Náin samskipti auka hamingjuna

Náin sam­skipti við fjöl­skyldu og vini, sál­fræði­tímar, trúin, úti­vera og það að hlæja og taka sjálfan sig ekki of alvar­lega eru þættir sem Árelía Eydís Guð­mundsóttir, dós­ent í stjórnun og leið­toga­fræðum, notar til að við­halda og finna ham­ingj­una – stundum eftir áföll eins og dauðs­föll og skiln­aði. „Þá er mik­il­vægt að vera ánægður með það sem maður hefur en ekki óánægður með það sem maður hefur ekki.“

Náin samskipti auka hamingjuna

„Ham­ingjan í mínum huga er það að vera sáttur við sjálfan sig og líf sitt,“ segir Árelía Eydís Guð­munds­dóttir, rit­höf­undur og dós­ent við við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands.

„Svo er til eitt­hvað sem heitir ham­ingju­stundir þar sem fólk kannski upp­lifir sig vera í góðu flæði við lífið. Þegar maður er í flæði með líf­inu þá upp­lifir maður það til dæmis í sam­skiptum við fólk, nátt­úr­una eða í verk­efnum í vinn­unni eða í sköp­un­ar­ferli þannig að það er ham­ingju­til­finn­ing sem ég held að flestir þekki þegar þeir upp­lifa að hann/hún sé rétt mann­eskja á réttum stað á réttum tíma. Ham­ingjan snýst að mínu mati fyrst og fremst um að vera sáttur.“

„Maður þarf að læra að það sé eðli­legur hluti af ferl­inu að falla eða brotna, að leyfa sér að þjást“

Margir upp­lifa ýmiss konar áföll og þá þarf fólk að gera ýmis­legt til að finna ham­ingj­una á ný. „Ég held að það …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamingjan

Fjallgöngur veita hamingju
Hamingjan

Fjall­göngur veita ham­ingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finn­ist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki ham­ingjan að vera alltaf ein­hvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregð­ast við ef það finnur fyrir óham­ingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlut­ina. Fjall­göngur hjálp­uðu Jóhönnu Fríðu í kjöl­far sam­bands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem far­ar­stjóri í auka­vinnu.
„Ég þurfti að samþykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“
Hamingjan

„Ég þurfti að sam­þykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Frið­riks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um ára­bil var hún skot­spónn bekkj­ar­fé­laga sinna og upp­lifði sig eina þótt hún ætti vin­konur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við til­finn­inga­doð­ann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risa­stórt og ótrú­lega ógn­væn­legt skref,“ segir Ingileif sem er nú ham­ingju­sam­lega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár