Segja Rússa stunda „drónaveiðar“ á fólki

„Svona veiða Rússar almenna borg­ara,“ segir umboðs­maður mann­rétt­inda í Úkraínu. Myndband sýnir græn­met­is­sala eltan af fjar­stýrðum árás­ar­dróna.

Segja Rússa stunda „drónaveiðar“ á fólki
Slasaður borg­ari Maður fær fyrstu hjálp eftir að hafa orðið fyrir loft­árás í Zaporizhzhia-hér­aði í Úkraínu um helg­ina. Mynd: AFP

Úkra­ínu­menn lýsa yfir hneykslan vegna mynd­bands sem sýnir mann eltan af dróna í borg­inni Kherson. Atvikið er for­dæmt sem vís­vit­andi „veiðar“ og „safarí“ sem bein­ist að almennum borg­urum.

Í mynd­band­inu, sem frétta­stofa AFP gat ekki sann­reynt strax, leitar maður skjóls á bak við bif­reið fyrir fjar­stýrðum FPV-dróna (first-per­son view) sem eltir hann áður en sprengi­hleðsla hans springur.

Maðurinn, sem var að selja græn­meti á götu­mark­aði í suð­ur­hluta borg­ar­innar, „hlaut áverka en lifði af“, sagði Yaroslav Shanko, yfir­maður her­stjórnar Kherson-borgar, á Telegram.

„Ég var nýbú­inn að setja upp regn­hlíf­arnar og byrj­aður að taka kass­ana út ... Konan mín var þar líka. Við heyrðum suð,“ sagði fórn­ar­lambið, 52 ára maður að nafni Yuriy, í mynd­bandi sem yfir­völd á staðnum birtu.

Hann hlaut sprengju­á­verka, sár af völdum sprengju­brota og heila­hrist­ing en líf hans er ekki í hættu, skrif­aði Oleksandr Prokudin, hér­aðs­stjóri Kherson, á Telegram.

„Í dag voru margir slegnir yfir enn einu mynd­band­inu af dróna-„safa­ríi“ sem Rússar stunda gegn almennum borg­urum í Kherson,“ sagði Volody­myr Zelensky, for­seti Úkraínu, á X og end­ur­birti mynd­bandið.

„Heim­ur­inn verður að sjá þetta. Hann verður að sjá öll sönn­un­ar­gögn um að Rússland sé orðið sturlað og að her­menn þess hafi ánægju af því að drepa og mis­þyrma almennum borg­urum,“ bætti hann við.

Atvikið „krefst alþjóð­legrar for­dæm­ingar og rétt­lætis“, sagði Andriy Sybiga utan­rík­is­ráð­herra á X og kall­aði það „bar­barískan rúss­neskan stríðs­glæp“.

„Þetta er vís­vit­andi og kerf­is­bundin rúss­nesk her­kænska ... Sad­ist­inn sem stýrir þessum dróna veit mæta­vel að hann er að beina spjótum sínum að almennum borg­ara,“ bætti hann við.

Dmytro Lubinets, umboðs­maður mann­rétt­inda í Úkraínu, sagði að „mynd­bandið sýni raun­veru­lega aðferð Rúss­lands – að elta og drepa sak­laust fólk“.

„Heim­ur­inn verður að horfa á án þess að líta undan. Svona veiða Rússar almenna borg­ara,“ sagði Lubinets.

Borgin Kherson, þar sem bjuggu um 280.000 manns fyrir stríðið, var undir stjórn Rússa frá mars til nóv­em­ber 2022.

Rúss­neskar her­sveitir, sem nú eru stað­settar á gagn­stæðum bakka Dnjepr-fljóts – sem rennur fram hjá borg­inni – gera reglu­lega árásir á hana, sér­stak­lega með drónum.

Samkvæmt Sam­ein­uðu þjóð­unum hefur dauðs­föllum meðal almennra borg­ara fjölgað í átök­unum á árinu 2026, á meðan fjög­urra og hálfs árs stríðið heldur áfram án þess að nokkur merki séu um frið­ar­sam­komu­lag.

Rússnesk yfir­völd saka stjórn­völd í Kyiv einnig reglu­lega um að beina dróna­árásum vís­vit­andi að almennum borg­urum, sér­stak­lega á rúss­neskum svæðum sem liggja að Úkraínu.

Í vik­unni lét­ust almennir borg­arar á strönd á Krím­skaga þegar úkra­ínskur dróni lenti þar og sprakk, en að sögn Úkra­ínu­manna hafði drón­inn verið skot­inn niður á leið sinni að hern­að­ar­legu skot­marki.

Kjósa
-1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár