Drífa: Kemur ekki á óvart að reynt sé að misnota úrræðið

Drífa Snædal, for­seti ASÍ, segir að það komi sér ekki á óvart að fyr­ir­tæki reyni að mis­nota hluta­bóta­leið­ina. Hún segir að nú sé verið að skoða til hvaða aðgerða hægt sé að grípa. Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, seg­ist telja að því miður sé um að ræða ein­beittan brota­vilja í ein­hverjum til­vikum

Drífa: Kemur ekki á óvart að reynt sé að misnota úrræðið
Sólveig Anna Jóns­dóttir og Drífa Snædal Þær segja að tals­vert sé um að atvinnu­rek­endur mis­noti hluta­bóta­leið­ina svoköll­uðu.

Það kemur Drífu Snædal, for­seta ASÍ, ekki á óvart að fyr­ir­tæki reyni að mis­nota hluta­bóta­leið­ina sem kynnt var í síð­ustu viku. Hún segir fjöld­ann allan af til­kynn­ingum hafa borist sam­band­inu um að fólk hafi verið fært niður í 25% starfs­hlut­fall að nafn­inu til þannig að ríkið greiði 75% af laun­unum, en sinni síðan fullu starfi. Drífa segir að nú sé verið að skoða til hvaða aðgerða hægt sé að grípa.

Efling vakti athygli á þessu á vef­síðu sinni í gær en sam­kvæmt nýjum lögum um rétt til greiðslu atvinnu­leys­is­bóta sam­hliða minnk­uðu starfs­hlut­falli vegna tíma­bund­ins mögu­legs sam­dráttar í starf­semi vinnu­veit­enda vegna kór­óna­veirunnar, verða fólki með allt að 400.000 krónur í mán­að­ar­laun tryggðar fullar tekjur.

Lögin kveða á um að laun þeirra sem eru með hærri mán­að­ar­laun geta aldrei sam­an­lagt numið hærri fjár­hæð en 90% af með­al­tali heild­ar­launa, miðað við þriggja mán­aða tíma­bil áður en launa­maður missti starf sitt að hluta og bæt­urnar koma úr atvinnu­trygg­inga­sjóði. Með þessu móti geta fyr­ir­tæki sem draga saman seglin á næstu vikum þannig haldið ráðn­ing­ar­sam­bandi við starfs­fólk sem ekki hefur verk­efni.  

„Okkur hafa borist ábend­ingar um þetta frá fólki í all­flestum starfs­greinum og það er yfir­leitt fólkið sjálft, sem verður fyrir þessu, sem sendir okkur þessar ábend­ingar,“ segir Drífa. „En það þarf að hafa í huga að hugs­an­lega gæti gætt ein­hvers mis­skiln­ings varð­andi þetta úrræði og við munum á næst­unni reyna að leið­rétta hann með öllum hætti.“

Grípa þarf til aðgerða sem fyrst

Spurð hversu margar ábend­ing­arnar séu segir Drífa að það verði ekki gefið upp að svo stöddu,  „En þær eru það margar að við teljum að grípa þurfi til aðgerða sem fyrst og upp­lýsa um að þetta sé ekki í boði.“

Drífa segir að ASÍ hafi rök­studdan grun um að fyr­ir­tæki, sem ekki eigi í neinum greiðslu- eða rekstr­ar­erf­ið­leikum af neinu tagi, nýti sér nú þessa leið. „Við höfum heyrt af því að fyr­ir­tæki telji sig eiga rétt á þessu til að eiga borð fyrir báru, ef ske kynni að þau myndu lenda í erf­ið­leikum síðar meir. Þetta úrræði er ekki ætlað til þess, eins og fram hefur komið, heldur til að bregð­ast við þeim erf­ið­leikum sem atvinnu­lífið stendur frammi fyrir hér og nú.“

Spurð hvort það hafi komið henni á óvart að ein­hverjir skuli hugs­an­lega mis­nota sér þetta úrræði segir Drífa svo ekki vera. „Nei, því miður. Við ótt­uð­umst að þetta myndi ger­ast. Þetta er það opið úrræði, þarna er verið að galopna fyrir skrán­ingu á atvinnu­leysi að hluta til og það er ákveðin hætta sem fylgir svona aðgerðum.“

„Við höfum heyrt af því að fyr­ir­tæki telji sig eiga rétt á þessu til að eiga borð fyrir báru, ef ske kynni að þau myndu lenda í erf­ið­leikum síðar meir“

Óprúttnir aðilar, segir Sólveig Anna

„Það er ekk­ert ólík­legt að þarna sé á ferð mis­skiln­ingur hjá ein­hverjum atvinnu­rek­endum. En ég tel því miður að um sé að ræða ein­beittan brota­vilja í ein­hverjum til­vikum,“ segir Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar.

„Þarna eru óprút­tnir aðilar, ég ætla að leyfa mér að nota það orð, sem hafa í und­an­förnu góð­æri verið i rekstri sem því miður hefur gengið út á það að hámarka gróð­ann á sem skemmstum tíma með sem árang­urs­ríkustum hætti. Það er ein­fald­lega partur af rekstr­ar­mód­el­inu að leita allra leiða til taka sem mest til sín á kostnað vinn­andi fólks og núna hefur sá mögu­leiki bæst við að taka sem mest til sín á kostnað sam­fé­lags­ins alls.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hlutabótaleiðin

Guðlaugur Þór hefur vikið af ríkisstjórnarfundum vegna umfjöllunar um hagsmunatengsl við Bláa Lónið
Fréttir

Guð­laugur Þór hefur vikið af rík­is­stjórn­ar­fundum vegna umfjöll­unar um hags­muna­tengsl við Bláa Lónið

Utan­rík­is­ráð­herra er eini ráð­herr­ann sem hefur vikið af rík­is­stjórn­ar­fundum vegna umræðna um efna­hags­að­gerðir rík­is­stjórn­ar­innar vegna Covid-19. Fjöl­skylda Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra á einnig ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki sem hefur nýtt sér úrræði stjórn­valda vegna Covid-19.
Matvælafyrirtæki með eignarhaldi í skattaskjóli nýtti hlutabótaleiðina
FréttirHlutabótaleiðin

Mat­væla­fyr­ir­tæki með eign­ar­haldi í skatta­skjóli nýtti hluta­bóta­leið­ina

Mat­væla­fyr­ir­tækiið Mata, sem er eígu eign­ar­halds­fé­lags­fé­lags á lág­skatta­svæð­inu Möltu sem sagt er hafa öll ein­kenni skatta­skjóls, setti 20 starfs­menn á hluta­bóta­leið­ina. Fram­kvæmda­stjór­inn, Eggert Árni Gíslason vill ekki ræða um eign­ar­haldið á Möltu en segir að engin skil­yrði vegna eign­ar­halds hafi verið á notkun hluta­bóta­leið­ar­innar.
Einkarekið lækningafyrirtæki nýtti hlutabótaleiðina eftir 450 milljóna arðgreiðslur
FréttirHlutabótaleiðin

Einka­rekið lækn­inga­fyr­ir­tæki nýtti hluta­bóta­leið­ina eftir 450 millj­óna arð­greiðslur

Tekjur röntgen­lækna­fyr­ir­tæk­is­ins Íslenskrar mynd­grein­ingar dróg­ust nær alveg saman í apríl í miðjum COVID-19 far­aldr­inum. Fram­kvæmda­stjór­inn segir að tekju­fall og flutn­ingar hafi gert það að verkum að félagið hafi neyðst til að fara hluta­bóta­leið­ina. Fyr­ir­tækið hefur verið ofar­lega á lista yfir arð­söm­ustu fyr­ir­tæki lands­ins hjá Credit Info.
Hótelkeðja fjölskyldu Hreiðars Más sem fjármögnuð var úr skattaskjóli nýtir hlutabótaleiðina
FréttirHlutabótaleiðin

Hót­el­keðja fjöl­skyldu Hreiðars Más sem fjár­mögnuð var úr skatta­skjóli nýtir hluta­bóta­leið­ina

Hót­el­keðjan Gistiver ehf. nýtir hluta­bóta­leið­ina eins og mörg önnur hótel á Íslandi hafa gert í kjöl­far COVID-19. Hreiðar Már Sig­urðs­son og Anna Lísa Sig­ur­jóns­dóttir eiga hót­el­keðj­una og var hún fjár­mögnuð í gegnum Lúx­em­borg og Tortóla. Sjóður Stefnis hýsti eign­ar­haldið en þessum sjóði hefur nú verið slitið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár