Foreldrar reiðir vegna Eggerts Gunnþórs

Óánægju gætir hjá for­eldrum barna sem æfa knatt­spyrnu hjá FH með að Eggert Gunnþór Jónsson skuli vera einn af þjálf­arum yngri flokka félags­ins í ljósi þess að lög­regla hefur haft kæru á hendur honum vegna nauðg­unar til rann­sóknar.

Foreldrar reiðir vegna Eggerts Gunnþórs
FH aðhefst ekki Ekkert verður aðhafst í máli Eggerts Gunnþórs Jóns­sonar af hálfu FH fyrr en vinnu­ferlar um hvað skuli gera séu menn ásak­aðir um eða til rann­sóknar vegna kyn­ferð­is­brota hafa verið settir fram af ÍSÍ. Mynd: RÚV

Veru­legrar óánægju gætir hjá for­eldrum iðk­enda knatt­spyrnu hjá Fim­leika­fé­lagi Hafn­ar­fjarðar, FH, sökum þess að Eggert Gunnþór Jónsson sé og hafi verið meðal þjálf­ara í yngri flokkum félags­ins. Eggert Gunnþór var kærður á síð­asta ári, ásamt Aroni Einari Gunn­ars­syni fyrr­ver­andi fyr­ir­liða karla­lands­liðs­ins í knatt­spyrnu, fyrir að hafa nauðgað konu í Kaup­manna­höfn árið 2010.

Samkvæmt því sem for­eldrar sem Stundin hefur rætt við var Eggert Gunnþór einn þjálf­ara yngri flokka FH í knatt­spyrnu, bæði eftir að greint var frá ásök­unum á hendur honum áður en kæra var lögð fram en einnig eftir að lög­reglu­kæra var lögð fram á hendur Eggerti Gunnþóri.

Foreldri barns sem æfir með FH sendi erindi á for­mann Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands (KSÍ), Vöndu Sig­ur­geirs­dóttur, í lok síð­asta árs þar sem óskað var svara um afstöðu KSÍ til starfa Eggerts Gunnþórs sem þjálf­ara, í ljósi þess að fyrir lá kæra á hendur honum fyrir kyn­ferð­is­brot. Svar við því erindi barst ekki fyrr en 20. jan­úar síð­ast­lið­inn. Í októ­ber á síð­asta ári, þegar Vanda var kjörin for­maður KSÍ á auka­þingi sam­bands­ins, var hún sér­stak­lega spurð að því hvort fólk sem sakað hefði verið um ofbeld­is­brot mætti leika með lands­liðum KSÍ. Svaraði Vanda því til að hún teldi að fólk ætti að víkja ef mál sem þeim tengj­ast væru til skoð­unar hjá sam­skipta­ráð­gjafa íþrótta- og æsku­lýðs­starfs.

Engin svör frá KSÍ

Í ljósi þess að ekk­ert svar hafði borist frá KSÍ sendi sama for­eldri erindi á Sig­ur­björgu Sig­ur­páls­dóttur, sam­skipta­ráð­gjafa íþrótta- og æsku­lýðs­starfs, í byrjun árs þar sem lið­sinnis hennar var óskað. Sig­ur­björg sendi erindi til stjórnar og siða­nefndar FH 5. jan­úar síð­ast­lið­inn þar sem lagðar voru fram spurn­ingar um stöðu Eggerts Gunnþórs; hvernig á því stæði að hann væri ekki lát­inn stíga til hliðar á meðan kæra á hendur honum fyrir kyn­ferð­is­brot væri til rann­sóknar hjá lög­reglu.

„Félagið mun ekk­ert aðhaf­ast fyrr en fram­kvæmda­stjórn ÍSÍ kemur með skýrt vinnu­ferli varð­andi mál sem þessi“
Elsa Hrönn Reyn­is­dóttir
fram­kvæmda­stjóri FH um mál Eggerts Gunnþórs

Svar við því erindi barst loks síð­ast­lið­inn mánu­dag, eftir nokkra eft­ir­gangs­semi, frá Elsu Hrönn Reyn­is­dóttur fram­kvæmda­stjóra FH.

„Aðal­stjórn FH ásamt for­manni Siða­nefndar FH hefur á und­an­förnum vikum og mán­uðum fjallað um og skoðað mál Eggerts Gunnþórs Jóns­sonar, hvað skal gera og þá einnig hvað við getum gert.

Nið­ur­staða okkar er sú að félagið mun ekk­ert aðhaf­ast fyrr en fram­kvæmda­stjórn ÍSÍ kemur með skýrt vinnu­ferli varð­andi mál sem þessi í fram­haldi af vinnu starfs­hóps þeirra. Að sögn fram­kvæmda­stjóra ÍSÍ eru nið­ur­stöður vinnu­hóps­ins vænt­an­legar nú í mars.“

Málið komið til ákærusviðs

Greint var frá því að í lok febr­úar síð­ast­lið­ins að lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefði lokið rann­sókn á máli þeirra Eggerts Gunnþórs og Arons Einars. Málið væri komið til ákæru­sviðs lög­regl­unnar. Ekki hafa borist upp­lýs­inga um hvers er að vænta varð­andi fram­hald máls­ins.

Í frétt Stund­ar­innar 22. októ­ber á síð­asta ári kom fram að Viðar Hall­dórs­son, for­maður aðal­stjórnar FH, hefði verið upp­lýstur um ásak­anir á hendur Eggerti Gunnþóri þegar síð­ast­liðið sumar. FH brást ekki við þeim upp­lýs­ingum með þeim hætti að setja Eggert Gunnþór til hliðar.

Spurður hvort hann teldi eðli­legt að senda leik­mann í leyfi ef mál væri til rann­sóknar á hendur honum sagði Viðar að gera þyrfti félag­inu form­lega við­vart um að slík rann­sókn væri í gangi. „Lög­reglan verður þá að láta mig vita. Það er eng­inn búinn að láta okkur vita, ekki sam­skipta­ráð­gjafi, ekki lög­reglan. Hver annar ætti að láta okkur vita? [...]„Ef slík til­kynn­ing bær­ist myndi félagið setja málið strax í ferli í sam­ráði við sam­skipta­ráð­gjafa íþrótta- og æsku­lýðs­starfs.“

Upplýst var í fjöl­miðlum að lög­regla hefði tekið mál Eggerts Gunnþórs og Arons Einars til rann­sóknar í sept­em­ber á síð­asta ári, áður en að sam­skipti Stund­ar­innar við Viðar fóru fram.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Voðalega vandræðagangur er þetta hjá FH
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár