Óskaði eftir að koma í skýrslutöku hjá lögreglu: „Ég er fullkomlega saklaus“

Eggert Gunnþór Jónsson, knatt­spyrnu­maður hjá FH, var kærður ásamt Aroni Einari Gunn­ars­syni lands­liðs­fyr­ir­liða. Hann hafði sam­band við lög­reglu á dög­unum.

Óskaði eftir að koma í skýrslutöku hjá lögreglu: „Ég er fullkomlega saklaus“
Eggert Gunnþór Jónsson Stjórn FH hefur verið í sam­skiptum við lög­mann Eggerts vegna kæru á hendur honum. Mynd: RÚV

Knatt­spyrnu­mað­ur­inn sem kona sak­aði um alvar­legt brot á Instagram, ásamt Aroni Einari Gunn­ars­syni lands­liðs­fyr­ir­liða, seg­ist hafa haft sam­band við lög­reglu í byrjun mán­aðar til að segja frá sinni hlið máls­ins. 

„Það er hrika­legt áfall að vera ásak­aður um hræði­legt ofbeld­is­brot vegna atviks sem var svo sann­ar­lega ekki með þeim hætti sem lýst er í fjöl­miðlum,“ segir Eggert í yfir­lýs­ingu sem send var rétt í þessu.

„Þar sem ég hef ekki enn fengið tæki­færi til að skýra mál mitt á réttum vett­vangi og sökum umfjöll­unar frétta­miðla í dag tel ég mig hins­vegar ekki eiga annan kost en að stíga fram og lýsa því opin­ber­lega yfir að ég er full­kom­lega sak­laus af því sem ég hef verið sak­aður um. Ég vona að málið kom­ist í réttan far­veg hið snarasta svo ég geti hreinsað mig af þessum ásök­unum.“ 

Sams konar kæra á hendur Aroni Einari Gunn­ars­syni lands­liðs­fyr­ir­liða vegna kvölds í Kaup­manna­höfn varð til þess að hann var tek­inn úr lands­liðs­hópnum í knatt­spyrnu.

Konan sem kærði þá tvo greindi frá reynslu sinni á Instagram í vetur, án þess að nafn­greina þá. „Ég ligg and­vaka, get ekki hætt að hugsa um alla sem hafa þurft að upp­lifa það sama og ég. Upplifa skömm, reiði, sorg, upp­gjöf, van­trú á sínar eigin til­finn­ingar og upp­lif­anir,“ sagði hún og lýsti atburð­unum nánar. „Ég ætl­aði að kæra, fékk lög­fræð­ing, fór í skýrslu­töku hjá lög­reglu en hvar sem ég kom var mér sagt að þetta væri erfitt mál, annað land og þeir tveir gegn mér. Ítrekað var ég spurð hvort ég vildi leggja þetta á mig.“

Konan ákvað að fylgja mál­inu ekki eftir alla leið, en lét verða af því að kæra fyrr í ár eftir umræðu um brot lands­liðs­manna. 

Aron Einar hefur einnig neitað að hafa brotið gegn kon­unni. Í yfir­lýs­ingu fyrr í mán­uð­inum sagð­ist hann aldrei hafa fengið til­kynn­ingu um að hann væri undir grun. „Hafi ein­hver eitt­hvað út á mig að setja þá bið ég við­kom­andi vin­sam­leg­ast að hlífa mér ekki, ásaka mig frekar og nafn­greina og gefa mér kost á að verja mig. Það er heið­ar­legt.“

Málið er til rann­sóknar hjá lög­reglu.

Yfirlýsing Eggerts í heild sinni

Und­an­farnar vikur hafa fjöl­miðlar fjallað um atvik sem á að hafa átt sér stað í Kaup­manna­höfn árið 2010 þar sem tveir lands­liðs­menn hafa verið bornir þungum sökum. Ég er annar umræddra lands­liðs­manna. 

Það er hrika­legt áfall að vera ásak­aður um hræði­legt ofbeld­is­brot vegna atviks sem var svo sann­ar­lega ekki með þeim hætti sem lýst er í fjöl­miðlum. 

Ég hef reynt að skýla mér og fjöl­skyldu minni fyrir kast­ljósi fjöl­miðla þar sem ég hafði fram að birt­ingu fréttar Stund­ar­innar í dag ekki verið nafn­greindur. Föstu­dag­inn 1. októ­ber síð­ast­lið­inn hafði ég hins­vegar þegar óskað eftir því að vera boð­aður í skýrslu­töku til að skýra frá minni hlið. 

Þar sem ég hef ekki enn fengið tæki­færi til að skýra mál mitt á réttum vett­vangi og sökum umfjöll­unar frétta­miðla í dag tel ég mig hins­vegar ekki eiga annan kost en að stíga fram og lýsa því opin­ber­lega yfir að ég er full­kom­lega sak­laus af því sem ég hef verið sak­aður um. 

Ég vona að málið kom­ist í réttan far­veg hið snarasta svo ég geti hreinsað mig af þessum ásök­unum. 

Eggert Gunnþór Jónsson.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár