Vilja flagga friðarfána

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn í borg­inni vill láta hanna sér­stakan frið­ar­fána Reykja­vík­ur­borgar sem dreg­inn verði að húni dag­lega. Erlendir þjóð­fánar víki í stað­inn.

Vilja flagga friðarfána
Ráðhús Reykja­víkur Með frið­ar­fán­anum verður ástæðu­laust að draga erlenda þjóð­fána að húni, að því segir í til­lög­unni. Mynd: Davíð Þór

Hildur Björns­dóttir og Kjartan Magn­ús­son, full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­ar­ráði, lögðu á fundi ráðs­ins á fimmtu­dag til að Reykja­víku­borg léti hanna og fram­leiða sér­stak­ann frið­ar­fána Reykja­vík­ur­borgar.

Fáninn yrði dreg­inn að húni dag­lega við Ráðhús Reykja­víkur fyrir utan þá átta rauðu daga sem ekki eru fána­dagar, enda hús­verðir ekki að störfum þá daga.

„Frið­ar­fán­inn verði tákn­mynd þess að Reykja­vík­ur­borg er yfir­lýst frið­ar­borg enda starf­rækir höf­uð­borgin Höfða frið­ar­setur og heim­ili Frið­ar­súl­unnar er í borg­inni,“ segir í til­lögu Hildar. „Með frið­ar­fán­anum verði ástæðu­laust að draga erlenda þjóð­fána að húni við Ráðhúsið í stríðs­á­tökum erlendis enda standi höf­uð­borgin ávallt með friði.“

Þá lögðu borg­ar­full­trú­arnir einnig til að íslenski þjóð­fán­inn verði dreg­inn að húni við Ráðhús Reykja­víkur alla daga árs­ins fyrir utan áður­nefnda átta rauða daga.

Báðum til­lög­unum var á fund­inum vísað til með­ferðar for­sætis­nefndar.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár