Má gera hvað sem er við sálir Rússlands?

Daría Sal­tykova var grimmd­ar­seggur og morð­ingi í Rúss­landi á 18. öld. Þegar Katrín mikla tók við völdum í land­inu stóð hún frammi fyrir óvæntu vanda­máli af þeim sökum

Má gera hvað sem er við sálir Rússlands?
Refs­ingar voru harðar í Rúss­landi 18. aldar eins og raunar víðar. Þessi mynd, sem gæti verið af Sal­tytjíku að húð­strýkja eina af þræla­stúlkum sínum, er reyndar af aðals­kon­unni Lópukínu, sem Elísabet keis­ara­ynja lét húð­strýkja opin­ber­lega allsnakta (þótt teikn­ar­inn hafi ekki treyst sér til að sýna það) og síðan skera úr henni tung­una. Katrín mikla má eiga að hún reyndi að draga úr refsi­hörkunni.

Þar var komið sög­unni um Daríu Sal­tykovu – eða Sal­tytjíku – að hún var orðin ekkja aðeins 25 ára gömul og réði yfir land­ar­eign þar sem púl­uðu fyrir hana 600 sálir, það er að segja þrælar, því slík var ánauð bænda­fólks­ins í Rúss­landi að þar var í raun um ein­skæran þræl­dóm að ræða.

Það var 1755 sem hún missti mann­inn sinn, einn ætt­ar­lauk hinnar vold­ugu og auð­ugu Saltykov-fjöl­skyldu en sjálf var hún raunar líka af valda­miklum land­eig­enda- og emb­ætt­is­aðli við hirð Romanov-keisar­anna. Eig­in­mað­ur­inn Gleb hafði verið höf­uðs­maður í líf­varða­sveitum keis­ar­ans og þau áttu tvo unga syni sem báðir voru skráðir í þær sömu sveitir við fæð­ingu.

Ekki er þó vitað til þess að Saltykov-hjónin hafi komið að ráði nálægt keis­ara­hirð­inni og  eftir að Gleb dó virð­ist Sal­tytjíka hafa haldið sig ein­göngu á land­ar­eign sinni, sem var í grennd við Moskvu, nema þegar hún fór í eins konar píla­gríms­ferðir til ýmissa klaustra hér og hvar í Rúss­landi.

Sleppti fram af sér beislinu

Sal­tytjíka mun nefni­lega hafa verið afar trúuð allt frá unga aldri. Það er hér um bil hið eina sem vitað er með vissu um æskuár hennar og upp­eldi. Sögur eru að vísu til um að hún hafi sætt miklu harð­ræði af hendi for­eldra sinna en það eru senni­lega sögu­sagnir sem spruttu af til­raunum manna til að skýra þann hryll­ing sem ein­kenndi árin eftir að hún varð ekkja og tók fyrst að pína og síðan myrða þræla sína.

Eftir því sem best er vitað voru það líka bara seinni tíma sögu­skýr­ingar er hermt var að Sal­tytjíka hafi myrt eig­in­mann sinn með eitri. Að minnsta kosti er ekk­ert sér­stakt sem bendir til þess, né heldur að Gleb hafi leikið konu sína illa.

En eftir að hann dó sleppti hún þó fram af sér beisl­inu og það sem í ljós kom var ófag­urt. Hún tók nú að ríkja eins og ein­valds­drottn­ing yfir land­ar­eign sinni og tók að sýna þrælum sínum svo ótrú­lega hörku og grimmd að orð fór brátt af.

Bannað að drepa þræla, en ...

Það þurfti þó meira en lítið til. Allir stór­eig­endur máttu í raun fara með þræla sína eins og þeim sýnd­ist og margir þeirra sýndu mikla hörku. Engin lög bönn­uðu eig­endum að refsa sálum sínum fyrir það sem þeir sjálfir kusu að túlka sem mis­gerðir, leti, óhlýðni eða hvað annað. Að vísu var bannað að drepa þræla en þá sjaldan að kvartað var yfir slíku til yfir­vald­anna var málum jafnan drepið á dreif, til dæmis með því að þræl­arnir hefðu ein­fald­lega sýnt hneyksl­an­legan mót­þróa þegar verið var að refsa þeim og þeir sjálfir ættu því sök á dauða sínum.

Sem dæmi um hvers konar með­ferð á þrælum þótti eðli­leg í Rúss­landi má nefna að önnur hefð­ar­frú, sem bar nafnið Sal­tykova, varð kunn fyrir að geyma þræla­stúlku eina, er hún hafði þjálfað til að greiða á sér hárið, í örlitlu búri sem komið var fyrir í snyrti­stofu hennar. Þar mátti stúlkan dúsa árum saman svo hún væri alltaf til taks þegar þessi frú Sal­tykova fékk þá hug­mynd að láta greiða sér.

Og engum þótti ástæða til að gera veður út af þess­ari með­ferð á þræla­stúlkunni.

Sannkristin kona?

Allra fyrstu miss­erin eftir að Daría Sal­tytjíka varð ekkja fór ekki miklum sögum af henni. Hún sinnti búinu og fór í sínar píla­gríms­ferðir, þótt hún ætti reyndar líka fínt hús í Moskvu. Hún var þá orðin feikna­rík því auk arfs­ins eftir Gleb réði hún einnig land­ar­eignum og lausafé bæði móður sinnar og ömmu en þær höfðu þá báðar tekið upp á því að ganga í klaustur og afsöl­uðu sér eigum sínum til Sal­tytjíku.

Segir sig sjálft að þær sögur eru til að Sal­tytjíka hafi með ein­hverjum hætti þvingað móður sína og ömmu til að flýja inn fyrir klaust­ur­múra en um það verður ekki sagt frekar en svo margt annað er að henni lýtur.

Það er til dæmis heldur ekki vitað hvort sönn er sú saga að Sal­tytjíka hafi um skeið átt í ást­ar­sam­bandi við náfrænda Glebs heit­ins, en sá hét Sergei Saltykov og er frægur fyrir að hafa verið fyrsti ást­maður Katrínar miklu keis­ara­ynju. Sergei Saltykov var hæfi­leika­lít­ill dilli­bossi sem fékkst aðal­lega við að „kom­ast yfir konur“ og senni­lega var  hann faðir frum­burðar Katrínar, Páls Romanovs, sem varð Rússa­keis­ari eftir himna­för hennar 1797.

Og sem allir síð­ari „Romanov“ keis­arar voru komnir frá.

Saltytjíka mundar svipuna

Hvað sem því líður, fyrst heyrð­ist kvartað undan því að eitt­hvað veru­lega ósæmi­legt væri á seyði á land­ar­eign Sal­tytjíku árið 1757. Það var strax þaggað niður en næstu árin varð orðrómur um hörku Sal­tytjíku í garð þræla sinna æ hávær­ari. 

Í stuttu máli virð­ist Sal­tytjíka brátt hafa farið að stunda „refs­ingar“ til þess eins að full­nægja ein­hvers konar sad­isma. Lýs­ing­arnar sem til eru eru ægi­legar. Að húð­strýkja þræla fyrir leti, mót­þróa eða hvað annað var alsiða í Rúss­landi og á flestum land­ar­eignum voru sér­stakir menn hafðir til þess arna.

Sal­tytjíka fór hins vegar að stunda húð­strýk­ingar sjálf og gekk alltaf lengra og lengra. Stundum hýddi hún þræla sína, bæði karla og konur, svo ofsa­lega að hún varð örþreytt og varð að hætta mis­þyrm­ing­unum. En þræl­arnir sluppu þó ekki við svo búið því hún fékk þá verk­stjórum sínum vönd­inn eða svip­una og svo var haldð áfram að píska.

Hún átti líka til að rífa með handafli svo til allt hár af kven­fólki, hella yfir þræla sjóð­andi vatni eða á vet­urna að stinga þeim niður í tjarnir sem síðan frusu svo fólk sat þar fast í fimb­ulkulda.

Og svo fram­vegis.

Líkin fara að hrannast upp

Sal­tytjíku var sér­stak­lega upp­sigað við konur, ekki síst ungar konur. Ef hún vissi af því að þræla­stúlka á land­ar­eign hennar var nýgift eða barns­haf­andi, mátti við­kom­andi vara sig, því lík­legra en hitt var að Sal­tytjíka birt­ist brátt með svipu sína og eld­heita klípu­töng á lofti.

En hún sló þó alls ekki hend­inni á móti því að mis­þyrma og drepa unga pilta líka.

Líkin fóru að hrann­ast upp á land­ar­eign hennar og skipt­ust brátt tugum, já, hund­ruðum.

Engin leið er að vita hve lengi hún hefði getað haldið þessu áfram ef ekki fyrir óvænta þróun mála á æðstu stöðum.

Árið 1762 dó Elísabet, keis­ara­ynja Rúss­lands, en hún hafði ríkt í rúm 20 ár. Hún var dóttir Péturs mikla. Við völdum tók syst­ur­sonur Elísa­betar, Pétur 3., en eftir innan við hálft ár á valda­stóli var honum steypt og hann síðan drep­inn. Fyrir valdarán­inu stóð kona hans, hin þýska Katrín, sem nú varð keis­ara­ynja, en hún naut stuðn­ings öfl­ugra hirð­manna er höfðu fyr­ir­litið Pétur 3. af ýmsum ástæðum.

Katrín mikla kemur til skjalanna

Katrín var þýsk í húð og hár og átti í raun­inni ekk­ert til­kall til valda í Rúss­landi, nema son­inn Pál, sem þá var 7 ára og átti að heita af Romanov-ætt­inni, þótt lík­lega hafi hann bara verið sonur Sergei Sal­tykovs, sem fyrr greinir. En Katrín var því í við­kvæmri stöðu fyrstu árin eftir að hún sett­ist í hásætið og virð­ist hafa tekið þann pól í hæð­ina að sýna fram á sem mest frjáls­lyndi og vilja til nútíma­legri stjórn­ar­hátta.

Og það mun hafa verið ástæðan fyrir því að þegar ætt­ingjum nokk­urra þræla, sem Sal­tytjíka hafði myrt, tókst að koma umkvört­unum síðar og bón­ar­bréfum alla leið til hirð­ar­innar í Pét­urs­borg, þá tók Katrín mjög óvæntan pól í hæð­ina.

Og það sem næst gerð­ist er ástæðan fyrir því að sagan um Sal­tytjíku og kvala­losta hennar á sér sess í póli­tískri ævi­sögu Katrínar miklu en ekki bara í glæpa- og grimmd­ar­sögu Rúss­lands á 18. öld.

„Að vísu var bannað að drepa þræla en sjaldan var kvartað yfir slíku til yfir­vald­anna“ 

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár