„Ég ætti í reynd ekki annan valkost en að sitja áfram við ríkisstjórnarborðið“

Bjarni Bene­dikts­son frá­far­andi fjár­mála­ráð­herra telur að hann hafi ekki getað annað en að sitja áfram við rík­is­stjórn­ar­borðið, þrátt fyrir að hafa sagt af sér emb­ætti fjár­mála­ráð­herra. Með því að taka sæti utan­rík­is­ráð­herra seg­ist hann vilja auka póli­tískan stöð­ug­leika, sem sé for­senda þess efna­hags­lega.

„Ég ætti í reynd ekki annan valkost en að sitja áfram við ríkisstjórnarborðið“
Víkur ekki „Þegar hringt er í Sam­fylk­ing­ar­fólk og spurt hvort þau vilji að ég hætti, það kemur mér ekki á óvart hvernig því er svarað,“ segir Bjarni um könnun Maskínu sem bendir til þess að 70% Íslend­inga vilji að Bjarni hætti alfarið í rík­is­stjórn. Það ætlar hann ekki að gera. Mynd: Golli

Bjarni Bene­dikts­son frá­far­andi fjár­mála­ráð­herra og Þórdís Kolbrún Gylfa­dóttir Reyk­fjörð arf­taki hans rædd­ust við dag­lega síð­ast­liðna viku. Þau tóku þó ekki end­an­lega ákvörðun um sæta­skiptin fyrr en í gær. 

Spurður hvort hann hafi verið búinn að taka ákvörðun um að skipta við sæti við Þórdísi, sem er þá frá­far­andi utan­rík­is­ráð­herra, áður en hann sagði af sér síð­ast­lið­inn þriðju­dag, segir Bjarni: „Nei, nei, nei.“ En Þórdís var þó fyrsti kostur hans þegar kom að skipan í emb­ætti fjár­mála­ráð­herra.

Tilefni afsagnar Bjarna var álit umboðs­manns Alþingis um að Bjarni hafi verið van­hæfur í sölu rík­is­ins á hlut sínum í Íslands­banka í mars 2022 þar sem faðir Bjarna keypti hlut í lok­uðu útboði.

Mun ekki aðstoða Þórdísi við að selja frekari hlut ríkisins í bankanum

Fólk auð­vitað spyr sig: Er hann að taka fulla ábyrgð ef hann er bara að skipta um ráð­herra­stól? 

„Ég hef mörgum skyldum að gegna. Ég setti í fyrsta sæti til að byrja með að skapa frið um verk­efnin í fjár­mála­ráðu­neyt­inu. Ég lagði bara fyrir mitt leyti það mat á stöð­una að það yrði mjög flókið fyrir mig að sitja þar áfram meðal ann­ars vegna þess að við erum áfram með það á prjón­unum að losa um hlut rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum. Að það gæti gefið and­stæð­ingum stjórn­ar­innar færi á að trufla fram­gang mála, ein­fald­lega þetta álit og vera mín í ráðu­neyt­inu. Það var í fyrsta sæti fyrir mig,“ segir Bjarni og bætir því við að rík­is­stjórnin hafi viljað senda út skila­boð um að hún „standi saman og veiti póli­tískan stöð­ug­leika á tímum efna­hags­legrar óvissu og efna­hags­legs óstöð­ug­leika.“

„Til þess að vera trúr þeirri sann­fær­ingu og þeim skila­boðum mat ég það ein­fald­lega þannig að ég ætti í reynd ekki annan val­kost en að sitja áfram við rík­is­stjórn­ar­borðið og þá í nýju emb­ætti. Það er það sem ég er að gera.“ 

Muntu þá ekki koma að áfram­hald­andi sölu á Íslands­banka að neinu leyti, ég meina, þú ert enn þá í rík­is­stjórn? 

„Já, já – ég er ennþá í rík­is­stjórn, ég er áfram þing­maður og ég er með minn atkvæð­is­rétt en það verður þá á ábyrgð ann­ars ráð­herra að bera málin fram.“

Þú munt þá ekki aðstoða Þórdísi Kolbrúnu við sölu á hlutum rík­is­ins?

„Það er skýrt að ábyrgð­ar­skilin verða með þessu.“ 

Fordæmisleysi víða?

Það er nán­ast for­dæma­laust að ráð­herra segi af sér og fari svo bara í annan stól…

„Ég þekki ekki öll for­dæmin en ég held að það séu líka fá for­dæmi fyrir því að ráð­herra hafi ákveðið í til­efni af áliti umboðs­manns Alþingis að stíga til hliðar.“

Bjarni telur að snúið hefði verið að skapa póli­tískan stöð­ug­leika, sem hann segir for­sendu þess efna­hags­lega, með því að stíga til hliðar. 

Skaparðu ekki ákveð­inn óstöð­ug­leika með því að vera áfram í rík­is­stjórn eftir þetta álit umboðs­manns?

„Nei, ég met það ekki þannig.“

Maskínukönnunin kemur ekki á óvart

Maskína birti í gær nið­ur­stöður úr könnun sem benti til þess að 70% Íslend­inga vildu að Bjarni hætti alfarið sem ráð­herra. Bjarni gefur lítið fyrir nið­ur­stöður könn­un­ar­innar. 

„Þegar hringt er í Sam­fylk­ing­ar­fólk og spurt hvort þau vilji að ég hætti, það kemur mér ekki á óvart hvernig því er svarað.“

Heldurðu ekki að það verði erf­ið­ara sam­starf við stjórn­ar­and­stöð­una núna eftir að þú ákvaðst að halda áfram? 

„Það er ekki síður undir þeim komið en mér.“

Aðspurður seg­ist Bjarni ekki hafa tekið ákvörðun um það hvort hann muni hætta í póli­tík eftir þetta kjör­tíma­bil. 

„Það er lang­best að vera ekki alltaf að velta því fyrir sér, sér­stak­lega inni á miðju kjör­tíma­bili hvað fram­tíðin ber í skauti sér. Þú getur klárað þig á áhyggjum af því. Ég hef ýtt öllu slíku til hliðar á meðan ég er með þessa ábyrgð.“ 

Bjarni léttari en vant er

Og Bjarni seg­ist finna til léttis, að honum líði betur nú en honum hafi gert um nokk­urt skeið. 

„Það er ákveðin hreinsun af því að setj­ast niður og ræða með þeim hætti sem við gerðum um vanda­málin sem við höfum verið að glíma við,“ segir Bjarni um fundi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna þriggja und­an­farna daga en gustað hefur um sam­starfið. 

„Það var hreins­andi og ákveðnum áhyggjum af manni létt og ég sann­færð­ist um að við getum náð góðum árangri á þessum þing­vetri og á kjör­tíma­bil­inu þrátt fyrir að það hafi ýmis­legt komið upp á til þessa,“ segir Bjarni og segir að þegar síð­asta þing end­aði hafi ekki allt verið með felldu innan rík­is­stjórn­ar­innar. 

Eruð þið þá búin að lofta út? 

„Ágætlega.“

Engin fýla lengur? 

„Ég bið ekk­ert um að þetta sé auð­velt og þetta verður auð­vitað áfram krefj­andi en ég er á margan hátt bjart­sýnni núna en ég var til dæmis eftir þing­slitin í vor,“ segir Bjarni.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Þetta reyndist ekki flókið, þegar upp var staðið. Á daginn kom, að ríkisstjórnin hverfist um Bjarna. Brotthvarf hans hefði þýtt endalok stjórnarsamstarfsins.
    0
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    ÚFF DA!
    Öll bál reið núna ?
    Það sárgrætilegasta við þetta allt saman, er að þegar næsta bankaráni verður skellt á almenning, hið svokallaða „hrun“2.
    Þá fer hér allt í bál og brand (í smá tíma), stjórnarandstaðan fær lykklavöldin en munu svo ekki ráða við þann risa bálköst sem hrunverjarnir (ÞJÓFARNIR), tendruðu.
    ☻g hvað skeður þá ?
    Nú sagan endurtekur sig enn og aftur og nýju stjórninni verður kennt um (þjófnaðinn), og allar ófarirnar.
    Þá koma brennuvargarnir (þjófarnir), aftur eins og riddarar á hvítum hestum sem segjast að þeir séu þeir einu sem geti bjargað þjóðinni frá þessum rumpulýð sem fer nú með lykklavöldin.
    ☻g GARGA SKILIÐ ÞIÐ LYKKLUNUM!
    Og þjóðin kok gleypir svo við eins og hrafnsunginn. AFTUR!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Afsögn Bjarna Ben

FréttirAfsögn Bjarna Ben

Katrín svarar því ekki hvort hún hafi hvatt Bjarna til að sitja áfram í rík­is­stjórn

For­sæt­is­ráð­herra telur langt í land með að hægt verði að ræða frek­ari banka­sölu, ólíkt frá­far­andi fjár­mála­ráð­herra sem til­tók það sem sér­stakt verk­efni nýs fjár­mála­ráð­herra, á blaða­manna­fundi for­manna stjórn­ar­flokk­anna í morgun. Stjórn­ar­flokk­arnir sömdu um vopna­hlé eftir skæru­s­umar á Þing­völlum í gær.
GreiningAfsögn Bjarna Ben

Að selja banka í góðri trú og arms­lengd

Álit umboðs­manns Alþingis, sem sagði Bjarna Bene­dikts­son van­hæfan til að selja föður sínum hlut í Íslands­banka, efast ekki um stað­hæf­ingar Bjarna um „hreina sam­visku“ eða góða trú. Það snýr að því að Bjarni hafi ekki gætt að hæfi sínu með því að leyfa sér að taka áhættu um hvort hann væri að selja föður sínum hlut í banka eða ekki þegar hann kvitt­aði undir söl­una.

10 mín. lestur

GreiningAfsögn Bjarna Ben

Arms­lengd frá stjórn­ar­kreppu

Afsögn Bjarna Bene­dikts­sonar hefur leitt af sér glund­roða innan rík­is­stjórnar Íslands. Nú eru for­menn­irnir í kappi við tím­ann við að finna ein­hverja lausn. Sú lausn þarf að taka mið af þeim raun­veru­leika að Bjarni vill hætta í stjórn­málum. Hann er búinn með sín níu líf á því sviði, en er þó opinn fyrir að stiga burt á annan hátt til að lág­marka skað­ann fyrir rík­is­stjórn­ar­sam­starfið og Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

9 mín. lestur

Greining

Öll hneyksl­is­málin sem Bjarni stóð af sér

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra, tengd­ist ýmsum hneyksl­is­málum sem komu upp á Íslandi í kjöl­far efna­hags­hruns­ins árið 2008. Hann stóð þau öll af sér og var fyrir vikið oft kenndur við efnið teflon vegna þess að hann náði alltaf að hrista af sér erfið mál á meðan aðrir stjórn­mála­menn gátu það ekki.

13 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár