Leggja niður Bankasýsluna vegna Íslandsbankasölunnar

Banka­sýsla rík­is­ins verður lögð niður og nýtt fyr­ir­komu­lag verður fundið til að halda utan um eign­ar­hluti rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum, gangi til­laga rík­is­stjórn­ar­innar eftir. Frumvarp þess efnis verður kynnt á Alþingi á næst­unni. Þetta segir í sam­eig­in­legri til­kynn­ingu for­manna stjórn­ar­flokk­anna.

Leggja niður Bankasýsluna vegna Íslandsbankasölunnar

Rík­is­stjórnin vill leggja niður Banka­sýslu rík­is­ins og breyta fyr­ir­komu­lag­inu sem verið hefur vegna eign­ar­halds rík­is­ins á fjár­mála­fyr­ir­tækjum. Þetta er við­bragð við lok­uðu útboði á 22,5 pró­senta hlut í Íslands­banka í síð­asta mán­uði. Útboðið hefur verið harð­lega gagn­rýnt vegna fram­kvæmd­ar­innar og hverjir það voru sem fengu að kaupa hluti í útboð­inu. 

Í til­kynn­ingu frá for­mönnum stjórn­ar­flokk­anna, þeim Katrínu Jak­obs­dóttur, for­manns VG, Bjarna Bene­dikts­syni, for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem birt­ist í morgun á vef stjórn­ar­ráðs­ins segir að finna eigi nýtt fyr­ir­komu­lag sem geri ráð fyrir rík­ari aðkomu Alþingis. „[O]g að styrk­ari stoðum verði skotið undir að tryggja gagn­sæi, jafn­ræði, lýð­ræð­is­lega aðkomu þings­ins og upp­lýs­inga­gjöf til almenn­ings,“ segir í yfir­lýs­ing­unni. 

For­menn­irnir þrír segja að gerð sé rík krafa um gagn­sæi, jafn­ræði og ítar­lega upp­lýs­inga­gjöf til almenn­ings þegar ríkið selji eign­ar­hluti í fjár­mála­fyr­ir­tækjum en að ljóst sé að fram­kvæmd söl­unnar hafi ekki að öllu leyti …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Siggi Rey skrifaði
    Manni rennur kalt vatn milli skinns og hörunds að berja þetta lið, hér að ofan, augum!
    0
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Bjarna BURT !!!
    4
  • JL
    Jón Logi skrifaði
    Frábær flétta. Í stað þess að láta þetta lið einfaldlega taka pokann sinn. þá verða væntanlega feitir starfslokasamningar í boði fyrir toppana hjá bankasýslunni, þar sem sjoppan er lögð niður.
    4
  • Halla Guðjónsdóttir skrifaði
    Fólk á flótta....
    1
  • Þórhannes Axelsson skrifaði
    Myndin segir allt sem segja þarf!
    2
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    ALLIR ættu að lesa bókina "Hinir ósnertanlegu" !!!!

    http://herdubreid.is/hinir-osnertanlegu/

    "130 milljarðar voru afskrifaðir hjá fjölskyldufyrirtækjum Bjarna Benediktssonar"

    "Benedikt Sveinsson tók yfir á annað hundrað milljónir af einkaskuldum sonar síns, meðal annars vegna veðmála"

    "Í miðju Hruni var Bjarni ennþá að færa stórfé úr landi til að borga fyrir fasteignabrask á Flórida"

    Síðar var Bjarni Ben gerður að fjármálaráðherra í þrígang !!!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Salan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu
FréttirSalan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þings­ins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagn­vart hverjum og einum kaup­anda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera aug­ljóst að ekki væri hægt að fylgja hæf­is­reglum í sölu­með­ferð­inni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í dag.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár