Samverkamenn Samherja hætta eftir áralöng störf

Fram­kvæmda­stjóri þýsks dótt­ur­fé­lags Samherja, Haraldur Grét­ars­son, hefur ákveðið að hætta, en segir ákvörð­un­ina ekki tengj­ast rann­sóknum á Samherja á Íslandi, Noregi og í Namibíu. Baldvin Þor­steins­son tekur við starfi hans. Einn af stjórn­ar­mönnum Samherja, Sigrún Björk Jak­obs­dóttir, er einnig hætt í stjórn Samherja eftir að hafa verið í stjórn­inni frá árinu 2013.

Samverkamenn Samherja hætta eftir áralöng störf
Tekur við af Haraldi Baldvin Þor­steins­son, sonur Þor­steins Más Bald­vins­sonar, tekur við starfi Haraldar Grét­ars­sonar. Bæði inn­lenri og erlendri starf­semi Samherja verður því stýrt beint af feðg­unum Þor­steini og Baldvini.

Einn af lyk­il­stjórn­endum Sam­herj­a­sam­stæð­unnar, Haraldur Grét­ars­son, fram­kvæmda­stjóri þýsks dótt­ur­fé­lags Samherja, DFFU, segir að hann hafi ein­göngu ákveðið að hætta hjá félag­inu af per­sónu­legum ástæðum. Haraldur segir aðspurður að ákvörðun sín teng­ist ekki með nokkrum hætti þeim rann­sóknum á við­skipta­háttum Samherja sem nú standa yfir á Íslandi, Namibíu og í Noregi. Rann­sókn­irnar snúa að mútu­greiðslum í Namibíu, sem Samherji greiddi til að kom­ast yfir kvóta í Namibíu, sem greint var frá í nóv­em­ber árið 2019, en einnig að pen­inga­þvætti og skatta­laga­brotum.

Hafa gegnt trún­að­ar­störfum lengiÞau Haraldur Grét­ars­son og Sigrún Björk Jak­obs­dóttir hafa bæði gegnt trún­að­ar­störfum fyrir Samherja lengi en stíga nú bæði til hliðar.

Samherji greindi sjálfur frá starfs­lokum Haraldar á heima­síðu sinni þann 4. jan­úar en ástæða starfs­lokanna var ekki mjög skýr í þeirri umfjöllun. 

Haraldur: Persónuleg ákvörðun

Haraldur hefur unnið hjá Samherja frá árinu 1992, þegar hann var 24 ára gam­all, og er því að ná 30 ára …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár