Kaldi þolir vel kulda

Finnur Kaldi Jök­uls­son hefur stundum velt því fyrir sér að verða jökla­leið­sögu­maður til að standa undir nafni. Það myndi líka að sumu leyti henta honum vel enda er hann við­kvæmur fyrir hita.

Kaldi þolir vel kulda
Fékk nafnið frá langaafa sínum Finnur Kaldi heitir eftir skálda­nafni langaaf síns, Jóns kalda frá Kald­að­ar­nesi. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Kalda-nafnið kemur frá langafa mínum. Þetta er ekki ætt­ar­nafn heldur tók hann það upp sem skálda­nafn. Langafi minn var sem sagt Jón Sig­urðs­son frá Kald­að­ar­nesi, rit­höf­undur og þýð­andi, sem kall­aði sig Jón kaldi frá Kald­að­ar­nesi og ég er skírður þessu nafni eftir honum. Ég er stoltur af nafn­inu og ánægður með það en það kemur fyrir að fólk trúi mér ekki þegar ég kynni mig, það heldur að ég sé bara að gera grín en svo er auð­vitað ekki, ég heiti bara Finnur Kaldi Jök­uls­son. Það hefur samt ekki bakað mér nein vand­ræði, nema kannski ein­hver skemmti­leg vand­ræði. Ég er í námi í Lista­há­skól­anum og stunda mína list og kannski mun nafnið hjálpa til við að koma mér á fram­færi, það er auð­vitað eft­ir­minni­legt. Ég merki alltaf mín verk Finnur Kaldi, en list er auð­vitað ekki bara nafnið, maður verður að geta eitt­hvað og gera eitt­hvað.

Maður heyrir stundum brand­ara um fólk sem er starf­andi í ein­hverjum starfs­greinum sem passa við nöfnin þeirra. Ég hef stundum hugsað um að það væri gaman að vera jökla­leið­sögu­maður, bara út af nafn­inu mínu. Það gæti líka hentað mér vel, ég er mjög við­kvæmur fyrir hita en þoli vel kulda, það er kannski tengt nafn­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár