Katrín svarar því ekki hvort hún hafi hvatt Bjarna til að sitja áfram í ríkisstjórn

For­sæt­is­ráð­herra telur langt í land með að hægt verði að ræða frek­ari banka­sölu, ólíkt frá­far­andi fjár­mála­ráð­herra sem til­tók það sem sér­stakt verk­efni nýs fjár­mála­ráð­herra, á blaða­manna­fundi for­manna stjórn­ar­flokk­anna í morgun. Stjórn­ar­flokk­arnir sömdu um vopna­hlé eftir skæru­s­umar á Þing­völlum í gær.

Katrín svarar því ekki hvort hún hafi hvatt Bjarna til að sitja áfram í ríkisstjórn
Traustum fótum Formenn Stjórn­ar­flokk­anna þriggja marg ítrek­uðu það hvert og eitt í ræðum sínum á blaða­manna­fund­inum að sam­starf þeirra væri gott og stæði á traustum fótum. Þau gengu í það minnsta til­tölu­lega mikið í takt inn til blaða­manna­fund­ar­ins og Sigurður Ingi, sem gengið hefur við hækjur und­an­farnar vikur, eftir aðgerð, gekk óhaltur, traustum fótum einnig. Mynd: Golli

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra vill ekki svara því hvort það hafi verið fyrir hennar þrýst­ing sem for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins ákvað að sitja áfram í rík­is­stjórn eftir afsögn sína úr emb­ætti fjár­mála­ráð­herra á þriðju­dag­inn. Sjálfur segir Bjarni Bene­dikts­son hafa yfir­gefið þann fund óákveð­inn um hvort hann héldi yfir höfuð áfram stjórn­mála­þát­töku.

Á Katrínu er að heyra að samið hafi verið um ein­hvers lags vopna­hlé á fundi með þing­mönnum stjórn­ar­flokk­anna á Þing­völlum í gær, eftir skærur und­an­far­inna vikna og mán­aða. Klæði hafi verið borin á vopnin, og bitið í sam­stilltar skjald­ar­rendur áleiðis til orr­ustu við einn og sam­eig­in­legan óvin: Verð­bólg­una.

Ólíkt Bjarna, sem í ræðu sinni á fund­inum tal­aði sér­stak­lega um þörf á því að halda áfram að losa um eign­ar­hald rík­is­ins í bönk­unum, segir Katrín langan veg …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JA
    Jón Arnarson skrifaði
    Varnarmálaráðherra Bjarna Ben, frú Jakobsdóttir, heldur ætíð sömu innihaldslausu varnarræðuna sem og ætíð með sömu loka orðunum:
    ”Auk þess legg ég til að hugað veri að þeim sem minna meiga sín.”
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Afsögn Bjarna Ben

FréttirAfsögn Bjarna Ben

„Ég ætti í reynd ekki annan val­kost en að sitja áfram við rík­is­stjórn­ar­borðið“

Bjarni Bene­dikts­son frá­far­andi fjár­mála­ráð­herra telur að hann hafi ekki getað annað en að sitja áfram við rík­is­stjórn­ar­borðið, þrátt fyrir að hafa sagt af sér emb­ætti fjár­mála­ráð­herra. Með því að taka sæti utan­rík­is­ráð­herra seg­ist hann vilja auka póli­tískan stöð­ug­leika, sem sé for­senda þess efna­hags­lega.
GreiningAfsögn Bjarna Ben

Að selja banka í góðri trú og arms­lengd

Álit umboðs­manns Alþingis, sem sagði Bjarna Bene­dikts­son van­hæfan til að selja föður sínum hlut í Íslands­banka, efast ekki um stað­hæf­ingar Bjarna um „hreina sam­visku“ eða góða trú. Það snýr að því að Bjarni hafi ekki gætt að hæfi sínu með því að leyfa sér að taka áhættu um hvort hann væri að selja föður sínum hlut í banka eða ekki þegar hann kvitt­aði undir söl­una.

10 mín. lestur

GreiningAfsögn Bjarna Ben

Arms­lengd frá stjórn­ar­kreppu

Afsögn Bjarna Bene­dikts­sonar hefur leitt af sér glund­roða innan rík­is­stjórnar Íslands. Nú eru for­menn­irnir í kappi við tím­ann við að finna ein­hverja lausn. Sú lausn þarf að taka mið af þeim raun­veru­leika að Bjarni vill hætta í stjórn­málum. Hann er búinn með sín níu líf á því sviði, en er þó opinn fyrir að stiga burt á annan hátt til að lág­marka skað­ann fyrir rík­is­stjórn­ar­sam­starfið og Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

9 mín. lestur

Greining

Öll hneyksl­is­málin sem Bjarni stóð af sér

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra, tengd­ist ýmsum hneyksl­is­málum sem komu upp á Íslandi í kjöl­far efna­hags­hruns­ins árið 2008. Hann stóð þau öll af sér og var fyrir vikið oft kenndur við efnið teflon vegna þess að hann náði alltaf að hrista af sér erfið mál á meðan aðrir stjórn­mála­menn gátu það ekki.

13 mín. lestur

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
6
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár