„Hérna fæ ég frið“

Omel Svavars sækir í for­dóma­leysið og frið­inn á barnum Mónakó við Laugaveg.

„Hérna fæ ég frið“

Fyrir mig er Mónakó félags­mið­stöð. Það er þægi­legt að koma hingað, maður þekkir bæði staffið og flesta fasta­gesti. Ég vinn í ferða­þjón­ustu og það koma eig­in­lega engir túristar á þennan bar svo að ég fæ túrista­frí. Það er mjög gott að koma hingað og slaka á, einu sinni, tvisvar á dag. Ég vinn með túrista og labba fram á þá á göt­unum þannig að ég þarf ekki að hafa þá með mér líka í frí­tím­anum. Stundum þarf maður bara frí.

Ég er „über“ hinsegin, en hérna fæ ég frið. En, sko, áreiti hefur auk­ist á börum borg­ar­innar. Til dæmis með þessu gelti sem byrj­aði núna í vor, ég er búin að lenda tvisvar í því frá ungu fólki. Hérna er ekki slíkt. Það láta allir alla í friði á Mónakó.

Ég er nátt­úr­lega orðin eldri en tvæ­vetur. Ég lenti í rosa­legum for­dómum fyrir norðan, en mjög lítið hérna í Reykja­vík …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GVV
    Guðlaugur Viðar Valdimarsson skrifaði
    Stundin! Vandið skrifin.
    0
  • SO
    Sigurður Oddgeirsson skrifaði
    Mikið væri gaman að vita hvað Omel Svavars er að tala um.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár