Þeir munu ekki hætta fyrr en þeir ná Úkraínu undir leppstjórn

Leita þarf langt aftur á Sov­ét­tím­ann til að finna alvar­legri stöðu í sam­skiptum Rúss­lands og Vest­ur­veld­anna að mati Árna Þórs Sig­urðs­sonar sendi­herra Íslands í Moskvu. Hann telur að tal Pútíns Rúss­lands­for­seta um hugs­an­lega beit­ingu kjarna­vopna sé glanna­leg ógnun sem gæti fengið aðra í rúss­nesku stjórn­kerfi til að hugsa sig tvisvar um.

Þeir munu ekki hætta fyrr en þeir ná Úkraínu undir leppstjórn
Telur Rússa ætla sér alla Úkraínu Árni Þór Sig­urðs­son sendi­herra í Moskvu telur að Pútín muni ekki hætta fyrr en rúss­neski her­inn hefur tekið alla Úkraínu yfir eða sett yfir landið lepp­stjórn. Enn hefur verið hert á árásum og meðal ann­ars var árás gerð á sjón­varps­turn í Kænu­garði í gær þar sem fimm lét­ust. Myndin að ofan er frá vett­vangi. Mynd: Dimitar DILKOFF / AFP

Árni Þór Sig­urðs­son, sendi­herra Íslands í Moskvu, segir að staðan í sam­skiptum Vest­ur­landa við Rússa nú sé sú alvar­leg­asta sem komið hafi upp í gríð­ar­lega langan tíma. Á tímum kalda stríðs­ins hafi alltaf verið opnar ein­hverjar sam­skipta­leiðir, póli­tískt og hern­að­ar­lega, en nú virð­ist sem svo sé ekki upp á ten­ing­unum. „Mér finnst ein­hvern veg­inn eins og það sem er að ger­ast núna sé af annarri stærð­argráðu og alvar­legra en við höfum séð um mjög langt skeið.“

Árni Þór var staddur hér á landi þegar Stundin ræddi við hann, kom til lands­ins í síð­ustu viku og til stóð að hann færi út til Rúss­lands um liðna helgi en af því varð ekki sökum þess að hann fékk Covid og komst því ekki í flug. Hann var því ekki úti í Rúss­landi þegar að inn­rásin í Úkraínu átti sér stað. „Ég er hins vegar alla daga í sam­skiptum við mitt fólk í sendi­ráð­inu og fylgist vel með rúss­nesku miðl­unum.“

„Almennir Rússar óska sér ekki stríðs­rekstrar“

Spurður hvernig hann meti huga almenn­ings í Rúss­landi gagn­vart inn­rásinni í Úkraínu og stríðs­rekstr­inum sem nú stendur yfir segir Árni Þór að hann telji að hann sé mjög blend­inn. „Eins og við er að búast þá er þarna fólk hlið­hollt stjórn­völdum sem fær flestar sínar upp­lýs­ingar úr fjöl­miðlum, sem er mest­an­part stýrt af rúss­neskum stjórn­völdum, og þær upp­lýs­ingar eru mjög skoð­ana­mynd­andi. Aðrir eru and­snúnir stríðs­rekstr­inum og við sjáum það á mót­mælum sem hafa verið í Moskvu, Pét­urs­borg og víðar. Ég held að það sé almenn­ari and­staða við stríðs­rekst­ur­inn heldur en and­staðan við stjórn­völd er. Almennir Rússar óska sér ekki stríðs­rekstrar.“

Telur hug Rússa blend­innÁrni Þór segir linnu­lít­inn áróður rúss­neskra stjórn­valda gegn Úkraínu hafa haft áhrif. Engu að síður vilji hinn almenni Rússi ekki stríð.

Áróður geisar í fjölmiðlum

Árni Þór nefnir að þær upp­lýs­ingar sem birt­ist í fjöl­miðlum séu mjög skoð­ana­mynd­andi enda séu allir stærstu fjöl­miðlar, þar á meðal sjón­varps­stöðv­arnar sem hafi afar mikil áhrif, á foræði rík­is­valds­ins. Það hafi mjög mikið að segja í áróð­urs­stríð­inu sem hafi geisað um margra ára skeið og standi enn gegn Úkraínu. Spurður hvort frétta­flutn­ingur sé þá algjör­lega ein­hlítur segir Árni Þór að aðrir miðlar séu, einkum vef­miðlar, séu til staðar sem séu óháðir. „Það komu í síð­ustu viku strax skila­boð frá stjórn­völdum um að fjöl­miðlar mættu bara fjalla um stríðs­rekst­ur­inn á grund­velli upp­lýs­inga sem þeir fengju frá stjórn­völdum, ann­ars ættu þeir á hættu að þeim yrði lokað. Þá var það líka gefið út að bannað væri að nota orðið stríð um stríðið, það ætti að nota sér­stakar hern­að­ar­að­gerðir (e. Special operations) en ég sé samt að það eru sumar frétta­stofur sem eru óhræddar við að tala um þetta sem stríð og stríðs­rekstur og þeim hefur ekki verið lokað, ekki enn alla vega.“

Í sögu­legu til­liti eru Rússar og Úkra­ínu­menn bræðra­þjóðir sem hafa átt mikið saman að sælda. Árni Þór segir að almennt sé hægt að segja að Rússar líti á Úkra­ínu­menn sem frændur og vini. Þó hafi linnu­lítið áróð­urs­stríð síð­ustu ára, alveg frá inn­limun Krím­skaga árið 2014 og raunar enn fyrr, haft áhrif á þessa afstöðu Rússa. „Þetta eru þjóðir sem eiga sam­eig­in­lega sögu í árhund­ruðir, tala svipað tungu­mál, báðar slav­neskar þjóðir og líta á hvora aðra sem frænd- eða bræðra­þjóðir. En það sem hefur staðið upp úr í umræðu í fjöl­miðlum und­an­farin ár um Úkraínu hefur verið mjög nei­kvætt og það end­ur­spegl­ast í við­horfum margra í sam­fé­lag­inu. Þetta er sem sagt ekki nýr mál­flutn­ingur. Þessi tónn í Pútín sjálfum upp á síðkastið er kannski heldur grodda­legri en verið hefur en sami tónn hefur verið eins og síbylja svo árum skiptir. Fólk heyrir því fátt annað og það eru því ýmsir sem leggja trúnað á þetta. Það er þó ekki ein­hlítt, það er fullt af fólki sem finnst þetta hrika­legt, á ætt­ingja og vini í Úkraínu og er áhyggju­fullt og skelf­ingu lostið.“

Viðbrögð við viðskiptaþvingunum gætu orðið tvíbent

Þær við­skipta­þving­anir sem Vest­ur­löndin hafa ráð­ist í gegn Rússum munu að mati Árna Þórs bíta en hann er ekki viss um hvaða afleið­ingar þær muni hafa á álit almenn­ings og stuðn­ing við Pútín for­seta. Aðgerð­irnar gætu orðið tví­bentar. „Við sjáum að hluta­bréfa­vísi­talan hefur fallið, gengi rúblunnar hríð­fellur, stýri­vextir voru hækk­aðir í 20 pró­sent úr 9 pró­sentum og verð­bólgu­spá seðla­bank­ans hefur tvö­fald­ast. Það mun því hafa áhrif á afkomu fólks, klár­lega. En við­brögðin geta verið í báðar áttir. Annars vegar gæti fólk bölvað stríðs­rekstr­inum og áhrifum hans í þessa veru og þar með auk­ist gagn­rýni á stjórn­völd. Hins vegar gætu ein­hverjir tekið hinn pól­inn í hæð­ina og kennt hinum vondu Vest­ur­lönd­unum um hvað þau fari illa með Rússa. Svo ég held að við­brögðin geti verið í báðar áttir.“

„Rússland er efna­hags­lega mun sterkara nú en 2014 þegar Krím­skagi var inn­limaður og inn­við­irnir eru sterk­ari“

En hversu vel er Rússland í stakk búið til að þola langvar­andi efna­hags­legar refsi­að­gerðir? Árni Þór segir að staða lands­ins sé betri nú en var fyrir nokkrum árum og það hafi verið unnið að því með mark­vissum hætti að byggja upp efna­hag Rúss­lands. „Gjald­eyr­is­vara­forð­inn er orð­inn nokkuð öfl­ugur og fram­leiðsla inn­an­lands hefur verið aukin. Rússland er efna­hags­lega mun sterkara nú en 2014 þegar Krím­skagi var inn­limaður og inn­við­irnir eru sterk­ari. Hins vegar sýn­ist mér að aðgerðir í banka­kerf­inu séu að frysta allt að helm­ing af gjald­eyr­is­vara­forða Rúss­lands. Lokunin á SWIFT greiðslu­kerf­inu þýðir líka að rúss­nesk fyr­ir­tæki geta ekki verið í við­skiptum við fyr­ir­tæki á Vest­ur­löndum og öfugt. Rússar geta því ekki selt sínar vörur og ekki heldur staðið í skilum með það sem þeir kaupa. Dæmi um þetta er að stór hluti flug­flota Rúss­lands eru leigu­vélar, eins og algengt er orðið í flug­rekstri, og nú er verið að inn­kalla þær, af hálfu eig­enda, því Rússar geta ekki staðið í skilum. Þannig að það er ekki bara það að milli­landa­flug stoppi hjá þeim, vegna flug­banns­ins, heldur hefur þetta líka áhrif á inn­an­lands­flugið með þessu. Þetta mun örugg­lega valda þeim veru­legum erf­ið­leikum.“

Menningarleg sniðganga mun bíta

Eitt af því sem verið hefur kallað eftir er að Rússland verði menn­ing­ar­lega snið­gengið. Landinu verði vísað úr íþrótta­keppnum og það jað­ar­sett í menn­ing­ar­sam­skiptum. Þegar hafa alþjóða íþrótta­sam­bönd og lands­sam­bönd í ýmsum íþrótta­greinum lýst því yfir að Rússum verði vísað úr keppnum og að lið muni ekki mæta rúss­neskum liðum. Þá hefur Rússum verið úthýst úr Söngvakeppni evr­ópskra sjón­varps­stöðva, svo dæmi séu nefnd. Árni Þór er ekki í vafa um að slík snið­ganga muni hafa áhrif. „Ég held að það sé nán­ast óum­deilt að það hefði áhrif á almenn­ings­á­litið. Bæði íþróttir og menn­ing skipa mjög veg­legan sess í rúss­nesku þjóð­fé­lagi þannig að það mun tví­mæla­laust hafa áhrif. En enn og aftur má minna á að ein­hverjir muni túlka það sem svo að hin vondu Vest­ur­lönd séu að koma fram við Rússland af lít­ils­virð­ingu. Þetta hefur samt örugg­lega áhrif á almenn­ing og íþrótta- og lista­fólkið sjálft sem í hlut á og þeirra mál­flutn­ingur gæti haft áhrif.“

Skrið­dreka­varnir á sjálf­stæð­is­torgiÚkra­ínskur vara­liðs­maður stendur hér vörð á Sjálf­stæð­is­torg­inu í Kænu­garði.

Árni Þór nefnir hér að framan að til séu þeir Rússar sem muni líta á allar refsi­að­gerðir, snið­göngu og andóf gegn Rúss­lands­stjórn sem lít­ils­virð­ingu Vest­ur­landa. Til eru þeir sem vilja halda því fram að Vest­ur­lönd hafi á und­an­förnum árum rekið Rússa út í horn í alþjóð­legum sam­skiptum og að menn hafi ekki sést fyrir í þeim efnum. Innrásin í Úkraínu sé þannig meðal ann­ars við­bragð við því. „Ég fylgist tals­vert með umræðu fræða­sam­fé­lags­ins á sviði alþjóða­stjórn­mála og þá sér maður rök­semdir sem ganga í þessa átt. Rússnesk stjórn­völd hafa haldið því fram að stækkun NATO í aust­urátt og að landa­mærum Rúss­lands sé ógn við öryggi lands­ins. Það er við­horf sem almenn­ingur í Rúss­landi sam­svarar sér með og upp­lifir vissa ógn fyrir vikið. Ef þú setur þig í spor Rússa er hægt að átta sig á því hvað átt er við. En jafn­vel þótt að stefna Vest­ur­landa hefði mögu­lega mátt vera ein­hvern veg­inn öðru­vísi þá breytir það ekki því að það sem rúss­nesk stjórn­völd eru að gera núna er langt út fyrir öll eðli­leg við­brögð við því.“

„Menn í kringum hann hljóti að hugsa sig um tvisvar eða þrisvar yfir þess­ari orð­ræðu“
Árni Þór Sig­urðs­son
um yfir­lýs­ingar Pútíns varð­andi notkun kjarna­vopna

Pútín lýst því yfir á dög­unum að sveitir hers­ins sem eiga að sjá um beit­ingu kjarn­orku­vopna í yrðu settar í við­bragðs­stöðu. Hversu lík­legt þykir Árna Þór að for­set­inn rúss­neski sé með því að stíga alvöru skref í átt að beit­ingu gjör­eyð­ing­ar­vopna?

„Á þessu stigi þykir mér það frekar ósenni­legt. Ég tel að þetta sé ein­hvers konar hótun. Stríðs­rekst­ur­inn gengur aug­ljós­lega ekki eins og lagt var upp með. Ég tel að þetta hafi verið mjög glanna­leg hótun og ekki lík­legt að af þessu verði eins og sakir standa. En ég held að þetta hljóti að verða til þess að menn í kringum hann hljóti að hugsa sig um tvisvar eða þrisvar yfir þess­ari orð­ræðu. Hvort að þeir hinir sömu muni láta á sér kræla er svo annað mál. Hann hefur auð­vitað alls­herj­ar­vald í raun og veru. Spurn­ingin er bara hvort ein­hverjir úr æðstu lögum stjórn­kerf­is­ins eða í hernum myndu stíga niður fæti. Það er mjög óljóst og ég efast um að það yrði nema um væri að ræða ein­hver sam­an­tekin ráð ein­hvers hóps og ég sé það ekki alveg ger­ast. Hvað varðar stjórn­ar­and­stöð­una í Rúss­landi þá hefur hún alltaf verið mjög tætt. Það eru flokkar í þing­inu fyrir utan flokk Pútíns, eins og komm­ún­ista­flokk­ur­inn og öfga hægri­flokk­ur­inn en þeir eru meira og minna sam­mála Pútín í þessum efnum, og finnst hann jafn­vel ekki gera nóg. Svo eru það aðrir and­stæð­ingar stjórn­valda, sem eru ekki með full­trúa í þing­inu, sem eru ekki endi­lega sam­stíga í þessum fremur en öðru.“

Rússar munu ekki hætta

Árni er eng­inn nýgræð­ingur í mál­efnum Rúss­lands. Hann nam hag­fræði og rúss­nesku í Ósló­ar­há­skóla og síðan fram­halds­nám í slav­neskum mál­vís­indum við Stokk­hólms­há­skóla og Moskvu­há­skóla á árunum 1986-1988, á tímum Sov­ét­ríkj­anna. Þá var hann frétta­rit­ari Rík­is­út­varps­ins í Moskvu árið 1988. Árni Þór var sendi­herra Íslands í Finn­landi áður en hann tók við sendi­herra­stöðu í Moskvu, og fór þá með fyr­ir­svar fyrir diplómat­ísk sam­skipti við Úkraínu. Spurður hvort hann telji að hægt sé að finna dæmi um álíka spennu í sam­skiptum við Rússland áður segir Árni Þór að til þess þurfi alla vega að leita aftur til tíma Sov­ét­ríkj­anna, og þá mjög langt aftur.

„Ég held að þetta sé ein­hver alvar­leg­asta staða sem komið hefur upp í sam­skiptum Rúss­lands við Vest­ur­lönd um mjög langt skeið. Á tímum kalda stríðs­ins var alltaf eitt­hvað tal­sam­band. Auðvitað skipt­ust á skin og skúrir á þeim tíma en það voru samt alltaf opnar ein­hverjar sam­skipta­leiðir, bæði á póli­tíska svið­inu og hern­að­ar­lega svið­inu. Mér finnst ein­hvern veg­inn eins og það sem er að ger­ast núna sé af annarri stærð­argráðu og alvar­legra en við höfum séð um mjög langt skeið. Þetta er mjög alvar­leg staða að mínum dómi.“

Spurður hvort hann geti spáð fyrir um hvað ger­ast muni á næstu dögum og vikum segir Árni Þór það því sem næst ómögu­legt. „Hvort við­ræður milli Rússa og Úkra­ínu­mann leiða til ein­hvers veit maður ekki. Úkra­ínu­menn eru ekki mjög bjart­sýnir á það. Kröfur þeirra eru auð­vitað vopna­hlé og að Rússar dragi her­lið sitt til baka. Miðað við hvað Rússar hafa lagt mikið undir þá sé ég það ekki ger­ast og maður ótt­ast að Rússar haldi bara áfram. Markmið þeirra sé að ná Úkraínu allri á sitt vald og hætta jafn­vel ekki þar. Ég tel það þó varla, ég held að mark­mið þeirra hafi verið að ná Úkraínu undir lepp­stjórn og þeir muni ekki hætta fyrr en því mark­miði hefur verið náð. Það getur tekið lengri tíma en þeir töldu í upp­hafi og með þeim hörm­ungum sem slíkur stríðs­rekstur hefur í för með sér, ekki síst fyrir almenn­ing. Mér þykir það hrika­leg til­hugsun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón M Ívarsson skrifaði
    Það er dálítið sérstakt að fylgjast með hinni miklu samstöðu Vesturlanda gegn árás Rússlands á Úkraínu þegar við höfum hliðstætt dæmi sem enginn minnist á, en það eru árásir Ísraels á Palestínu. Hver er munurinn?
    0
  • Sigurður Þórarinsson skrifaði
    Fjölmiðlar hafa ávallt verið notaðir til áróðurs í stríðsátökum... gildir þá einu hvort það er Rússaveldi eða þá einhverjir aðrir sem standa fyrir átökunum:

    https://www. commondreams. org/views/2022/02/28/so-what-it-looks-when-corporate-media-opposes-war
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár