Maður varð heill

Guð­mundur Andri Thorsson segir að þegar eitt­hvað kemur upp á í líf­inu verði maður bara að standa á fætur aftur, hrista sig og halda áfram. Það að vinna úr hlut­unum á jákvæðan hátt sé alltaf ákvörðun. Guð­mundur Andri og eig­in­kona hans gátu ekki eign­ast barn og ákváðu því að ætt­leiða og eiga tvær upp­komnar dætur. Þegar hann hafi fengið eldri dótt­ur­ina í fangið þá hafi hann orðið heill.

Maður varð heill

Guð­mundur Andri Thorsson seg­ist alltaf hafa verið frekar ham­ingju­samur og hann seg­ist ekki hafa orðið fyrir telj­andi áföllum í líf­inu.

„Ég átti góða for­eldra sem elsk­uðu mig og gerðu allt sem þau gátu fyrir mig, góðan bróður og allt í kringum mig hef ég átt góða að alla ævi. Þetta er afskap­lega mik­il­vægt. Ég eign­að­ist ungur und­ur­sam­legan lífs­föru­naut, Ingi­björgu Eyþórs­dóttur. Við höfum verið par síðan við vorum í kringum 23 ára og líf okkar saman hefur eig­in­lega verið sam­fellt sam­tal; meira að segja líka þegar við þegjum saman. Ég hef átt þess kost að fást við það sem mér finnst skemmti­legt alla ævi; bóka­stúss og rit­störf, músík og mann­leg sam­skipti. Ég hef verið gæfu­samur í líf­inu.

Auðvitað lendum við öll í alls konar á lífs­leið­inni. Maður upp­lifir missi, maður fær hafn­anir, maður getur fallið á alls konar prófum, manni mis­tekst eitt­hvað og manni verður á. Ég hef fengið minn skerf …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hamingjan

Fjallgöngur veita hamingju
Hamingjan

Fjall­göngur veita ham­ingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finn­ist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki ham­ingjan að vera alltaf ein­hvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregð­ast við ef það finnur fyrir óham­ingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlut­ina. Fjall­göngur hjálp­uðu Jóhönnu Fríðu í kjöl­far sam­bands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem far­ar­stjóri í auka­vinnu.
„Ég þurfti að samþykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“
Hamingjan

„Ég þurfti að sam­þykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Frið­riks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um ára­bil var hún skot­spónn bekkj­ar­fé­laga sinna og upp­lifði sig eina þótt hún ætti vin­konur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við til­finn­inga­doð­ann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risa­stórt og ótrú­lega ógn­væn­legt skref,“ segir Ingileif sem er nú ham­ingju­sam­lega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.
Fann frelsi og hamingju við að ganga á fjöll
Hamingjan

Fann frelsi og ham­ingju við að ganga á fjöll

Hanna Gréta Páls­dóttir hefur nokkrum sinnum staðið á kross­götum í líf­inu og ekki verið á þeim stað sem hún hefði viljað vera á. Hún breytti um lífs­stíl fyrir um ára­tug og fór að ganga á fjöll. Þá fór hún að upp­lifa ham­ingj­una en það er jú sagt að göngur séu góðar fyrir lík­ama og sál. „Eftir 17 tíma göngu var ég ósigr­andi, full af sjálfs­trausti og ham­ingju­söm,“ segir hún um eina göng­una.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár