Kristín Völundardóttir verður áfram forstjóri Útlendingastofnunar

Staðan ekki aug­lýst þrátt fyrir mjög harða gagn­rýni síð­ustu ár. Traust á Útlend­inga­stofnun hefur reynst lítið og hún ítrekað farið gegn lögum. Kristín sneri til baka í for­stjóra­stól í dag eftir náms­leyfi og mun að óbreyttu sitja næstu fimm árin.

Kristín Völundardóttir verður áfram forstjóri Útlendingastofnunar
Situr áfram næstu fimm ár Kristín Völ­und­ar­dóttir verður áfram for­stjóri Útlend­inga­stofn­unar. Mynd: Skjáskot

Kristín Völ­und­ar­dóttir verður for­stjóri Útlend­inga­stofn­unar áfram næstu fimm árin. Núver­andi skip­un­ar­tími hennar í for­stjóra­stól rennur út 1. júní næst­kom­andi en dóms­mála­ráð­herra tók ákvörðun um að aug­lýsa ekki stöð­una lausa og fram­leng­ist því skip­un­ar­tími Krist­ínar um fimm ár. Sitji hún allan þann tíma mun Kristín hafa setið sem for­stjóri Útlend­inga­stofn­unar í fimmtán ár. 

Samkvæmt lögum um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins skal til­kynna þeim sem skip­aður hefur verið í emb­ætti að minnsta kosti hálfu ári áður en skip­un­ar­tími þeirra rennur út hvort aug­lýsa skuli emb­ætti þeirra laust til umsóknar. Að öðrum kosti fram­leng­ist skip­un­ar­tími við­kom­andi sjálf­krafa um fimm ár. Kristínu var ekki til­kynnt um slíkt þar eð dóms­mála­ráð­herra ákvað að aug­lýsa stöð­una ekki. Kristín hefur síð­ustu mán­uði verið í náms­leyfi en kom til baka til starfa í dag, 1. apríl. 

Hörð gagnrýni um margra ára skeið

Kristín hefur setið undir mik­illi og harðri gagn­rýni fyrir störf sín og Útlend­inga­stofn­unar, nán­ast allt frá því hún var skipuð for­stjóri fyrst. Þannig stóð hún í deilum við frétta­stofu Rík­is­út­varps­ins í byrjun árs 2013 þar sem hún hélt því fram að ummæli hennar um hæl­is­leit­endur hefðu verið tekin úr sam­hengi í fréttum RÚV. Í við­tali við frétta­stofu sagði Kristín að langur máls­með­ferð­ar­tími á umsóknum hæl­is­leit­enda geri það að verkum að fólki sem ekki væri hæl­is­leit­endur heldur hyggð­ust vinna ólög­lega hér á landi eða kæmu í öðrum til­gangi gæti þótt fýsi­legt að sækja hér um hæli til að fá frítt fæði og hús­næði. Orð Krist­ínar urðu til þess að Ögmundur Jónasson, þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, sá ástæðu til að bregð­ast við og lýsa að um óvið­eig­andi og raka­lausar vanga­veltur væri að ræða. Kristín brást við með því að segja að orð sín hefðu verið tekin úr sam­hengi en Rík­is­út­varpið birti við­talið allt til að taka af allan vafa þar um. 

Traust á Útlend­inga­stofnun hefur reynst afar lítið í könn­unum sem gerðar hafa verið á trausti meðal Íslend­inga á stofn­unum. Þannig reynd­ust 45 pró­sent aðspurðra van­treysta stofn­un­inni í lok árs 2015, þegar Kristín hafði setið sem for­stjóri í rúm fimm ár, sam­kvæmt könnun MMR. Engin rétt­ar­fars­stofnun önnur naut við­líka van­trausts. 

Sendu langveikan dreng úr landi

Á aðvent­unni árið 2015 fjar­lægði lög­regla fjög­urra manna albanska fjöl­skyldu af heim­ili sínu að næt­ur­lagi til að flytja hana úr landi. Tvö börn á leik­skóla­aldri voru þar á meðal, Klea og Kevin, sem er með slím­s­eigju­sjúk­dóm sem er lífs­hót­andi fái hann ekki lækn­is­að­stoð og lyf.  Myndin af Kevin stand­andi með bangs­ann sinn í hönd­unum í úti­dyrum á heim­ili fjöl­skyld­unnar, horf­andi út í myrkrið, hreyfði við mjög mörgum og eftir gríð­ar­hörð mót­mæli fékk fjöl­skyldan að snúa aftur hingað til lands. 

Í maí árið 2016 huns­aði Úrlend­inga­stofnun fyr­ir­mæli kæru­nefndar útlend­inga­mála og ákvað að vísa hæl­is­leit­and­anum Eze Okafor úr landi en Eze hafði þá verið búsettur á Íslandi í fjögur ár. Mál Eze var mjög í deiglu fjöl­miðla, meðal ann­ars hefur Stundin fjallað ítrekað um það. Í júní árið 2017 felldi kæru­nefnd útlend­inga­mála svo brott­vísun Eze niður og gerði Útlend­inga­stofnun að taka mál hans fyrir að nýju, þar eð ákvörðun um brott­vísun hans hefði verið ólög­mæt enda verið byggð á útlend­inga­lögum sem þá voru fallin úr gildi. Eze hafði þá farið huldu höfði í Svíþjóð, þangað sem hann var fluttur af íslenskum yfir­völdum, í yfir árs­tíma. 

Vildi, og fékk, launahækkun vegna álags

Árið 2016 vakti einnig athygli að Kristín fékk, með úrskurði kjara­ráðs, 29 pró­senta launa­hækkun og hækk­uðu laun hennar við það upp í 1.340 þús­und krónur á mán­uði. Sendi Kristín bréf til kjara­ráðs og fór fram á hærri laun þar eð álag á Útlend­inga­stofnun hefði vaxið gríð­ar­lega með til­heyr­andi álagi á hana sjálfa af hendi  fjöl­miðla. Því væri starf for­stjóra bæði erfitt og mjög íþyngj­andi. 

Gríð­ar­lega athygli, og reiði, vakti þegar tveir hæl­is­leit­endur frá Írak, Ali Nasir og Majed, voru dregnir út úr Laug­ar­nes­kirkju með lög­reglu­valdi um miðja nótt í júní 2016 og sendir til Noregs með flug­vél. Óttuðust þeir að verða sendir þaðan aftur til Íraks. Ali var þá 16 ára gam­all og Majed þrí­tugur. Þeir höfðu dvalið á Íslandi í sjö mán­uði en hæl­is­um­sóknir þeirra ekki verið teknar til efn­is­legrar með­ferðar. Myndband af aðförum lög­reglu vakti almenna andúð á fram­gangi Útlend­inga­stofn­unar. 

Auk þeirra dæma sem rakin hafa verið hér að framan eru fjöl­mörg önnur dæmi sem orkað hafa mjög tví­mælis í fram­göngu Útlend­inga­stofn­unar, undir stjórn Krist­ínar. Síðasta slíka dæmið var þegar til stóð að vísa sjö ára dreng, Muhammed Zohair Faisal, og for­eldrum hans úr landi og til Pakistan í febr­úar síð­ast­liðnum. Þangað hafði Muhammed aldrei komið og for­eldrar hans töldu ástæðu til að ótt­ast um öryggi sitt þar. Eftir mik­inn þrýst­ing frá almenn­ingi var fallið frá brott­flutn­ingnum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár