Ekkert gefið um næsta fjármálaráðherra

Enn er á huldu hver tekur við emb­ætti fjár­mála­ráð­herra þegar Bjarni Bene­dikts­son stígur frá borði. Þá er jafn­vel óljóst úr hvaða flokki næsti fjár­mála­ráð­herra muni koma. „Ekkert gefið, ekk­ert úti­lokað,“ eins og einn þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks orð­aði það.

Áslaug Arna Ráðherrann tekur undir gagnrýni Bjarna á álit Umboðsmanns Alþingis en styður ákvörðun hans um að segja af sér.

„Engar ákvarð­anir hafa verið teknar, bara þessi,“ sagði Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, ráð­herra háskóla- og nýsköp­unar og þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, spurð um það hvort til greina komi að þing­menn ann­arra flokka en Sjálf­stæð­is­flokks taki við fjár­mála­ráðu­neyt­inu í kjöl­far afsagnar Bjarna Bene­dikts­sonar. „Við skulum leyfa þessum degi að líða með þess­ari ákvörðun.“

Birgir Ármanns­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, varð­ist einnig spurn­inga um næstu skref. „Ekkert gefið, ekk­ert úti­lokað,“ sagði Birgir ein­fald­lega. 

Bjarni sagði af sér í morgun í kjöl­far birt­ingar álits Umboðs­manns Alþingis sem komst að þeirri nið­ur­stöðu að Bjarni hafi verið van­hæfur til að að selja félagi í eigu föður síns, Bene­dikts Sveins­sonar, hlut í Íslands­banka í lok­uðu útboði sem fram fór í mars í fyrra.

„Ég styð for­mann­inn í þess­ari óeig­in­gjörnu afstöðu hans og mun styðja hann í þeim ákvörð­unum sem eftir taka,“ sagði Áslaug Arna í sam­tali við Heim­ild­ina nú laust eftir hádegi á Alþingi.

Hún jánk­aði því að afsögnin muni hafa áhrif á stjórn­ar­sam­starfið en ítrek­aði að ákvarð­anir um næstu skref hafi ekki verið teknar. 

„Hann er framúrskarandi stjórnmálamaður“

Áslaug sagði þing­flokk­inn hafa átt fund með Bjarna í morgun og síðan fylgst með til­kynn­ingu hans um afsögn á blaða­manna­fund­inum. Hún hafi komið á óvart, en það hafi álit umboðs­manns Alþingis einnig gert. 

„Það verður mikil eft­ir­sjá eftir Bjarna Bene­dikts­syni í stóli fjár­mála­ráð­herra,“ sagði Áslaug sem kvaðst taka undir þá gagn­rýni sem Bjarni setti fram á álit Umboðs­manns Alþingis í afsagn­ar­ræðu sinni.

Spurð hvort hún teldi Bjarna áfram stætt sem for­manni flokks­ins, eða ráð­herra, í ljósi afsagnar hans, sagði Áslaug: 

„Já. Hann er fram­úr­skar­andi stjórn­mála­maður og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins.“

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    *************************************************************************
    Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra seldi föður sínum hlut
    í ríkisbanka.

    Í nágrannalöndunum væri stjórnmálaferli hans þess vegna lokið.

    Þar vilja stjórnmálaflokkarnir ekki hafa slíka menn í forsvari.
    *************************************************************************
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Afsögn Bjarna Ben

Katrín svarar því ekki hvort hún hafi hvatt Bjarna til að sitja áfram í ríkisstjórn
FréttirAfsögn Bjarna Ben

Katrín svarar því ekki hvort hún hafi hvatt Bjarna til að sitja áfram í rík­is­stjórn

For­sæt­is­ráð­herra telur langt í land með að hægt verði að ræða frek­ari banka­sölu, ólíkt frá­far­andi fjár­mála­ráð­herra sem til­tók það sem sér­stakt verk­efni nýs fjár­mála­ráð­herra, á blaða­manna­fundi for­manna stjórn­ar­flokk­anna í morgun. Stjórn­ar­flokk­arnir sömdu um vopna­hlé eftir skæru­s­umar á Þing­völlum í gær.
„Ég ætti í reynd ekki annan valkost en að sitja áfram við ríkisstjórnarborðið“
FréttirAfsögn Bjarna Ben

„Ég ætti í reynd ekki annan val­kost en að sitja áfram við rík­is­stjórn­ar­borðið“

Bjarni Bene­dikts­son frá­far­andi fjár­mála­ráð­herra telur að hann hafi ekki getað annað en að sitja áfram við rík­is­stjórn­ar­borðið, þrátt fyrir að hafa sagt af sér emb­ætti fjár­mála­ráð­herra. Með því að taka sæti utan­rík­is­ráð­herra seg­ist hann vilja auka póli­tískan stöð­ug­leika, sem sé for­senda þess efna­hags­lega.
Að selja banka í góðri trú og armslengd
GreiningAfsögn Bjarna Ben

Að selja banka í góðri trú og arms­lengd

Álit umboðs­manns Alþingis, sem sagði Bjarna Bene­dikts­son van­hæfan til að selja föður sínum hlut í Íslands­banka, efast ekki um stað­hæf­ingar Bjarna um „hreina sam­visku“ eða góða trú. Það snýr að því að Bjarni hafi ekki gætt að hæfi sínu með því að leyfa sér að taka áhættu um hvort hann væri að selja föður sínum hlut í banka eða ekki þegar hann kvitt­aði undir söl­una.
Armslengd frá stjórnarkreppu
GreiningAfsögn Bjarna Ben

Arms­lengd frá stjórn­ar­kreppu

Afsögn Bjarna Bene­dikts­sonar hefur leitt af sér glund­roða innan rík­is­stjórnar Íslands. Nú eru for­menn­irnir í kappi við tím­ann við að finna ein­hverja lausn. Sú lausn þarf að taka mið af þeim raun­veru­leika að Bjarni vill hætta í stjórn­málum. Hann er búinn með sín níu líf á því sviði, en er þó opinn fyrir að stiga burt á annan hátt til að lág­marka skað­ann fyrir rík­is­stjórn­ar­sam­starfið og Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár