Fólk geti sótt um minnkað starfshlutfall á vefnum

Unnur Sverr­is­dóttir, for­stjóri Vinnu­mála­stofn­unar, býst við fjölda umsókna um úrræði stofn­un­ar­innar um atvinnu­leys­is­bætur sam­hliða lækk­uðu starfs­hlut­falli.

Fólk geti sótt um minnkað starfshlutfall á vefnum
Unnur Sverr­is­dóttir Unnur Sverr­is­dóttir for­stjóri Vinnu­mála­stofn­unar Mynd: Lögreglan

Unnur Sverr­is­dóttir, for­stjóri Vinnu­mála­stofn­unar segir ómögu­legt að segja til um hversu margir muni nýta úrræði stofn­un­ar­innar um greiðslu atvinnu­leys­is­bóta sam­hliða minnk­uðu starfs­hlut­falli. Þá sé erfitt að áætla kostn­að­inn við úrræðið, hann fari að miklu leyti eftir því hversu lágt starfs­hlut­fall fólks verður.

Samkvæmt nýjum lögum um rétt til greiðslu atvinnu­leys­is­bóta sam­hliða minnk­uðu starfs­hlut­falli, vegna tíma­bund­ins mögu­legs sam­dráttar í starf­semi vinnu­veit­enda vegna kór­óna­veirunnar, sem sam­þykkt var á Alþingi fyrir helgi, verða fólki með allt að 400.000 krónur í mán­að­ar­laun tryggðar fullar tekjur. Laun þeirra sem eru með hærri mán­að­ar­laun geta aldrei sam­an­lagt numið hærri fjár­hæð en 90% af með­al­tali heild­ar­launa, miðað við þriggja mán­aða tíma­bil áður en launa­maður missti starf sitt að hluta. Úrræðið gildir til 1. júní en verður end­ur­skoðað í maí. 

„Varlega áætlað gæti kostn­að­ur­inn ef 5.000 manns nýta sér úrræðið orðið 3 millj­arðar og hann gæti farið upp í 6,4 millj­arða nýti 10.000 manns sér þetta,“ segir Unnur. „En það eru svo margar breytur sem hafa áhrif og ein sú stærsta er hversu lágt starfs­hut­fall fólk fer í; eftir því sem það verður lægra eykst okkar kostn­aður.“

„Við erum á fullu - það er stutta svarið“

Spurð hvernig stofn­unin sé und­ir­búin til að takast á við þetta stóra verk­efni svarar Unnur: „Við erum á fullu - það er stutta svarið. Allir leggj­ast á eitt, við höfum þurft að bæta við starfs­fólki og sum­ar­starfs­fólkið kemur eins snemma inn og það getur. Við búumst við því að fólk geti fljót­lega sótt um minnkað starfs­hlut­fall á vefnum og í fram­hald­inu.“

Öll þjón­usta Vinnu­mála­stofn­unar fer nú fram raf­rænt eða sím­leiðis. 

Icelandair til­kynnti í dag um upp­sagnir 240 starfs­manna og um lækkað starfs­hlut­fall um 92% starfs­manna sinna. Starfs­hlut­fall allra þjón­ustu­liða um borð í vélum félags­ins verður lækkað í 25%, en fjöldi slíkra starfs­manna hjá félag­inu skiptir hund­ruðum. Vinnu­mála­stofnun mun greiða þann hluta launa þeirra sem upp á vantar upp að því marki sem lögin kveða á um. Unnur seg­ist ekki hafa fengið fregnir af því að við­líka stórir ein­stakir hópar muni nýta sér þetta úrræði, en ekki sé úti­lokað að svo verði.

„Fyr­ir­tækin eru að skoða þetta hvert fyrir sig. Það er ekki ólík­legt að við förum að heyra frá starfs­fólki í ferða­þjón­ustu og síðan frá fólki sem starfar á veit­inga­stöðum og þjón­ustu­að­ilum sem eru að veita þjón­ustu í nánd, eins og til dæmis hár­greiðslu­fólki, nudd­urum og fleirum.“

„Fólk áttar sig á því að þetta er tíma­bundið“

Hún segir að sú ákvörðun Icelandair að lækka starfs­hlut­fall fólks tíma­bundið og leit­ast við að halda upp­sögnum í lág­marki sé virð­ing­ar­verð. „Ég held að allir séu ákveðnir í að horfa öðru­vísi á stöð­una en gert var í hrun­inu. Fólk áttar sig á því að þetta er tíma­bundið og það virð­ist allt vera reynt til að við­halda ráðn­ing­ar­sam­bandi við fólk sem er svo dýr­mætt.“

Mikið samráð haft við Vinnumálastofnun

Unnur segir að mikið sam­ráð hafi verið haft við Vinnu­mála­stofnun við gerð laga­frum­varps­ins. „Við vorum í nánu sam­starfi við ráð­herra við smíði frum­varps­ins og ég held að það hefði varla verið hægt að gera þetta betur. Við þurfum ekki að meta bóta­rétt hvers og eins. Mark­miðið með þessu úrræði er að við­halda ráðn­ing­ar­sam­bandi. Þetta verður von­andi stutt. Það er mik­il­vægt að þekk­ingin hald­ist innan fyr­ir­tækj­anna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár