Borgarstjóraefni New York sem rappaði um ömmu sína

Zohran Mamdani er fyrsti múslim­inn til að tryggja sér til­nefn­ingu Demókra­ta­flokks­ins í emb­ætti borg­ar­stjóra New York, en sömu­leiðis sá yngsti. Mamdani er tákn­mynd vinstri­bylgju í banda­rískri borg­arpóli­tík með áherslu á jöfnuð og vel­ferð. Hann hefur verið gagn­rýndur fyrir reynslu­leysi en líka fyrir stuðn­ing sinn við Palest­ínu.

Borgarstjóraefni New York sem rappaði um ömmu sína
Zohran Mamdani þegar hann ávarp­aði stuðn­ings­fólk sitt eftir að hann var kjör­inn fram­bjóð­andi demókrata til emb­ættis borg­ar­stjóra New York. Í bak­grunni stendur Afford to Live & Afford to Dream en í kosn­inga­bar­átt­unni lagði hann áherslu á að venju­legt fólk hefði efni á að búa í borg­inni. Mynd: AFP

Sigur Zohran Mamdani í for­vali demókraka fyrir borg­ar­stjóra­kosn­ing­arnar í New York hefur vakið mikla athygli, ekki síst fyrir þær sakir að nái hann kjöri verður hann fyrsti múslim­inn til að stýra borg­inni. 

Hann er einnig yngstur til að tryggja sér til­nefn­ingu demókrata til emb­ætt­is­ins en Mamdani er aðeins 33ja ára gam­all. Hann er sonur inn­flytj­enda af ind­verskum upp­runa, fædd­ist í Úganda en flutti sjö ára gam­all með fjöl­skyldu sinni til Banda­ríkj­anna. For­eldrar hans eru Mahmood Mamdani, fræði­maður í stjórn­mála- og mann­fræði og kenn­ari við Columbiaháskóla, og Mira Nair, kvik­mynda­gerð­ar­kona sem meðal ann­ars er þekkt fyrir ind­versku mynd­ina Monsoon Wedding. Mamdani er giftur sýr­lensku lista­kon­unni Rama Duwaji sem hann kynnt­ist á stefnu­móta­for­rit­inu Hinge.

Lagði Cuomo að lokum

Í for­val­inu lagði hann Andrew Cuomo sem er fyrr­ver­andi rík­is­stjóri New York. Cuomo sagði af sér emb­ætti fyrir fjórum árum vegna ásak­ana um kyn­ferð­is­lega áreitni, eftir að þrettán konur sök­uðu hann um að hafa áreitt sig kyn­ferð­is­lega, en hafði stefnt á póli­tíska end­ur­komu með fram­boð­inu nú. Cuomo þótti sig­ur­strang­legur lengi vel en undir lokin var talið nær öruggt að Mamdani myndi standa uppi sem sig­ur­veg­ari. 

Hér taka níu fram­bjóð­endur demókrata þátt í kapp­ræðum í aðdrag­anda kosn­ing­anna en að lokum var ljóst að bar­áttan stóð fyrst og fremst milli Mamdani og Cuomo.

Fyr­ir­fram voru kosn­ing­arnar sagðar mik­il­vægar fyrir mótun demókra­ta­flokks­ins gegn stefnu repúblík­ana undir for­ystu Trump. Þannig hefur árangur Mamdani verið túlk­aður sem áfell­is­dómur yfir þeim armi demókrata sem studdi Cuomo, sem ætlar hins vegar ekki að láta deigan síga og stefnir á óháð fram­boð til borg­ar­stjóra.

Kosn­ing­arnar fara fram í nóv­em­ber og þá ætlar sitj­andi borg­ar­stjóri, demókrat­inn fyrr­ver­andi Eric Adams, að bjóða sig fram til end­ur­kjörs sem óháður fram­bjóð­andi. New York er svo­kallað blátt ríki og er því lík­legt að fram­bjóð­andi demókrata verði kjör­inn í nóv­em­ber. 

Eftir að Mamdani fagn­aði sigri skrif­aði Donald Trump Banda­ríkja­for­seti á sam­fé­lags­miðlinn sinn, Truth Social, að í þetta skiptið hefðu demókratar farið yfir strikið: „Zohran Mamdami, 100% komm­ún­ista­brjál­æð­ingur, var að vinna for­valið hjá demókrötum, og er á leið­inni að verða borg­ar­stjóri.”

Þá hefur þing­maður Repúblík­ana í Tennessee, Andy Ogles, kraf­ist þess að rík­is­borg­ara­réttur Mamdani verði aft­ur­kall­aður og hefur hann sent dóms­mála­ráð­herra bréf þar sem hann hvetur til þess að rann­sakað verði hvort Mamdani hafi fengið rík­is­borg­ara­rétt með „vís­vit­andi rang­færslum eða leynd á stuðn­ingi við hryðju­verka­starf­semi.“ Þessar kröfur Ogles eru hins vegar taldar afar langsóttar ef frá eru taldir harð­línu­repúblík­anar.

Ný nálgun á kosningabaráttu

Mamdani var kjör­inn á rík­is­þing New York fyrir kjör­dæmi í Queens árið 2020, þar sem hann hefur lagt áherslu á hús­næð­is­mál, sam­göngur, umönnun barna og umhverf­is­vernd. Hann til­heyrir bæði Demókra­ta­flokknum og sam­tök­unum Sós­íal­ískir demókratar Banda­ríkj­anna, og er þekktur fyrir skýra vinstri­stefnu sína. 

Hann náði miku fylgi með boðun á fryst­ingu húsa­leigu­verðs, ókeypis dag­vistun og öðrum breyt­ingum sem þykja afar rót­tækar fyrir New York borg. Mamdani talar einnig fyrir ókeypis almenn­ings­sam­göngum og skatt­lagn­ingu auð­manna til að fjár­magna félags­leg umbóta­kerfi.

Hann nýtur vin­sælda meðal ungs fólks og sam­fé­laga inn­flytj­enda í borg­inni en í kosn­inga­bar­átt­unni gerði hann mynd­bönd þar sem hann tal­aði ekki bara ensku heldur einnig til að mynda úrdú og spænsku, og í einu mynd­band­inu birti hann brot úr Bollywoodmynd. Raunar var hann af and­stæð­ingum sak­aður um að hafa notað gervi­greind til að búa til mynd­band af honum tala spænsku en þau sem unnu að kosn­inga­bar­átt­unni birtu þá mynd­brot af honum að æfa sig í spænsku fyrir gerð mynd­bands­ins.

Kosn­inga­bar­átta Mamdani vakti mikla athygli sem bæði frum­leg og skemmti­leg og segja margir að nálgun hans geti haft var­an­leg áhrif á það hvernig kosn­inga­bar­áttur verða háðar í fram­tíð­inni. Í stað hefð­bund­inna aug­lýs­inga treysti hann á stutt, áhrifa­rík og oft húmor­ísk mynd­bönd á sam­fé­lags­miðlum eins og TikTok og Instagram. Hann tal­aði beint til ungs fólks og jað­ar­settra hópa með skap­andi nálgun þar sem hann bland­aði saman póli­tík, menn­ingu og húmor.

Eitt vin­sælasta mynd­bandið sýnir Mamdani dýfa sér í sjó­inn, í jakka­fötum en á tánum, í því skyni að dýfa sér í að skoða nauð­syn þess að frysta leigu­verð.

Í öðru mynd­bandi sést hann sveittur ganga hús úr húsi í sum­ar­hita og segir meðan hann þurrkar sér að hann svitni meira en leigu­sali sem er að hækka leig­una. 

Með þessu gerði hann flókin mál­efni aðgengi­legri og ádeil­una áhrifa­rík­ari. Mamdani þykir þannig hafa sýnt að það þarf ekki endi­lega dýrar aug­lýs­ingar til að ná til kjós­enda heldur skap­andi nálgun og raun­veru­leg tengsl við almenn­ing. 

Lag fyrir ömmu

Hann stóð einnig fyrir kosn­inga­við­burðum í næt­ur­klúbbum þar sem tón­list og póli­tík runnu saman. Áður en hann fór í póli­tík reyndi hann meðal ann­ars fyrir sér sem tón­list­ar­maður og fyrir sex árum gaf hann, undir lista­manns­nafn­inu Mr. Cardamom, út lagið Nani sem hann samdi sem lof­söng um ömmu sína. Í mynd­band­inu leikur hin goð­sagna­kennda leik­kona og mat­ar­gúrú Madhur Jaffrey ömm­una. Mynd­bandið gekk í end­ur­nýjun líf­daga í kosn­inga­bar­átt­unni og fékk gríð­ar­legt áhorf.

Meðal þess sem skrifað hefur verið um Mamdani í kosn­inga­bar­áttuni er að aðrir fram­bjóð­endur séu að klást við ýmis hneyksl­is­mál úr for­tíð­inni en á sama tíma hafi Mamdami bara verið að rappa um ömmu sína, og hefur lagið Nani vakið svo mikla gleði og athygli að ýmsir eru, kannski fyrst og fremst í hita leiks­ins, farnir að kalla eftir því að hann verði næsti for­seti. 

Kosn­inga­bar­átta Mamdani var einnig sér­stök að því leyti að hún var fjár­mögnuð af gras­rót­inni. Hann hafn­aði stórum fram­lögum frá fyr­ir­tækjum og hags­muna­sam­tökum og safn­aði í stað­inn yfir 1,7 millj­ónum dala, um 240 millj­ónum króna, frá tæp­lega átján þús­und ein­stak­lingum sem flestir lögðu fram lítil fram­lög. Með stuðn­ingi opin­bers end­ur­greiðslu­kerfis borg­ar­innar nam heild­ar­fjár­mögn­unin rúm­lega 8,7 millj­ónum dala, sem sam­svarar um 1,2 millj­örðum króna. Cuomo reiddi sig hins vegar að mestu á stór fram­lög frá auð­mönnum og fyr­ir­tækjum. Gras­rót­ar­her­ferðin end­ur­spegl­aði stefnu Mamdani sem sner­ist um að byggja upp póli­tískt afl sem sækir styrk sinn til almenn­ings en ekki fjár­sterkra hags­muna­afla. 

Þá hefur vel­gengni Mamdami verið lýst þannig að hann hafi ekki bara staðið í kosn­inga­bar­áttu heldur leitt nýja hreyf­ingu; þús­undir sjálf­boða­liða tóku þátt í gras­rót­ar­starfi her­ferð­ar­innar og byggðu upp hreyf­ingu sem teygði sig langt út fyrir hefð­bundna kosn­inga­bar­áttu.

„Þú tókst slag­inn við póli­tíska valdið, efna­hags­lega valdið og fjöl­miðla­valdið - og þú sigr­aðir“
Bernie Sanders

Mamdani til­kynnti um fram­boðið í októ­ber 2024 og meðal þekktra stuðn­ings­manna Mamdani eru öld­unga­deild­ar­þing­mað­ur­inn Bernie Sanders og þing­konan Alex­andria Ocasio-Cortez.

„Auðmenn og hags­muna­hópar helltu millj­ónum í að ráð­ast á þig og kerfi opin­bers fjár­magns. Og þú sigr­aðir,“ skrif­aði Ocasio-Cortez á X eftir sig­ur­inn. Sanders skrif­aði: „Þú tókst slag­inn við póli­tíska valdið, efna­hags­lega valdið og fjöl­miðla­valdið - og þú sigr­aðir,“ og hvatti hann síðan til árang­urs í borg­ar­stjóra­kosn­ing­unum.

Curtis Sliwa, fram­bjóð­andi Repúblik­ana fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar, sagði Mamdani hins vegar vera „of öfga­fullan fyrir borg sem er þegar á ystu nöf“ og Ted Cruz, öld­unga­deild­ar­þing­maður í Texas, hvatti New York-búa sem væru „ekki komm­ún­istar“ að koma til Texas.  Mamdani mætir Sliwa í nóv­em­ber sem býður sig þá fram að nýju eftir að hafa tapað fyrir Adams 2021.

Sakaður um andsemítisma

Kjör Mamdanis hefur víð­tæka póli­tíska þýð­ingu, bæði í New York og á lands­vísu. Það end­ur­speglar vax­andi áhrif rót­tæks gras­rót­ar­arms innan Demókra­ta­flokks­ins þar sem ungt fólk, inn­flytj­endur og minni­hluta­hópar - sem saman mynda stóran og sífellt virk­ari hluta kjós­enda í borg­inni - krefj­ast kerf­is­breyt­inga, auk­ins jöfn­uðar og umbóta í vel­ferð­ar­málum, hús­næð­is­málum og í lög­gæslu.

Samhliða því hefur Mamdani sætt gagn­rýni, bæði innan og utan eigin flokks. Sér­stak­lega hafa utan­rík­is­á­herslur hans vakið deilur. Hann hefur verið áber­andi tals­maður rétt­inda Palest­ínu­manna og opin­ber stuðn­ings­maður BDS-hreyf­ing­ar­innar, sem hvetur til efna­hags­legra og stjórn­mála­legra aðgerða gegn Ísrael. Afstaða hans hefur kallað fram ásak­anir um and­semít­isma, einkum frá íhalds­mönnum og stuðn­ings­mönnum Ísraels, sem telja að slík stefna geri lítið úr áhyggjum gyð­inga­sam­fé­lags­ins sem er bæði fjöl­mennt og áhrifa­mikið í borg­inni. Þær áhyggjur bein­ast meðal ann­ars að því að BDS-hreyf­ingin grafi undan sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétti Ísraels og geti ýtt undir hat­urs­orð­ræðu gegn gyð­ingum. Mamdani hafnar hins vegar slíkum ásök­unum alfarið og segir gagn­rýni sína byggða á mann­rétt­inda­sjón­ar­miðum.

Að auki hafa bæði hóf­samir demókratar og íhalds­menn gagn­rýnt efna­hags­á­herslur hans sem óraun­hæfar og fjár­hags­lega var­huga­verðar. Borg­ar­stjór­inn Eric Adams og þing­konan Laura Gillen hafa lýst áhyggjum af því að rót­tæk stefna Mamdani kunni að fæla atvinnu­líf og fjár­festa frá borg­inni, á sama tíma og kostn­aður við hug­myndir hans um víð­tæka opin­bera þjón­ustu sé óljós. Þá hefur hann einnig verið gagn­rýndur fyrir að skorta skýrar lausnir í örygg­is­málum borg­ar­búa, sér­stak­lega í ljósi þess að glæpa­tíðni og álita­mál tengd aðgerðum og starfs­háttum lög­regl­unnar hafa verið ofar­lega í umræð­unni í New York að und­an­förnu.

Það eru fimm mán­uðir til borg­ar­stjórn­ar­kosn­inga og verði Mamdani kjör­inn borg­ar­stjóri má ætla að það hafi umtals­verð áhrif, ekki aðeins á stjórn­mála­lands­lagið í New York heldur einnig á þróun innan Demókra­ta­flokks­ins á lands­vísu.

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár