Jón Gnarr gerir stólpagrín að ræðuhöldum stjórnarandstöðunnar

Jón Gnarr, þing­maður Við­reisnar, hæð­ist að því sem honum þykir vera mál­þóf stjórn­ar­and­stöð­unnar. „Mér finnst líka mik­il­vægt að benda fólki á það að á meðan þessir þing­menn eru ekki að halda ræðu þá eru þeir að skrifa ræðu, flytja hana fyrir fjöl­skyldu sína eða æfa sig fyrir framan spegil.“

Jón Gnarr gerir stólpagrín að ræðuhöldum stjórnarandstöðunnar

„Stór dagur hjá Jóni Pétri Zimsen sem fagnar í dag sinni tutt­ug­ustu ræðu um sama mál. Jón er ræðu­maður sem nær að gera hverja ræðu ein­staka. Tólfta ræðan hans er ógleym­an­leg en þó bara einsog fyll­er­í­is­raus sam­an­borið við þá sautj­ándu sem sýnir vel hvað hann er að þroskast sem ræðu­maður,“ skrif­aði Jón Gnarr, þing­maður Við­reisnar, á Facebook-síðu sína um kollega sinn í Sjálf­stæð­is­flokknum fyrr í dag.

Í færsl­unni seg­ist Jón vera spenntur fyrir deg­inum og að erfitt sé fyrir hann að gera upp á milli sinna upp­á­halds ræðu­manna. „Mér finnst þau bara öll svo frá­bær. Sig­mundur Davíð og Mið­flokk­ur­inn eru nátt­úr­lega fag­menn í svona og eiga Íslands­metið í mál­þófi sínu um Bókun 35. En skyldum við sjá það met slegið í sumar? Það verður spenn­andi að sjá.“

Þriðja lengsta umræðan

Nokkuð hefur verið rætt um mál­þóf á Alþingi síð­ustu daga og vikur. Á þing­fund­inum sem hófst klukkan 10 í dag fer nú fram fram­hald ann­arrar umræðu um breyt­ingar á veiði­gjald­inu. Umræðan um frum­varpið er nú orðin sú þriðja lengsta sem átt hefur sér stað í þing­inu en þing­fundur teygði sig langt fram yfir mið­nætti í gær. 

Óljóst er hvenær vor­þing­inu muni ljúka en enn hefur ekki náðst sam­komu­lag um afgreiðslu mála.

„Ég vil líka hér tæpa á einu, varð­andi þessa umræðu um veiði­gjöld, og það nöldur sem ég heyri stundum að þetta sé mál sem varði hag fárra en sé á kostnað allrar þjóð­ar­innar, að sumir séu hér að sjá ofsjónum yfir því að eiga á hættu að missa spón úr aski sínum sem verði eftir sem áður kúfullur og þetta sé bara sér­hags­muna­gæsla og níska. Það getur vel verið rétt. En við megum ekki gleyma því að fátt fólk er samt líka fólk. Það getur ekk­ert gert að því þótt það sé fátt. Gleymum því ekki,“ skrifar Jón Gnarr hæð­inn.

Spenntur fyrir 32. ræðu Ólafs Adolfssonar

Þing­mað­ur­inn bendir á að þrátt fyrir nokk­urt reynslu­leysi við að vera í stjórn­ar­and­stöðu finn­ist honum Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sýna að hann sé eng­inn eft­ir­bátur Mið­flokks­ins mál­þófi, sem hann kallar „forna ræðu­list“.

„Flokk­ur­inn hefur sýnt að hann er flokkur sem lærir af mis­tökum sínum og er nú að þró­ast hratt yfir í öfl­ugan stjórn­ar­and­stöðu­flokk sem vílar þetta at ekk­ert fyrir sér. [...] Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er að minnsta kosti orð­inn flokkur sem hefur sýnt það að hann er engu síðri í stjórn­ar­and­stöðu en í stjórn.“

Vakti Jón máls á því að Ólafur Adolfs­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, væri að fara að halda sína 32. ræðu. „Ég veit að það er mikil spenna yfir því að minnsta kosti inn­an­húss. Hvernig mun hann toppa síð­ustu ræðu?“ spyr hann.

„Mér finnst líka mik­il­vægt að benda fólki á það að á meðan þessir þing­menn eru ekki að halda ræðu þá eru þeir að skrifa ræðu, flytja hana fyrir fjöl­skyldu sína eða æfa sig fyrir framan spegil. Það kæmi mér heldur ekki á óvart ef þau væru að hitt­ast utan funda og lesa ræður sínar fyrir hvert annað, sam­ræma sig og stilla saman strengi sína svo orð þeirra megi óma sam­hljóma. Allt tal um að þetta ,,sé bara samið af gervi­greind" eða starfs­fólki þing­flokk­anna eða jafn­vel end­ur­fluttar gamlar ræður, er inn­an­tómt tal sem ég vísa alfarið á bug.“

Kjósa
79
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Jón Gnarr les þetta allt rétt, það þarf vissa geind til þess að tala stanslaust um buddur sumra.
    7
  • HJB
    Henry Júlíus Bæringsson skrifaði
    Jón með puttann á púlsinum
    7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár