Ekki bara beinbrot og skurðir heldur líka bráð andleg veikindi

Aukning í komum fólks með and­lega van­líðan veldur áskor­unum á bráða­mót­töku. Skortur á rými og óhent­ugt umhverfi fyrir við­kvæma sjúk­linga skapa erf­ið­leika fyrir heil­brigð­is­starfs­fólk. „Okkur gengur svo sem ágæt­lega en svo er það bara hvað tekur við. Það er flókið,“ segir hjúkr­un­ar­fræð­ingur á bráða­mót­tök­unni.

Ekki bara beinbrot og skurðir heldur líka bráð andleg veikindi
Björgun Teymi lækna, hjúkr­un­ar­fræð­inga, sjúkra­liða og sér­hæfðra starfs­manna sinnir sjúk­lingi sem var fluttur á bráða­mót­tök­una eftir sjálfs­vígstil­raun. Mynd: Jóhannes Kr. Kristjánsson

Á nán­ast hverri ein­ustu vakt koma sjúk­lingar á bráða­mót­tök­una þar sem vanda­mál við komu er skráð and­leg van­líðan. Sjúk­ling­arnir koma sjálfir í gegnum bið­stof­una, sumir með sjúkra­bílum og stundum, í mjög alvar­legum til­vikum, eru sjúk­ling­arnir fluttir með þyrlu ef þeir búa úti á landi. Þessi flokkun, and­leg van­líðan, nær utan um mjög marga hluti en alvar­leg­asta ástæðan er þegar ein­stak­lingur er fluttur á bráða­mót­tök­una eftir sjálfs­vígstil­raun.

Hjördís Krist­ins­dóttir, bráða­hjúkr­un­ar­fræð­ingur og deild­ar­stjóri bráða­mót­tök­unnar, segir vanda fólks­ins sem leitar til þeirra vegna and­legrar van­líð­unar oft með fjöl­þættan vanda. „Þetta er bara mjög umfangs­mikið verk­efni hérna hjá okkur. Við erum alltaf opin og fólk leitar hingað til okkar og núna í febr­úar tókum við út tvær vikur og horfðum á þær og þá vorum við með yfir hund­rað komur og sumir ein­stak­lingar hafa fleiri en eina komu. Þannig að verk­efnið er líka mjög fjöl­breytt innan þessa hóps því að and­leg van­líðan getur …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Á vettvangi

Á vettvangi

Vont að senda varn­ar­lausar konur aftur í sömu stöðu

Jóhanna Erla Guð­jóns­dóttir er félags­ráð­gjafi á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans. Þar tekst hún á við myrk­ustu hliðar mann­lífs­ins, en seg­ist helst reið­ast yfir því að rekast á sömu vegg­ina aftur og aftur, þegar úrræðin eru engin. Til dæmis varð­andi konur sem búa á göt­unni, verða fyrir ofbeldi og eiga sér hvergi skjól. Þrátt fyrir áskor­anir segir hún starfið það besta í heimi.

9 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár