Namibískur lögmaður segir forsetann aðalmanninn í Samherjamálinu

Namibíski lög­mað­ur­inn Maren de Klerk segir að for­seti Namibíu Hage Geingob hafi verið aðal­mað­ur­inn í spill­ing­ar­mál­inu sem kallað er Sam­herj­a­málið á íslensku. Ef de Klerk segir rétt frá er málið, sem hófst með því að sagt var frá mútu­greiðslum Samherja í land­inu, dýpra og stærra en áður hefur verið talið og snýst meðal ann­ars um æðsta ráða­mann þjóð­ar­innar.

Namibískur lögmaður segir forsetann aðalmanninn í Samherjamálinu
Bendl­aður við Sam­herj­a­málið Namibískur lög­maður bendlar Hage Geingob for­seta við Sam­herj­a­málið í nærri 500 blað­síðna yfir­lýs­ingu. Mynd: RODGER BOSCH / AFP

Namibíski lög­mað­ur­inn, Maren de Klerk, bendlar for­seta Namibíu, Hage Geingob, við Sam­herj­a­málið svo­kall­aða í Namib­íu­mál­inu í yfir­lýs­ingu til ákæru­valds­ins þar í landi. Í yfir­lýs­ing­unni segir de Klerk að tveir af sak­born­ing­unum í Sam­herj­a­mál­inu, Sacky Shangala og James Hatuikulipi, sem sitja á gæslu­varð­haldi og verða ákærðir fyrir að hafa þegið mútur af Samherja, hafi notað sömu félög og þeir not­uðu til að milli­færa pen­inga  frá íslenska útgerð­ar­fé­lag­inu til að fjár­magna ráð­andi stjórn­mála­flokk­inn í land­inu, Swapo.

Samkvæmt því sem de Klerk segir köll­uðu þeir Sacky og James for­seta lands­ins, Hage Geingob, „The boss“ og segir hann að þeir hafi unnið að und­ir­lagi hans við fjá­mögnun Swapo. Yfir­lýs­ing de Klerks, sem er 477 blað­síður, barst til yfir­valda í Namibíu í apríl í fyrra í tengslum við rann­sókn máls­ins. De Klerk vann fyrir Shangala og Hatuikulipi við meðal ann­ars milli­færslu fjár­muna og verður hann mögu­lega ákærður fyrir aðkomu sína að mál­inu. Sökum þess hefur de Klerk verið kall­aður „the Fishrot paymaster“ í namibískum miðlum, mað­ur­inn sem milli­færði pen­ing­ana í mál­inu. 

Orðétt segir de Klerk í yfir­lýs­ing­unni: „Shangala og Hatuikulipi útskýrðu fyrir mér að þeim hafi verið fyr­ir­skipað, af Hage Geingob for­seta, sem þeir köll­uðu „stjór­ann“, að setja upp félaga­net til að sjá um útdeil­ingu fjár­fram­laga sem greidd höfðu verið til Swapo og rík­is­stjórn­ar­innar af stuðn­ings­mönnum þeirra.“

Kannski stærra og dýpra mál

Yfir­lýs­ing de Klerks bendir til að Sam­herj­a­málið, sem kallað er Fishrot á ensku vegna þess að það snýst um spill­ingu í sjáv­ar­út­vegi lands­ins, sem hófst með frétta­flutn­ingi af mútu­greiðslum Samherja til áhrifa­manna í Namibíu í nóv­em­ber árið 2019, sé tals­vert stærra í sniðum en hingað til hefur talið og snú­ist um fleiri fyr­ir­tæki og aðila en íslensku útgerð­ina.

Upphaf máls­ins má hins vegar rekja til frétta­flutn­ings­ins af mútu­greiðslum Samherja til namibísku áhrifa­mann­anna en frek­ari rann­sókn á því kann hins vegar að leiða í ljós ennþá stærra og dýpra spill­ing­ar­mál en að það snú­ist ein­göngu um greiðsl­urnar frá Samherja. Málið kann jafn­vel að tengj­ast sjálfum for­seta lands­ins en hann neitar allri vit­neskju um málið. 

Þeir sem sitja í gæslu­varð­haldi í Namibíu nú gera það hins vegar á grund­velli þess að hafa þegið mútur frá Samherja sér­stak­lega eins og greint var frá í Kveik, Stund­inni og Al Jazeera, á grund­velli gagna frá Wikileaks, í nóv­em­ber 2019. 

„Stjóri stjór­anna“Forsíða The Namibian í dag segir sög­una um vitn­is­burð de Klerks sem sést hér ásamt Geingob eða „stjóra stjór­anna“, aðal­mann­inum í mál­inu að sögn de Klerk. Fyrir neðan þá eru James og Sacky.

De Klerk: Sömu félögin notuð

Eins og de Klerk lýsir því þá kann­að­ist hann við nokkur af þeim félögum sem notuð voru í fjár­magns­flutn­ing­unum í mál­inu.  Eins og segir í yfir­lýs­ingu de Klerks: „Rann­sóknin á Sam­herj­a­mál­inu [e. The fis­hrot investigation] varð opin­ber í fjöl­miðlum í lok nóv­em­ber árið 2019. Ég kann­að­ist við nöfn nokk­urra þeirra fyr­ir­tækja sem tengd­ust þeim atburðum sem leiddu til rann­sókn­ar­innar á mál­inu.“

Stundin fjall­aði um nokkur þess­ara félaga fyrir skömmu. 

Greiðsl­urnar og við­skiptin sem de Klerk kom að tengd­ust Samherja hins vegar ekki með beinum hætti jafn­vel þó félögin sem Shangala og Hatuikulipi not­uðu í fjár­mags­færsl­urnar hafi verið þau sömu í ein­hverjum til­fellum. 

Í kjöl­farið tal­aði de Klerk við yfir­mann á lög­fræði­skrif­stof­unni þar sem hann starfar og varð úr að fyr­ir­tækið hafði sam­band við namibísk yfir­völd út af aðkomu de Klerk að fjár­magns­færslum fyrir hönd Shangala og Hatuikulipi. 

Í des­em­ber árið 2019 fékk lög­mann­stofa de Klerks einnig fyr­ir­mæli um það frá namibískum yfir­völdum að halda eftir öllum fjár­munum sem Swapo-flokk­ur­inn og James og Sacky áttu og voru í vörslu lög­mann­stof­unnar. Þessi aðgerð var liður í því sem namibísk yfir­völd áttu síðar eftir að gera við sak­born­ing­ana í Sam­herj­a­mál­inu: Að kyrr­setja eignir þeirra.

De Klerk lendir í vandræðum

Jafnvel þó de Klerk hafi látið yfir­völd vita um aðkomu sína að mál­inu þá var hann gagn­rýndur fyrir það á fundi með namibísku spill­ing­ar­lög­regl­unni ACC að hafa gert það seint, eða um miðjan jan­úar 2020. Í yfir­lýs­ing­unni segir hann: „Þegar ég kom á skrif­stofur ACC var and­rúms­loftið nokkuð fjand­sam­legt. Á móti mér tók hópur sjö til átta manna [….] Ég var spurður spurn­inga sem ég var alls­endis ekki við­bú­inn. […] tjáði mér að ACC vissi um greiðsl­urnar sem ég hafði innt af hendi fyrir Shangala og ég varð að útskýra af hverju ég hafði ekki komið til þeirra í nóv­em­ber 2019 þegar Sam­herja­rann­sóknin var opin­beruð í fjöl­miðlum.“

De Klerk sagð­ist hafa talað við stofn­un­ina FIC, eða Financial Intelligence Unit sem er Fjár­mála­eft­ir­lit Namibíu, og talið að þetta væri nóg. Hann segir hins vegar að eftir á að hyggja hefði hann átt að fara til ákæru­valds með málið. 

Í kjöl­farið á þessum með nambísku spill­ing­ar­lög­regl­unni fékk de Klerk tauga­á­fall, segir hann í yfir­lýs­ing­unni. Hann fór til Suður-Afríku og leit­aði sér lækn­inga og hefur verið þar síðan og hafa yfir­völd í Namibíu gefið út hand­töku­skipun gegn honum. De Klerk telur hins vegar að hann muni ekki fá rétt­láta máls­með­ferð í Namibíu í ljósi þess að hann er að ásaka for­seta lands­ins um spill­ingu. De Klerk kann að eiga yfir höfði sér ákæru vegna aðkomu sinnar að mál­inu og hafa namibísk yfir­völd reynt að fá hann fram­seldan frá Suður-Afríku. 

„Umrætt mál er á við­kvæmu stigi þar sem rík­is­sak­sókn­ar­inn hefur tekið ákvörðun og brátt fer málið fyrir dóm.“
Hage Geingob

Forsetinn hafnar ásökunum

Í gær sendi for­seti Namibíu frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hann hafn­aði því að hafa vitað um og að tengj­ast Sam­herj­a­mál­inu. Gengob sagði að ásak­an­irnar væru „ósann­gjarnar“ og „óheppi­legar“.  „Umrætt mál er á við­kvæmu stigi þar sem rík­is­sak­sókn­ar­inn hefur tekið ákvörðun og brátt fer málið fyrir dóm. For­set­inn mun ekki reyna að grafa undan eða hafa áhrif á gang þessa máls í kerf­inu með því að setja fram full­yrð­ingar opin­ber­lega.“ Geingob seg­ist mögu­lega tjá sig um málið nánar að rétt­ar­höld­unum liðnum. 

Samkvæmt upp­still­ingu namibíska blaðs­ins The Namibian þá var Geingob „stjóri stjór­anna“ í mál­inu eða „Boss of bosses“, sam­kvæmt de Klerk, eins og stendur á for­síð­unni í dag á ensku. Með þessu orða­lagi leggur blaðið út frá ítalska orða­lag­inu „capo di tutti capi“ sem notað er um hátt­settan ráða­mann í mafí­unni á Ítalíu. Blaðið er því að segja að de Klerk sé að segja að Geingob sé eins konar glæpafor­ingi í mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
6
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár