Hitabylgjan í Suður-Evrópu: „Ekki eðlilegt“

Tíu pró­senta aukn­ing er á því að fólk leiti á bráða­mót­tökur á Ítalíu vegna hitaslags. Helst eru það aldr­aðir, krabba­meins­sjúk­lingar og heim­il­is­lausir sem hafa þurft að leita sér aðstoðar vegna ofþorn­unar, hitaslags og alvar­legrar þreytu.

Hitabylgjan í Suður-Evrópu: „Ekki eðlilegt“
Frá Costa da Caparica strönd­inni í Almanda í Portúgal, nálægt Lissabon, í gær. Mynd: AFP

Yfirvöld í nokkrum löndum suð­ur­hluta Evrópu hafa gefið út við­var­anir vegna heilsu­fars­á­hættu og skóg­ar­elda þar sem búist er við að hit­inn auk­ist enn frekar á næstu dögum.

Í Frakk­landi, Ítalíu, Portúgal og Spáni hefur verið mik­ill hiti síðstu daga en víða hefur hit­inn farið allt upp í 44 gráður. 

„Þetta er for­dæma­laust,“ sagði Agnes Pannier-Runacher, umhverf­is­ráð­herra Frakk­lands, en í dag voru 84 af 96 hér­uðum á meg­in­landi Frakk­lands sett á annað hæsta við­vör­un­ar­stig vegna hita, hið svo­kall­aða „app­el­sínugula“ stig.

Aðeins lítið svæði í norð­vest­ur­hluta Frakk­lands slapp við hita­bylgj­una, sam­kvæmt veð­ur­stof­unni Météo France, sem spáir því að hit­inn eigi eftir að ná hámarki á þriðju­dag og mið­viku­dag.

Yfirvöld í löndum við norð­ur­strendur Mið­jarð­ar­hafs­ins hvetja fólk ein­dregið til að halda sig inn­an­dyra, þar sem þetta er fyrsta alvar­lega hita­bylgjan í sumar.

Sjúkra­bílar hafa verið settir í við­bragðs­stöðu nálægt vin­sælum ferða­manna­stöðum, þar sem sér­fræð­ingar vara við að slíkar hita­bylgjur, sem aukast í tíðni og styrk vegna lofts­lags­breyt­inga, verði sífellt algeng­ari.

Slökkvi­lið er einnig í við­bragðs­stöðu eftir að eldar kvikn­uðu í Frakk­landi og Tyrk­landi á sunnu­dag og breidd­ust út með sterkum vindum í hit­anum.

Í síð­ustu viku þurftu grískir slökkvi­liðs­menn að glíma við skóg­ar­bál suður af Aþenu, sem varð til þess að rýma þurfti nokkur svæði.

„Ekki eðlilegt“ 

Spænska veð­ur­stofan AEMET greindi frá því að hit­inn hefði á sunnu­dag náð allt að 44 gráðum í hér­uð­unum Extrema­dura og Andalúsíu í suður- og suð­vest­ur­hluta lands­ins.

Í Madríd, þar sem hit­inn fór nálægt 40 gráðum, sagði ljós­mynd­ar­inn Diego Radames, 32 ára, við AFPTV: „Mér finnst þessi hiti ekki vera eðli­legur fyrir þennan árs­tíma.“

„Með hverju árinu sem líður finnst mér eins og hit­inn auk­ist í Madríd – sér­stak­lega í mið­borg­inni,“ bætti hann við.

Á Ítalíu hafa 21 borg víðs vegar um landið verið settar í hæsta við­vör­un­ar­stig vegna hita – þar á meðal Mílanó, Napólí, Feneyjar, Flórens, Róm og Catania.

„Við ætl­uðum að skoða Colosseum, en það leið næstum yfir mömmu mína,“ sagði breska ferða­konan Anna Becker, sem hafði komið til Rómar frá „mollu­legu og leið­in­legu“ veðri í Verona.

Bráða­mót­tökur á ítölskum sjúkra­húsum hafa greint frá 10 pró­senta fjölgun hitaslaga, að sögn Mario Guarino, vara­for­manns ítalska bráða­lækna­fé­lags­ins.

„Þetta eru helst aldr­aðir ein­stak­lingar, krabba­meins­sjúk­lingar og heim­il­is­lausir sem leita sér aðstoðar vegna ofþorn­unar, hitaslags og alvar­legrar þreytu,“ sagði hann við AFP.

„Tíðari og ákafari“ 

Fyrir stór svæði í suð­ur­hluta Portú­gals, þar á meðal í Lissabon, hefur í dag verið gefin út rauð við­vörun vegna hit­ans, sam­kvæmt portú­gölsku sjávar- og lofts­lags­stofn­un­inni IPMA.

Tveir þriðju hlutar lands­ins voru á sunnu­dag á mik­illi hættu vegna hita og mögu­legra skóg­ar­elda – eins og einnig Sikiley, þar sem slökkvi­lið þurfti að bregð­ast við fimmtán eldum á laug­ar­dag.

Vís­inda­menn segja lofts­lags­breyt­ingar valda bæði tíð­ari og öfga­fyllri hita­bylgjum, einkum í borgum þar sem svokölluð „borg­ar­hita­virkni“ (e. urban heat island effect) veldur því að hiti magn­ast upp á milli bygg­inga og í steyptu umhverfi.

„Hita­bylgjur á Mið­jarð­ar­hafs­svæð­inu hafa orðið tíð­ari og ákaf­ari á und­an­förnum árum,“ segir Emanuela Piervitali, vís­inda­maður hjá ítölsku umhverf­is­rann­sókna­stofn­un­inni ISPRA.

„Við búumst við frek­ari hækkun hita­stigs og fleiri öfgum í fram­tíð­inni, svo við verðum að venj­ast því að hámarks­hita­stig fari enn hærra en við sjáum núna,“ sagði hún við AFP.

Ágengar tegundir 

Auk hit­ans hefur hlýn­andi lofts­lag leitt til þess að fram­andi og ágengar teg­undir hafa náð fót­festu í sjónum við suð­ur­hluta Evrópu.

ISPRA hefur nú hrundið af stað her­ferð þar sem sjó­menn og ferða­menn eru hvattir til að til­kynna um „mögu­lega hættu­legar“ eitr­aðar fisk­teg­undir sem nú eru farnir að sjást í sjónum við suð­ur­strendur Ítalíu með hækk­andi hita­stig Mið­jarð­ar­hafs­ins.

Í Frakk­landi hafa vís­inda­menn jafn­framt varað við því að hit­inn hafi veru­lega nei­kvæð áhrif á líf­fræði­legan fjöl­breyti­leika.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þorkell Egilsson skrifaði
    Það vantar vakningu í þessum efnum…Atriðin sem hér eru nefnd í greininni eru engar upplognar fals fréttir til að svipta fólk mannréttindum og skattleggja borgaralegar aðstæður og réttindi okkar mannanna. Þessar fréttir eru frá raunverulegum niðurstöðunum af mælingum tækja og gagna frá náttúrunni sjálfri.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár