„Ég þurfti að samþykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Frið­riks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um ára­bil var hún skot­spónn bekkj­ar­fé­laga sinna og upp­lifði sig eina þótt hún ætti vin­konur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við til­finn­inga­doð­ann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risa­stórt og ótrú­lega ógn­væn­legt skref,“ segir Ingileif sem er nú ham­ingju­sam­lega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Ingileif Frið­riks­dóttir segir að þegar hún var barn og ung­lingur hafi hún verið ansi góð í því að fela það hvernig henni leið. Hún segir að það hafi verið ákveðin ein­elt­is­menn­ing í skól­anum og að í nokkur ár eftir að hún hóf skóla­göngu hafi hún oft verið skot­spónn leið­inda frá strák­unum í bekknum. „Þeim fannst fyndið að stríða mér því ég reyndi yfir­leitt að standa upp fyrir sjálfri mér. Ég nefndi þetta einu sinni við kenn­ara sem svar­aði mér með því að „strákar stríða bara stelpum því þeir eru skotnir í þeim“. Og þar með var búið að normalísera leið­indi og nið­ur­læg­ingu frá strákum; þeir væru nú bara svo skotnir í mér.“

Ingileif segir að þegar hafi liðið á skóla­göng­una hafi svo stelpu­hópur innan bekkj­ar­ins farið að taka undir með strák­unum. „Ég upp­lifði mig oft mjög eina. Ég átti vissu­lega vin­konur sem ég lék við en ég held að …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnúsdóttir skrifaði
    ALLIR MEGA HAGA SÍNU LÍFI EINS OG ÞEIR EINIR VILJA SVO FRAMAR LEGA EF ENGIR GLÆPIR SPILA ÞAR INN Í SVO FINNST MER AÐ FÓLK ÆTTI AÐ LÁTA ÞAÐ VERA AÐ VERA AÐ SKIKKA FÓLK INN Á SÍNA LINU ÞÓTT OÐRUM LIKI ÞAÐ EKKI SEM ÞEIR SJÁ HJÁ OÐRUM AÐ ÞEIRRA MATI
    1
  • Ása Harðardóttir skrifaði
    <3 <3 <3
    0
  • Thordis Arnadottir skrifaði
    ✨♥️
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hamingjan

Hamingjan

Fjall­göngur veita ham­ingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finn­ist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki ham­ingjan að vera alltaf ein­hvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregð­ast við ef það finnur fyrir óham­ingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlut­ina. Fjall­göngur hjálp­uðu Jóhönnu Fríðu í kjöl­far sam­bands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem far­ar­stjóri í auka­vinnu.
Hamingjan

Fann frelsi og ham­ingju við að ganga á fjöll

Hanna Gréta Páls­dóttir hefur nokkrum sinnum staðið á kross­götum í líf­inu og ekki verið á þeim stað sem hún hefði viljað vera á. Hún breytti um lífs­stíl fyrir um ára­tug og fór að ganga á fjöll. Þá fór hún að upp­lifa ham­ingj­una en það er jú sagt að göngur séu góðar fyrir lík­ama og sál. „Eftir 17 tíma göngu var ég ósigr­andi, full af sjálfs­trausti og ham­ingju­söm,“ segir hún um eina göng­una.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár