Meðalbiðtími hjá endómetríósuteymi 68 dagar

Biðtími eftir aðgerðum vegna endó­metríósu hefur verið um 39 dagar en biðlistar eru innan við­mið­un­ar­marka Embættis land­læknis.

Meðalbiðtími hjá endómetríósuteymi 68 dagar
Alma Möller Heil­brigð­is­ráð­herra segir að teymi Land­spít­al­ans telji sig hafa burði til að taka við auknum fjölda sjúk­linga með endó­metríósu. Mynd: Golli

Þrettán sjúk­lingar bíða eftir þjón­ustu hjá endó­metríósuteymi Land­spít­al­ans, þar af einn sjúk­lingur sem beðið hefur lengur en í 90 daga. Af þessum 13 sjúk­lingum hafa sex þegar fengið bók­aðan tíma á næstu vikum. Með­al­bið­tími og mið­gildi bið­tíma eftir þjón­ustu eru 68 dagar.

Þetta kemur fram í svari Ölmu Möller heil­brigð­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn Diljár Mistar Ein­ars­dóttur, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, á Alþingi.

Miðgildi bið­tíma eftir aðgerð hefur verið 39 dagar hjá Land­spít­al­anum í ár, sama hvort um er að ræða stað­festa grein­ingu endó­metríósu eða grun um hana.

Þá sinna Heil­brigð­is­stofnun Vest­ur­lands og Klíníkin einnig þessum sjúk­linga­hópi. Klíníkin fram­kvæmdi 202 aðgerðir í fyrra og Heil­brigð­is­stofnun Vest­ur­lands sinnti 32 ein­stak­lingum á sama tíma. Land­spít­al­inn fram­kvæmdi 39 aðgerðir á ein­stak­lingum með stað­festa endó­metríósu í fyrra og 44 þar sem grunur lék á um endó­metríósu.

Ekki vitað hvað margir eru greindir

Embætti land­læknis hefur ekki upp­lýs­ingar um hversu margir séu greindir með endó­metríósu á Íslandi þar sem laga­heim­ild til að kalla eftir þeim upp­lýs­ingum skorti þar til nýverið. „Samkvæmt Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­inni (WHO) er áætlað að endó­metríósa hrjái um 10% kvenna á barn­eigna­aldri á heims­vísu,“ segir í svar­inu. „Þessi áætlun gefur ákveðna vís­bend­ingu um algengi sjúk­dóms­ins en ekki um nákvæman fjölda greindra ein­stak­linga hér á landi. Ekki liggja fyrir áform um að skrá­setja endó­metríósu sér­stak­lega, enda eru engin sér­tæk laga­á­kvæði sem kveða á um slíka skrá. Hins vegar ættu gögn að verða þekj­andi eftir áður­nefnda laga­breyt­ingu.“

„Áætlað að endó­metríósa hrjái um 10% kvenna á barn­eigna­aldri á heims­vísu“

Í svar­inu kemur fram að kven­lækn­ingateymi Land­spít­al­ans telji sig hafa getu og burði til að taka við auknum fjölda sjúk­linga með endó­metríósu. „Teymið hefur burði til að bæta við sig bæði ein­fald­ari kvið­sjárað­gerðum og flókn­ari skurð­að­gerðum vegna endó­metríósu,“ segir í svar­inu.

„Biðlistar eru innan þeirra við­mið­un­ar­marka sem emb­ætti land­læknis hefur sett og núver­andi með­al­bið­tími eftir kvið­sjárað­gerð er um 1,3 mán­uðir frá fyrstu komu á göngu­deild að fram­kvæmd aðgerðar,“ segir enn­fremur. „Auk þess eru á hverjum tíma 60–80 ein­stak­lingar í virkri þver­fag­legri með­ferð á spít­al­anum.“

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár