór­inn er nú kom­inn í fanga­mót­tök­una á lög­reglu­stöð­inni á Hverf­is­götu. Ég fylgist með í gegnum mynda­véla­kerfið í fanga­mót­tök­unni þegar hann er skráður inn.

Hinn grun­aði hand­tek­innFylgst með hinum hand­tekna í gegnum mynda­véla­kerfið í fanga­mót­tök­unni.

Jóhannes Kr.: Hvað er að ger­ast núna?

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður: Svo­kallað ljós­mynd og fingraför. Þá eru ein­stak­lingar mældir, hæð og þyngd, ljós­mynd­aðir. Síðan er kannað hvort þeir séu með ein­hver húð­flúr eða lýti eða eitt­hvað svo­leiðis sem eru svona afger­andi. Eftir það er rúllað yfir og tekin fingraför þannig að við sendum þau út líka – þannig ef að við lendum í því að hann er þekktur brota­maður ein­hvers staðar ann­ars staðar og hefur komið hér á fölsuðum skil­ríkjum eða eitt­hvað svo­leiðis þá getur hann verið þekktur ann­ars staðar og þekk­ist þá á fingraförum.

Þarna heyrðum við í rann­sókn­ar­lög­reglu­manni í kyn­ferð­is­brota­deild sem vill ekki koma fram undir nafni. Hér útskýrir hann ástæð­una.

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður: Við erum bara í þannig verk­efnum. Við erum bara að koma inn í líf fólks á erf­ið­ustu tímum og sumir taka því ein­hvern veg­inn svona per­sónu­lega að við séum að garfa í þeirra lífi, skil­urðu mig, og er þá illa við okkur. Og það er þess vegna kannski sem maður vill ekki mikið vera að koma undir nafni til að passa bæði fjöl­skyldu og svo sjálfan sig líka, segir hann, en við skulum fara aftur í fanga­mót­tök­una.

Jóhannes Kr.: Þessi tími hjá sak­born­ingi – hvernig held­urðu að fólki líði?

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður: Ég held að það sé bara rosa­lega mis­jafnt. Ég held að fólki líði aldrei vel þegar það er búið að hand­taka fólk, sko. Þetta er nátt­úr­lega bara erfitt, stressandi umhverfi og þess vegna er um að gera eins og við getum að halda öllu rólegu. 

Hallur: Nú er hann sem sagt bara að ræða við lög­mann­inn sinn og við erum bara að und­ir­búa skýrslu­tök­una og hann getur ráð­fært sig við lög­mann­inn og svo tökum við bara af honum skýrslu. Og berum undir það sem við ætlum að bera undir hann og tökum svo í raun ákvörðun um það í fram­hald­inu hvað gerður gert. Sjá hvort við ætlum að hald­leggja síma og biðja um ein­hver ákveðin gögn og hvað við þurfum bara máls­ins vegna.

SAGÐI EKKI SATT

Skýrslutakan yfir sak­born­ingnum stóð fram eftir kvöldi og honum var sleppt að henni lok­inni. Það varð fljót­lega ljóst að það þyrfti að ræða aftur við sak­born­ing­inn.

Drífa: Við hand­tókum nátt­úr­lega leigu­bíl­stjór­ann í gær og hann kom í skýrslu­töku og bara ótrú­lega sann­fær­andi og síðan var hann bara til í að gefa DNA og ótrú­lega sam­vinnu­þýður og hann á engin mál. En hann er ekki að segja okkur satt – mögu­lega hefur hann ekki viljað skipta sér af þessu eða hlífa vini sínum eða eitt­hvað svona.

Bylgja: Það sem ég held að við ættum að gera núna er að sækja hann aftur og bera undir hann þetta sem búið er að finna í sím­anum og segja bara: þú verður að segja okkur hver þetta er sem þú varst í sam­skiptum við.

Drífa: Ég er að segja að þetta kemur ekki oft fyrir hérna.

Bylgja: Nei, nei, það eru alls konar tvist í þessum málum.

Drífa: Sko, ég var alveg klár á því þegar ég fór í skýrslu­tök­una að það kæmi eitt­hvert tvist út úr þessu.

Jóhannes Kr.: En hver eru þá næstu skref hjá ykkur?

Bylgja: Nú þurfum við að setj­ast aðeins yfir þetta og í raun og veru end­ur­skoða aðeins og bera saman þessa fram­burði. Mér finnst lyk­il­at­riði að reyna að finna ein­hverja vett­vanga þarna því þá finnum við vænt­an­lega sak­born­ing­inn. Og við höfum þarna eitt­hvert síma­númer sem við getum kannski elt mögu­lega.

Drífa: Við erum með síma­númer sem hann var að del­eta sem hann var í miklum sam­skiptum við – sem er örugg­lega þessi maður.

Jóhannes Kr.: Lítið þið þetta alvar­legum augum, að hann sé að ljúga?

Drífa: Sko, sak­born­ingur má ljúga, hann er nátt­úr­lega með rétt­ar­stöðu sak­born­ings en já, ég meina …

Hallur: …. sak­born­ingur má neita að tjá sig en hann er samt áminntur um sann­sögli vegna þess að það getur haft áhrif á málið …

Drífa: En það er ekki refsi­vert að ljúga.

Bylgja: Nú er ég að skoða í lög­reglu­kerf­inu mál þar sem hann hefur verið skráður aðili, þessi leigu­bíl­stjóri, hvort við sjáum ein­hverja félaga í sem sagt öðrum málum. Það getur kannski leitt okkur eitt­hvað – ekk­ert víst sko, en það þarf alla­vega að skoða það.

Jóhannes Kr.: Kemur þetta stundum fyrir við svona aðstæður – þarna eru raf­ræn gögn sem í raun­inni sýna fram á eitt­hvað annað en það sem mað­ur­inn sagði?

Bylgja: Já, já, það kemur oft fyrir. Það kemur oft fyrir að þeir segi eitt en svo er eitt­hvað annað sem liggur fyrir í mál­inu, sko.

Þegar sak­born­ingur finnst og verður hand­tek­inn þarf að fara með hús­leit­ar­kröfu fyrir dóm­ara ef sak­born­ingur heim­ilar ekki leit. Margrét Herdís Jóns­dóttir, aðstoð­ar­sak­sókn­ari á ákæru­sviði, er und­ir­búin ef slíkt kemur upp.

Margrét: Ég ætla bara að hringja í bak­vakt­ina og ég ætla bara að segja henni allt það sem er í gangi, láta hana fá máls­núm­erið og ef það væri þá til­búin upp­lýs­inga­skýrsla þannig að ef hann heim­ilar ekki leit þá erum við með allt klárt.

Jóhannes Kr.: Hvað er næst sem þið eruð að fara að gera?

Drífa: Reyna að ná þá mann­inum sem var með henni í þessu her­bergi og er þá meintur ger­andi í mál­inu og taka þá skýrslu af honum – reyna að hand­taka hann.

TVEIR SAKBORNINGAR SVIPT SIG LÍFI

Drífa hefur starfað í lög­regl­unni í rúm tutt­ugu ár og þar af síð­ustu sjö ár í kyn­ferð­is­brota­deild­inni. Hún segir margt hafa komið sér á óvart þegar hún byrj­aði að vinna á deild­inni.

DrífaHefur verið í lög­regl­unni í tutt­ugu ár og þar af í kyn­ferð­is­brota­deild­inni síð­ustu sjö ár.

Drífa: Það kom mér á óvart hvað það er mikið af málum og bara hvað þau eru mis­jöfn. Og svo erum við nátt­úru­ega að rann­saka það sem við myndum kalla smá­vægi­leg mál sem eru kannski stór­vægi­leg í hugum ein­hverra og alveg upp í nátt­úr­lega alvar­leg mál. Þetta er svo­lítið fjöl­breyti­legt, þó þetta sé bara einn mála­flokkur þá er hann mjög fjöl­breyti­legur og getur teygt anga sína víða.

Jóhannes Kr.: Hvað er svona mest gef­andi við þetta starf?

Drífa: Bara þessi mann­legi þáttur og ég hef mik­inn áhuga á mann­legum sam­skiptum og fólki yfir höfuð. Ég var svona tví­stíg­andi þegar ég byrj­aði og fólk var að segja við mig: þú ert svo við­kvæm Drífa, hvernig get­urðu verið lögga? En mín nið­ur­staða er sú að þessi svo­kall­aða við­kvæmni mín – hún hefur kannski bara líka verið styrk­leiki minn – af því að ég get sett mig í spor ann­arra og get skilið að fólki líði illa og ég dæmi ekki – eða reyni alla­vega að gera það ekki.

Jóhannes Kr.: Hvað er það erf­ið­asta sem þú hefur upp­lifað í þess­ari deild, bara sem starfs­maður?

Drífa: Það er nátt­úr­lega alltaf erfitt að rann­saka barna­mál. Maður svona leggur svo­lítið hjartað í það – af því líka börn eiga svo erfitt með að segja frá og það er svo erfitt að sanna þessi mál út af því að þarna eru svo við­kvæmir brota­þolar. Mér finnst það vera svo­lítið svona mikil áskorun að takast á við svo­leiðis mál. En svo eru bara svona atvik sem hafa komið upp kannski í rann­sóknum. Ég hef tvisvar lent í því að menn hafa svipt sig lífi eftir að hafa verið hérna í skýrslu­tökum grun­aðir um kyn­ferð­is­brot – ungir menn. Það tók veru­lega á mig og ég þurfti að spyrja mig svona spurn­inga: Var þetta mér að kenna? Eða var ég vond við hann? Sem var alls ekki en auð­vitað er það mikið sjokk að taka mann og taka skýrslu af honum og svo heyrir maður það tveimur dögum seinna að hann hafi svipt sig lífi. Og í báðum þessum til­vikum voru þetta bara ungir menn á þrí­tugs­aldri og í raun­inni ekki í neinu ves­eni eða neitt og svo eru þeir kærðir fyrir kyn­ferð­is­brot og þetta eru við­brögðin hjá þeim – þeir höndla þetta ekki. En alveg burt­séð frá því hvort þeir voru sekir eða sak­lausir að þá er þetta bara algjör sorg­ar­staða.

LEITAÐ AÐ SAKBORNINGI NÚMER 2

En aftur að leit­inni. Ég er kom­inn í ómerktan lög­reglu­bíl með tveimur rann­sókn­ar­lög­reglu­mönnum úr deild­inni sem ætla að keyra á staði þar sem hugs­an­legt er að mað­ur­inn sé.

Jóhannes Kr.: Hvað vitið þið um hvar þessi maður heldur sig?

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður 1: Nú erum við bara búnir að leita eftir í kerf­unum okkar, bæði þá vinnu­staði og fleira þannig að við erum bara að fara á þessa staði þar sem við teljum hann vera – ann­að­hvort vinnu, heim­ili, við vitum ekki til þess að hann sé með nein börn.

Jóhannes Kr.: Eruð þið mikið í svona að bara þurfa að finna fólk?

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður 1: Það fer bara eftir mál­inu og hvernig við viljum að við náum í fólk. Ef það eru rann­sókn­ar­hags­munir sem eru í gildi, það eru símar, það eru ein­hver gögn, eitt­hvað sem við þurfum að passa upp á að verði ekki eyði­lagt fyrir okkur eða ein­stak­ling­ur­inn fari í burtu ef hann veit að við erum að leita. Þá förum við og leitum að fólki og förum með það niður á stöð.

Jóhannes Kr.: En þegar þið eruð í hús­leitum. Hvernig gerið þið þetta?

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður 1: Það er bara eins mis­mun­andi eins og hús­leit­irnar eru margar. Eftir hverju erum við að leita? Erum við að leita eftir líf­sýnum? Þá leitum við eftir þeim stöðum sem fram­burður brota­þola hefur komið fram. Hann segir að þetta hafi gerst í sófa og gerst svona, þá nátt­úr­lega fáum við tækni­deild til að skoða þann vett­vang betur og hald­leggja þá muni. Hús­leitin felst líka í því að bara átta sig á vett­vangnum – erum við á réttum stað? Er þetta vett­vang­ur­inn sem brota­þoli lýsir? Segist hafa séð app­el­sínugula styttu í ein­hverju horni, þá erum við líka að leita eftir henni.

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður 1: Við erum komnir hérna fyrir utan vinnu­stað að við teljum hjá honum. Nú ætlar …….. að fara inn og kanna hvort hann verði var við hann – bara láta lítið bera á sér.

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður 1: Hvað seg­irðu? 

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður 2: Það er starfað þarna núna. Sýnist á öllu að það séu bara tveir að vinna – hvor­ugur hann.

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður 1: Við erum hérna fyrir utan heim­ili kær­ustu sak­born­ings og við vitum ekki betur en að þau séu enn þá par. Þau eru skráð hérna með lög­heim­ili og hann er að kanna á hvaða bjöllu þetta er, hvort við sjáum ein­hverjar hreyf­ingar eða eitt­hvað í hús­næð­inu.

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður 2: Þau eru þrjú skráð.

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður 1: Eigum við að fá Vín­lands­leið til að koma? Bara vera hérna til liðs.

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður 2: Prófa að dingla.

Talstöð: Lög­reglan.

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður 1: Já hæ ……. Hérna R-1.

Talstöð: Já, hæ.

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður 1: Heyrðu, áttu nokkuð einn bíl til þess að koma með okkur hérna í ……

Talstöð: Já.

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður 1: Við erum bara að fara í – kanna hvort aðþað sé ein­stak­lingur hérna inni sem við ætlum að hand­taka.

Talstöð: Við erum hérna rétt hjá Gull­nesti og þar.

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður 1: Já, flott er. Við þurfum ekki að fá ykkur inn, bara að þið vitið af okkur hérna.

Talstöð: Við rúllum þarna með einni við­komu og förum svo niður eftir. Við erum á civil bíl.

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður 1: Flott er. Já, nú ætlum við bara að fara inn og ef eitt­hvað kemur upp á þá vita þau af okkur og stutt í þau.

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður 1: Fjar­skipt R-1.

Fjar­skipti: Já, hlustum.

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður 1: Heyrðu, við erum hérna tveir. Ætlum að fara að banka upp á í hús­næði í …….. Varð­stjóri á Vín­lands­leið veit af okkur.

Fjar­skipti: Já og við erum upp­lýstar.

Jóhannes Kr.: Nú eru komnar ein­hverjar 15 mín­útur síðan að þeir fóru inn. Hinn lög­reglu­bíll­inn bíður hérna átekta.

Heyrðu, hvað segið þið, hvað kom út úr þessu?

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður 1: Kærasta sak­born­ings er heima, hann er ekki heima, hann er að vinna. Það er mjög erfitt að stað­setja hann akkúrat núna. Við vorum búnir að stað­setja bíl­inn hans klukkan hálf ell­efu í morgun með því að fletta honum upp í mynda­véla­kerfi hjá okkur sem bjargar okkur ekki mikið núna. Næsta sem við gerum núna er að fara á þennan hugs­an­lega vett­vang. Þegar við erum komnir þangað þá ætlum við að hringja í þennan ein­stak­ling. En mér þykir lík­legt að hún sé búin að senda honum skila­boð núna að löggan hafi komið heim. Stundum þurfum við að taka ákvörðun um að banka upp á og þá brenna okkur – þá erum við búnir að gefa upp að við séum að leita að ein­stak­lingnum.

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður 1: Já, 209, við erum að fara að kanna hvort við finnum vett­vang í kyn­ferð­is­brota­máli þannig að það væri fínt að hafa ykkur svona í nágrenn­inu – bara upp á það að við vitum ekki hverju við erum að fara að mæta.

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður 2: Fyrir utan.

Jóhannes Kr.: Er þetta bíll­inn?

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður 2: Já.

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður 1: 209, ætl­uðuð þið að hjálpa R-1?

Talstöð: Já.

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður 1: Komið þið bara alveg að hús­inu – bíll­inn sem við erum að leita að er hérna.

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður 1: Bíllinn er heitur. Leggið bara bílnum þannig að hann kom­ist ekki í burtu.

HANDTAKA Á VETTVANGI

Ég var beð­inn um að bíða í lög­reglu­bílnum á meðan vett­vang­ur­inn var tryggður.

Seinni hand­takanJóhannes fylgdi lög­regl­unni eftir í hand­töku á hinum grun­aða, en var beð­inn um að bíða í bílnum á meðan hann var tek­inn.

Jóhannes Kr.: Þeir eru komnir hérna fyrir utan mögu­legan vett­vang og bif­reið sak­born­ings, þess grun­aða, er hérna fyrir utan segja þeir. Það er komn­inn annar lög­reglu­bíll hérna á svæðið og hann verður þá færður í þann lög­reglu­bíl, þessi grun­aði ein­stak­lingur.

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður 1: Heyrðu, einn sem kemur með okkur og einn sem er með sjón­póst hérna upp á að bíll­inn fari ekki neitt.

Jóhannes Kr.: Það er hérna lög­reglu­maður búinn að taka sér stöðu hérna fyrir utan vett­vang­inn og bíður bara á meðan hinir þrír eru að fara inn og athuga með mann­inn og vett­vang­inn auð­vitað sjálfan.

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður 1: (bankar á hurð) Halló. Þú þarft að koma með okkur. Talarðu íslensku? Police. You have to come with us now. You don´t give them anyt­hing. Talarðu íslensku? Já, flott er. Ekki hafa hend­urnar í vasa – taktu hend­urnar upp úr vas­anum. Já, flott er. Heyrðu – í burtu með hann. 

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður 2: Put your hands behind your back. Takið hann - burtu með hann. Þið getið sett hann bara aftur í löggu­bíl. Hann fer síðan bara niður á Hverf­is­götu. Ekki fara með hann fyrr en við segjum. Bara annar ykkur situr með honum – ég ætla að tékka á félaga mínum.

Jóhannes Kr.: Það er búið að hand­taka mann­inn – það er búið að hand­járna hann og það er verið í leiða hann í bíl­inn núna – í merktan lög­reglu­bíl. Það er alla­vega búið að ná mann­inum.

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður 1: Fjar­skipti R-1, gætum við fengið annan bíl að ……

Fjar­skipti: Já, á hvaða for­gangi?

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður 1: Bara F-3, allt rólegt. Aðili hand­tek­inn. Heyrðu, þessi lög­reglu­maður ætlar að koma aðeins hérna inn fyrir og ég ætla að fara út fyrir og hringja.

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður 1: Hæ, heyrðu, við erum búnir að ná honum, hann var hérna inni í íbúð­inni. Þar er annar ein­stak­lingur fæddur 03 en okkar maður hefur þá bara komið hérna beint eftir, að öllum lík­indum kærastan hans látið hann vita, komið hérna og þeir voru að reyna að taka saman dót. Hinn segir að hinn hafi verið að hringja í sig og biðja hann um að taka saman og skilji ekki hvað er í gangi. Jú, ég er að fá annan bíl til þess að koma og svo er bara að fá tækni­deild hingað. Þetta er nátt­úr­lega bara vett­vangur. 

Jóhannes Kr.: Það er komn­inn annar lög­reglu­bíll hérna á svæðið og þeir verða þá báðir færðir niður á Hverf­is­götu til yfir­heyrslu.

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður 1: Það er einn aðili hérna inni sem við erum að fara að til­kynna hand­töku. 

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður 2: Eins og staðan er núna þá ertu hand­tek­inn. Þú nýtur rétt­ar­stöðu sak­born­ings – veistu hvað það þýðir? Þú þarft ekk­ert að tjá þig um málið frekar en þú kýst, en ef þú kýst að tjá þig þá hvet ég þig til að segja satt og rétt frá og þú átt rétt á lög­manni á öllum stigum máls­ins. Ok? Þú skilur ekki. Allt í lagi, en það verður þá bara útskýrt fyrir þér þegar við komum niður á stöð. Þessir lög­reglu­menn hérna, þeir ætla að fylgja þér út í lög­reglu­bíl. Og þú ert bara hand­tek­inn – þú ert ekki frjáls ferða þinna lengur þannig að ég ætla að biðja þig að fylgja þessum lög­reglu­mönnum hérna. Það er ekki búið að leita á honum þannig að þið megið endi­lega taka örygg­is­leit á hann og bara örygg­is­ins vegna kannski bara setja járn.

Lög­reglu­maður: Já, og við ætlum að setja þig í hand­járn.

Jóhannes Kr.: Það er búið að hand­taka hinn mann­inn og báðir lög­reglu­bíl­arnir eru þá að fara með þessa menn niður á Hverf­is­götu núna.

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður 2: Hann segir að hann hafi komið fyrir 10 mín­útum síðan. Hann hafi hringt á undan sér og verið eitt­hvað – nenn­irðu að fara að taka til. Og ég spurði: eftir að hann kom, tókuð þið eitt­hvað til? Já, við tókum fötin hans. Hann er eitt­hvað búinn að vera að troða föt­unum ofan í töskur. Meðvituð um það.

Jóhannes Kr.: Þetta er samt mjög góð útkoma að vera kom­inn með hann í varð­hald, er það ekki?

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður 1: Jú, það er það sem verk­efnið okkar var, að finna þennan mann og síðan er tækni­deild að koma og við ætlum að rann­saka þá vett­vang.

Jóhannes Kr.: Þið þurfið þá að vera hérna og tryggja að allt sé í góðu lagi?

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður 1: Til að tryggja það að þetta líti út eins og þegar við komum að.

Jóhannes Kr.: Ég sé hérna að það eru alla­vega – það er eitt­hvert rúm hérna og það er dýna og það er ein­hver ferða­taska á rúm­inu og greini­lega verið að pakka ein­hverju saman hérna – þó maður viti ekk­ert hvað það er – hvort það sé bara alltaf svona. Það eru tvö egg á borð­inu og lítil raf­magns­hella og panna á hell­unni og örbylgju­ofn. Þetta er bara pínku­lítið her­bergi og eitt kló­sett. Og 10 stiga frost úti.

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður 2: 10 stiga frost úti.

Jóhannes Kr.: En held­urðu að almenn­ingur átti sig á vinn­unni við eitt svona mál? Bara ef maður tekur þetta frá síð­ustu helgi þegar þetta er til­kynnt og við erum komin hingað á fimmtu­degi þegar það er verið að hand­taka grun­aða eða sak­born­ing?

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður 2: Ja, þú sérð það bara að í þess­ari aðgerð voru 6 lög­reglu­menn og bæt­ast núna örugg­lega við 2 þannig að 8 lög­reglu­menn í heild­ina. Og við erum hvað, búnir að vera að þessu síðan fjögur?

Jóhannes Kr.: Og klukkan er hálf sjö núna.

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður 2: Við erum búnir að vera að þessu síðan 3, við byrj­uðum nátt­úr­lega aðeins fyrr. Það er nóg að gera og þetta er non-stop.

VETTVANGSRANNSÓKN

Tækni­deildin er mætt á vett­vang. Út úr bílnum stígur einn maður og tekur töskur og tækni­búnað úr bílnum.

Tækni­deildin að störfumTækni­deildin leitar að blóði eða öðrum líf­sýnum, jafn­vel fingraförum, skó­förum og öðru sem þurfa þykir hverju sinni.

Tækni­deildin: Tækni­deildin kemur að vett­vangs­rann­sóknum fyrir hönd mis­mun­andi deilda lög­regl­unnar og mis­mun­andi emb­ætta. Það er bara mis­mun­andi hvað við gerum eftir því hvaða vett­vangur það er – hvort það er leitað að blóði eða öðrum líf­sýnum, jafn­vel fingraförum, skó­förum og öðru, bara eftir því sem þurfa þykir hverju sinni. Það er eng­inn hérna inni?

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður 1: Nei, það er eng­inn hérna inni.

Tækni­deildin: Ok, þá ætla ég að biðja ykkur öll um að bakka frá og ég ætla að byrja að taka myndir.

Jóhannes Kr.: Þetta tekur alveg tíma líka?

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður 1: Já, þetta er mjög oft – meira að segja mjög stuttur bið­tími núna. Ef hann hefði verið í útkalli ann­ars staðar þá hefði hann þurft að klára það og koma svo hingað.

Jóhannes Kr.: Hvaða blettir eru þetta? Ef maður setur á sig þessi gler­augu þá sér maður þetta miklu betur.

Tækni­deildin: Það getur verið vís­bend­ing um að þar sé líf­sýni að finna – það er ekki full­komin stað­fest­ing en það getur verið. Það geta líka önnur efni gefið sam­bæri­lega svörun en það er nóg til að við hald­leggjum fatnað eða …

Jóhannes Kr.: Nú ertu með þessi gler­augu en hvaða ljós ertu með?

Tækni­deildin: Þetta eru fjöl­bylgu ljós­gjafar sem lýsa á mis­mun­andi ljós­tíðnum og það er ákveðið end­ur­kast af ákveðnum efnum við slíkt sem gler­augun hjálpa svo til við að sía út umfram­ljós og gera end­ur­kastið sýni­legra.

Jóhannes Kr.: Nú er bara alveg dimmt inni í her­berg­inu nema þetta ljós og þá sér maður þessa bletti.

Tækni­deildin: Af því að önnur ljós­mengun truflar. Oftast sjást þeir ekki með berum augum ef þetta er slíkur blettur.

Jóhannes Kr.: Og í svona rýmum er nátt­úr­lega fullt af líf­sýnum úr fólk­inu sem hefur verið hérna.

Tækni­deildin: Jú, það geta verið húð­frumur og annað – það myndi ekki lýsa það upp –v meira svona eins og – getur verið sæði eða þvag eða eitt­hvað slíkt.

Jóhannes Kr.: Nú ertu að taka þessa sæng sem að það voru blettir í … 

Tækni­deildin: … þetta eru bréf­pokar sem við setjum svona sýni í ef það skyldi vera raki eða eitt­hvað í þessu, þá getur það myglað í plast­pokum.

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður 1: Þetta eru Bylgja og Drífa – ef þú kveikir ljósið fyrir mig. Ég ætla bara aðeins að leyfa þeim að sjá hvort við séum ekki örugg­lega á réttum stað. Það er gengið hérna inn – pínu­lít­ill skúr – hægra megin rúm – síðan er eld­hús­krókur og bað­her­bergi hérna inni.

Drífa: Er ekki gluggi fyrir ofan rúmið?

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður 1: Jú.

Bylgja: Og svo beint á móti inn­gang­inum er ein­hver hurð, er það inn á lítið kló­sett?

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður 1: Já.

Bylgja: Já, þá erum við bara mjög lík­lega á réttum stað.

Jóhannes Kr.: Þetta skiptir öllu máli í auð­vitað rann­sókn máls­ins þetta starf hérna – tækni­deild­ar­innar?

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður 1: Skiptir rosa miklu máli upp á að geta stað­sett brota­þol­ann hérna.

Jóhannes Kr.: Það er eitt, vinnan hérna hjá tækni­deild­inni, en hvað tekur svo við? Það er hell­ings vinna eftir, er það ekki?

Tækni­deildin: Jú, það fer svo­lítið eftir hvað rann­sókn­ar­lög­reglu­menn­irnir sem stjórna mál­inu biðja um. Það getur verið smá­sjár­grein­ing – sent út í DNA-rann­sókn og í sumum til­vikum getum við not­ast við líf­sýnaryksugu og getum jafn­vel fundið húð­frumur af mann­eskju sem hefur verið á ein­hverjum stað.

Á TÆKNIDEILDINNI

Ég leit í heim­sókn á tækni­deild­ina og hitti þar Vigni Örn Odd­geirs­son, yfir­mann deild­ar­innar.

Vignir ÖrnYfir­maður tækni­deil­ar­innar skýrir ferlið sem þar er unnið eftir.

Vignir: Við til­heyrum lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en tækni­deild og deild­irnar sem eru hér þjón­usta allt landið og öll emb­ætti, þannig að við ferð­umst um landið án landamæra. Hlutverk okkar á vett­vangi er að við reynum að safna öllum mögu­legum gögnum og hluti af okkar vinnu er líka að geta sagt að eitt­hvað sé ekki til staðar.

Jóhannes Kr.: Ég hef fylgst með einni hús­leit og hand­töku og svo kom tækni­deildin strax í kjöl­farið og það var verið að nota ein­hver ljós og hald­lagðir ýmsir munir – og svo koma þeir í hús.

Vignir: Það nátt­úr­lega byrjar allt á skrán­ingu. Hér fer ekk­ert til rann­sóknar nema að það sé skráð og fái sinn vörslu­feril. Og svo fer það bara eftir því hvað þarf að gera við hlut­inn, þarf hann að skoð­ast með til­liti til líf­sýna? Þá fer hann upp á þær rann­sókn­ar­stofur til sér­fræð­inga þar.

Jóhannes Kr.: Heyrðu, já, við erum komnir hérna inn í frekar stórt her­bergi og hér er stórt borð í miðj­unni og það eru lampar hérna og ein­hver tæki og fullt af mynda­vélum. Það er smá­sjá hérna og ég veit ekki hvað og hvað – það er fullt af dóti hérna, Vignir, og það er fólk að vinna hérna.

Vignir: Jú, jú, hérna eru þau Björgvin og Guðný. Hér taka þau sem sagt við þeim fatn­aði og munum og sýnum sem eru hald­lögð á vett­vangi og líka á neyð­ar­mót­töku þolenda kyn­ferð­is­af­brota upp á spít­ala.

Sér­fræð­ingar að störfumBjörgvin og Guðný eru sér­fræð­ingar í líf­sýna­rann­sóknum.

Björgvin og Guðný eru bæði sér­fræð­ingar í líf­sýna­rann­sóknum. Hér heyrum við fyrst í Björg­vini og svo Guðnýju.

Jóhannes Kr.: Hvað skiptir mestu máli þegar gögnin eru komin hingað upp til ykkar?

Björgvin: Að þau séu ómenguð – rétt skráð – allt inn­siglað og við síðan rjúfum inn­siglið á þeim pokum eða umbúðum sem inni­halda gögnin.

Jóhannes Kr.: Ykkar vinna á þess­ari rann­sókn­ar­stofu, hún getur og hefur í mörgum málum úrslita­á­hrif á feril máls­ins, sama hvort það er til sektar eða sýknu. Hvernig líður ykkur með það?

Guðný: Við lítum kannski meira á okkur sem hluta af keðju. Það er nátt­úr­lega ein­hver sem kemur með þetta inn og ein­hver sem hefur haft ein­hverja hugsun á bak við það og svo er það þá okkar að pikka það upp eða stað­festa að eitt­hvað sé ekki til staðar. Auðvitað getur það alveg verið íþyngj­andi í erf­iðum og stórum málum að maður hugsi sér hvort maður hafi pott­þétt gert allt nógu vel. En við fylgjum bara ákveðnu kerfi hér. Maður verður bara að bera höf­uðið hátt um að maður hafi fengið góða þjálfun og viti hvað maður sé að gera.

Jóhannes Kr.: það er rýnt í alla ykkar ferla af verj­endum til dæmis. Þið þurfið að skrá þetta vel og vinnu­brögðin þurfa að vera eftir bók­inni, er það ekki rétt skilið hjá mér?

Guðný: Jú, algjör­lega. Hér er einmitt unnið eftir verk­lags­reglum sem við höfum skapað og maður rýnir ekki í neitt nema það sem maður er með fyrir framan sig þar sem við í raun­inni látum sönn­un­ar­gögnin tala sínu máli. Hér er ekk­ert búið til og ekk­ert tekið frá. Hér er bara það sem er fyrir framan mann og maður gerir nátt­úr­lega sitt allra besta til að skila af sér góðu verki í hvert sinn.

Ég er kom­inn niður á lög­reglu­stöð­ina við Hlemm. Þar er Drífa að und­ir­búa skýrslu­töku.

Drífa: Já, ég er að fara í skýrslu­töku yfir manni sem var hand­tek­inn áðan vegna gruns um kyn­ferð­is­brot um helg­ina.

Jóhannes Kr.: Það er tengt þessu leigu­bíla­máli.

Drífa: Já, það er tengt leigu­bíla­mál­inu og það er sá sem við teljum vera mein­tan ger­anda í mál­inu.

Jóhannes Kr.: Finnst þér skrýtið að hann hafi verið kom­inn á vett­vang­inn?

Drífa: Það gefur nátt­úr­lega ein­hverja vís­bend­ingu um að hann hafi verið að flýja eða ætlað að koma sér undan eða eitt­hvað svo­leiðis. Hversu langt hann ætl­aði að fara veit ég ekki en það er alla­vega vís­bend­ing um það, þannig að við ætlum að skoða mögu­leik­ana á far­banni í fram­hald­inu.

Daginn eftir var ákveðið að fara fram á far­bann yfir báðum sak­born­ingum. Hér er Bylgja lög­reglu­full­trúi að und­ir­búa far­banns­kröf­una.

FARBANN Á FÖSTUDEGI

Bylgja: Klukkan þrjú verður aðil­inn sem er hérna í geymslu fluttur í far­banns­úr­skurð í Hér­aðs­dómi Reykja­ness núna klukkan þrjú. Ég er búin að boða hinn aðil­ann í skýrslu­töku klukkan hálf fjögur og svo var ég að fá sím­tal núna um það að mögu­lega gætum við fengið far­banns­úr­skurð á hann klukkan fjögur. Þannig að í stað­inn fyrir að ég geri þetta hér og lendi í traffík og leið­indum þá ætla ég bara að fara inn í Hafn­ar­fjörð og taka skýrsl­una þar og þannig stytta alla ferla.

Bylgja: Ég ætla að gera þetta í dómnum.

Lilja: Hún er ekk­ert að gera þetta inn á löggu­stöð.

Bylgja: Ég ætla ekk­ert að gera þetta á löggu­stöð­inni. Ég ætla bara að fara í dóm­inn og taka skýrsl­una af honum þar.

Lilja: Ég er bara að spá í hvort ég þurfi að gera ein­hverja papp­íra?

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður 1: Ertu með rými þar?

Bylgja: Ekki hug­mynd.

Lilja: Ætlarðu að gera þetta í lyft­unni bara?

Bylgja: Við reddum okkur bara – þá gerum við þetta bara úti í bíl – mér er drullu­sama  sko. Í lyft­unni (hlær).

Lilja: Inni á kló­setti?

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður 1: En af hverju ekki bara inni á Hafn­ar­fjarð­ar­stöð­inni og við fáum bara fylgd þangað?

Bylgja: Við gætum gert það, sko.

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður 1: Það er eig­in­lega skyn­sam­legra.

Bylgja: En ég er aðal­lega að hugsa um túlk­inn og þetta er að púsla saman alveg fullt af liði, sko.

Lilja: Það sem ég var að spá í – eigum við að prenta út ein­hverjar mæt­ing­ar­skýrslur?

Bylgja: Ég er einmitt að ná í svona …

Lilja: … ætlarðu að gera svona old fas­hion?

Bylgja: Já, já.

Lilja: Nennirðu því?

Bylgja: Jú, þú mátt gera fyrir mig mæt­ing­ar­skýrslu og túlka­blaðið.

Bylgja: Það sem þarf að ganga upp er að ég geti tekið skýrslu af sak­born­ingnum, gert sam­an­tekt í hvelli, prentað hana út til þess að það sé hægt að afhenda dóm­ara til þess að það sé hægt að taka ákvörðun. 

Jóhannes Kr.: Þarna er ákæru­sviðið að fara fram á far­bann yfir tveimur mönnum?

Bylgja: Já og það var búið að fá tíma fyrir annan þeirra og nú er sá síð­ari, sko.

Jóhannes Kr.: Og meta það hvort hann sé við­rið­inn málið sem sak­born­ingur þá?

Bylgja: Já – eða í raun og veru förum við fram á far­bann af því okkur vantar enn þá gögn til þess að geta hrakið eða stað­fest þá frá­sögn hins sak­born­ings­ins.

Jóhannes Kr.: Klukkan er að verða hálf þrjú á föstu­degi og þá þarf að takast á við þetta?

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður 1: Heyrðu, við erum bara á góðum tíma, sko.

Bylgja: Ég sendi hérna: sæll Helgi, heyrðu í mér hið fyrsta – smá breytt plan. Túlk­ur­inn er í dómi í Hafn­ar­firði klukkan 15:00. Ég ætla að taka skýrsl­una í Hafn­ar­firði því að það er fyr­ir­hugað að fara fram á far­bann klukkan 16:00 á hendur ……

Bylgja: Ég held að það sé best ef við mögu­lega getum gert þetta inni í hér­aðs­dómi – fengið bara ein­hverja smá kytru, sko.

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður 1: Það er nátt­úr­lega,  lög­manna­her­bergið er þarna …

Bylgja: … já, við getum kannski bara fengið að nota það.

Bylgja: Nú erum við bara komin fyrir utan Hér­aðs­dóm Reykja­ness og ætlum að fara inn og freista þess að fá aðstöðu þar til að taka skýrslu.

Jóhannes Kr.: Við erum að fara inn í lyft­una hérna í hér­aðs­dómi. Hvað tekur svo við næst hjá þér? 

Bylgja: Nú ætla ég að heyra í þeim hérna uppi hvor ég hafi tæki­færi til að not­ast við eitt her­bergi þarna til að gera mig klára fyrir skýrslu­töku. Svo koma þau í skýrslu­tök­una ef allt gengur að óskum og þá reynum við að klára það í hvelli.

Tveir lög­reglu­menn fylgdu sak­born­ingnum í hér­aðs­dóm og bíða með honum á gang­inum fyrir framan dóm­sal­inn. 

Bylgja: Heyrðu, nú bara bíður hann eftir því að dóm­ari taki við­tal við hann í dómnum. Ef allt gengur eins og það ætti að ganga þá náum við kannski að taka skýrslu af hinum sak­born­ingnum – bara um leið og hann mætir í hús. Og túlk­ur­inn er til­bú­inn til að koma og túlka – þetta er svo­lítið mikið púsl þegar það eru erlendir aðilar, sko. Þegar ég er búin að því þá þarf ég að gera stutta sam­an­tekt sem ákær­andi þarf að geta notað í far­banns­kröf­unni.

Jóhannes Kr.: Nú er klukkan orðin korter yfir fjögur.

Bylgja: Já.

Jóhannes Kr.: Það er búinn að vera asi á þér?

Bylgja: Já, þetta er búið að vera svona smá, hvað á maður að segja, finna lausnir – vinna í lausnum.

Jóhannes Kr.: Tölum um þetta betur í bílnum.

Bylgja: Já, ég ætla líka að spyrja þau aðeins út í far­bannið – ég spurði ekki einu sinni hvernig það fór en mér heyrð­ist það hafa verið sam­þykkt.

Jóhannes Kr.: Hvernig fór þetta?

Bylgja: Þetta fór þannig að báðir aðilar voru settir í far­bann og eru til­kynn­ing­ar­skyldir og þurfa þar af leið­andi að mæta á lög­reglu­stöð þrjá daga vik­unnar, mánu­daga, mið­viku­daga og föstu­daga, og láta vita af sér. Þá er stað­fest að þeir séu hérna á landi.

ÖLL SÖNNUNARGÖGN TRYGGÐ

Hér erum við stödd, sex sól­ar­hingum eftir að lög­reglan hóf rann­sókn og báðir sak­born­ingar hafa verið úrskurð­aðir í far­bann. Það hefur verið lær­dóms­ríkt fyrir mig að vera Á VETTVANGI og sjá hvað mikið var lagt í málið frá byrjun þar sem allt gekk út á að tryggja sönn­un­ar­gögn og fram­burði sak­born­inga og brota­þola. Tugir lög­reglu­manna komu að rann­sókn máls­ins frá því brotið var til­kynnt og þar til báðir sak­born­ingar voru hand­teknir. Auk lög­reglu­manna komu ýmsir sér­fræð­ingar að mál­inu innan stoð­deilda lög­regl­unnar, lög­menn – bæði verj­endur og rétt­ar­gæslu­maður, lög­fræð­ingar lög­reglu­emb­ætt­is­ins, dóm­arar, starfs­fólk neyð­ar­mót­töku og túlkar fyrir sak­born­inga. 

Sex sól­ar­hringum síðarRann­sóknin á leigu­bíl­stjóra­mál­inu er langt komin og báðir sak­born­ingar hafa verið úrskurð­aðir í far­bann.

Jóhannes Kr.: Er þetta stórt mál eða hvernig mynd­irðu skil­greina þetta miðað við öll málin sem þú hefur unnið?

Drífa: Þetta mál var svo­lítið yfir­grips­mikið af því að það var svo margt sem þurfti að skoða. Þetta varð ein­hvern veg­inn – þetta vatt svo upp á sig, þetta mál. Það kannski byrj­aði svona eins og hefð­bundið en svo kom bara meira og meira og meira í ljós og meira sem þurfti að skoða.

Jóhannes Kr.: Nú er rann­sóknin á þessu leigu­bíla­máli langt komin. Hvað eruð þið að gera núna í mál­inu?

Ævar: Það er verið að leggja loka­hönd á utan­um­hald og frá­gang í mál­inu á þeim gögnum sem búið er að afla. Við erum líka að bíða eftir gögnum frá ytri aðilum, til dæmis rann­sókn­ar­stofu sænsku lög­regl­unnar þangað sem líf­sýni voru send til kennsla­grein­ingar. Það tekur alltaf nokkrar vikur.

HVERT GETA BROTAÞOLAR LEITAÐ?

Jóhannes Kr.: Það getur verið að ein­hverjir sem hafa verið að hlusta á þennan þátt að þeim líði illa og vilji segja frá brotum – Ævar, hvert geta þessir aðilar leitað?

Ævar: Þau geta til dæmis byrjað á að fara inn á 112.is eða inn á lög­reglan.is eða bara hringja í 112. Þau geta leitað til Bjark­ar­hlíðar, Stíga­móta. Fólk getur leitað á heilsu­gæslu­stöðv­arnar sínar og ungt fólk getur leitað til skóla­hjúkr­un­ar­fræð­ings. Það er bara númer eitt, tvö og þrjú að segja frá – ein­hverjum sem þú treystir og taka síðan skrefið áfram.

Í NÆSTA ÞÆTTI

Í næsta þætti Á vett­vangi höldum við áfram að kynn­ast starf­inu og starfs­fólk­inu á kyn­ferð­is­brota­deild­inni og fylgj­umst meðal ann­ars með þessu máli.

Fjölnir: Við gerðum hús­leit­ar­kröfu og það er komið frá dóm­ara að við megum gera hús­leit og ætlum þá að gera það í fyrra­málið. Ég er bara að und­ir­búa mig núna og er búinn að vera að hringja í tækni­deild­ina sem ég ætla að fá með mér til að taka ljós­myndir og svo tölvu­rann­sókn­ar­deild­ina af því að þetta mál snýst bara um raf­ræn gögn.

Jóhannes Kr.: En hvað með sak­born­ing­inn? Hann veit ekk­ert af því að þið séuð að fara í þetta?

Fjölnir: Hann á ekki að vita neitt. Við erum búnir að vera að fylgj­ast með honum og búnir að kom­ast að því hvar hann vinnur og erum búnir að sirka út að hann á að vera heima á morgun. Og við miðum við það að fara eftir að skólar og leik­skólar byrja. Við höldum að hann verði heima þá og þá bara bönkum við upp á – erum með hús­leit­ar­heim­ild og kynnum okkur sem lög­reglu og hefjum hús­leit. Hann verður svo hand­tek­inn í fram­hald­inu og færður til yfir­heyrslu.


Halldór Gunnar Pálsson hann­aði hljóð­heim og stef þátt­ar­ins. Ef ein­hverjir vilja koma til mín ábend­ingum þá er net­fang þátt­ar­ins: avettvangi@heimildin.is
Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Á vettvangi

Vont að senda varnarlausar konur aftur í sömu stöðu
Á vettvangi

Vont að senda varn­ar­lausar konur aftur í sömu stöðu

Jóhanna Erla Guð­jóns­dóttir er félags­ráð­gjafi á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans. Þar tekst hún á við myrk­ustu hliðar mann­lífs­ins, en seg­ist helst reið­ast yfir því að rekast á sömu vegg­ina aftur og aftur, þegar úrræðin eru engin. Til dæmis varð­andi konur sem búa á göt­unni, verða fyrir ofbeldi og eiga sér hvergi skjól. Þrátt fyrir áskor­anir segir hún starfið það besta í heimi.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár