Pútín fundar um endalok Úkraínustríðsins

Banda­rískir erind­rekar, tengda­sonur Trumps og við­skipta­fé­lagi, sátu í þrjá tíma með Vladimír Pútín í kvöld.

Pútín fundar um endalok Úkraínustríðsins
Pútín í dag Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seti fund­aði með banda­rísku sendi­full­trú­unum Steve Witkoff og Jared Kushner í dag til að ræða um hvernig binda megi enda á stríðið í Úkraínu sem þá hafði staðið í meira en fjögur ár. „Ástandið er auð­vitað ekki ein­falt,“ sagði Pútín við banda­rísku emb­ætt­is­menn­ina í myndefni sem sýnt var á rúss­neskum rík­is­fjöl­miðlum. Mynd: Sputnik

Vladimír Pútín, leið­togi Rúss­lands, átti um þriggja klukku­stunda langan fund í Kreml í kvöld með banda­rísku sendi­mönn­unum Jared Kushner og Steve Witkoff um að binda enda á rúm­lega fjög­urra ára stríð við Úkraínu, áður en þeir heim­sækja Kænugarð í fyrsta sinn á morgun.

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, hefur sagt að tengda­sonur sinn, Kushner, og við­skipta­fé­lagi hans, Witkoff, séu með „til­lögu“ um að binda enda á átökin.

Við­ræð­unum lauk eftir rúm­lega þrjár klukku­stundir, eftir klukkan 23:00 í Moskvu.

Sendi­menn­irnir eru vænt­an­legir til höf­uð­borgar Úkraínu á morgun í fyrsta sinn, þar sem Trump-stjórnin reynir að end­ur­vekja við­ræður undir for­ystu Banda­ríkj­anna til að binda enda á verstu átök Evrópu frá lokum síð­ari heims­styrj­aldar.

Bæði Rússland og Úkraína sam­þykktu að gera ekki árásir á höf­uð­borgir hvors ann­ars í þrjá daga til að leyfa samn­inga­við­ræð­unum að fara fram.

Í sjón­varps­við­tali áður en við­ræð­urnar hófust fyrir luktum dyrum þakk­aði Pútín Trump fyrir að „hætta ekki“ …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár