Samherji lokar skrifstofu sinni í Namibíu á þriðjudaginn í kjölfar mútumálsins

Samherji komst að sam­komu­lagi við verka­lýðs­fé­lag í Namibíu og yfir­gefur landið í næstu viku. Ástæðan er mútu­mál Samherja í Namibíu sem nú er til rann­sóknar í að minnsta kosti þremur löndum, Namibíu, Íslandi og Noregi.

Samherji lokar skrifstofu sinni í Namibíu á þriðjudaginn í kjölfar mútumálsins
Yfirgefa Namibíu eftir nær ára­tug Samherji Þor­steins Más Bald­vins­sonar, sem sést hér með þremur af ráða­mönn­unum sem þáðu mút­urnar í Namibíu í höfn­inni í Hafn­ar­firði, yfir­gefur nú Namibíu og lokar skrif­stofu sinni í hafn­ar­borg­inni Walvis Bay.

Útgerð­ar­fé­lagið Samherji lokar sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki sínu í borg­inni Walvis Bay í Namibíu á þriðju­dag­inn í næsta viku og hættir þar með form­lega öllum rekstri í land­inu. Starfs­mönnum fyr­ir­tækis Samherja, Sögu Seafood, hefur verið sagt upp störfum og komst Samherji að sam­komu­lagi um greiðslur til starfs­manna eftir þriggja vikna samn­inga­við­ræður við verka­lýðs­fé­lag þeirra. Frá þessu er greint í namibíska blað­inu The Namibian. 

Þar með lýkur nærri 10 ára sögu sögu Samherja í Namibíu; sögu sem endar nú í kjöl­farið á því að greint var frá stór­felldum mútu­greiðslum Samherja og dótt­ur­fé­laga þess til ráða­manna í Namibíu í skiptum fyrir hesta­makríl­skvóta. Mútu­greiðsl­urnar eru nú til rann­sóknar í Namibíu, þar sem við­tak­endur greiðsln­anna sitja í gæslu­varð­haldi og bíða þess að réttað verði yfir þeim, og á Íslandi þar sem emb­ætti  hér­aðs­sak­sókn­ara hefur haft málið til rann­sóknar frá því í nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Þá rann­sakar norska efna­hags­brota­lög­reglan einnig vissa þætti máls­ins sem snúa að mögu­legu pen­inga­þvætti. 

Eins og kom fram í frétta­skýr­inga­þætt­inum Kveik, Stund­inni og Al-Jazeera, á grund­velli gagna frá Wikileaks, í nóv­em­ber þá greiddi Samherji áhrifa­mönnum í land­inu sem tengd­ust sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­anum, Bernhard Esau, vel á annan millj­arð króna í mútur til að fá aðgang að hesta­makríl­skvóta í land­inu.

Aðgerðir yfir­valda í Namibíu í kjöl­farið voru hraðar og voru Esau, tengda­sonur hans Tamson Hatuikulipi, fjár­festir­inn James Hatuikulipi og dóms­mála­ráð­herr­ann, Sacky Shangala, hand­teknir og hnepptir í gæslu­varð­hald meðan þeir bíða eftir því að réttað verði í málum þeirra. Samtímis hófst rann­sókn máls­ins á Íslandi. 

Enginn kvóti - engin starfsemi

Ástæða þess að Samherji skellir í lás og segir upp starfs­mönnum sínum er að fyr­ir­tækið hefur ekki fengið neinn kvóta í land­inu í kjöl­far mútu­máls­ins.  Tvö af skipum Samherja, Saga og Geysir - Samherji leigir síð­ar­nefnda skipið af venes­ú­elskum yfir­völdum - eru ekki lengur í Namibíu á meðan þriðja skipið, Heinaste, er kyrr­sett þar vegna rann­sókn­ar­innar á mútu­greiðsl­unum sem nú stendur yfir. Geysir stundar nú veiðar á hesta­makríl í Márit­aníu en Samherji hefur einnig veitt þar í gegnum árin. Saga er í slipp á Kanarí­eyjum. Hvert skip Samherja munu fara til veiða nú þegar sögu fyr­ir­tæk­is­ins í Namibíu er lokið liggur ekki fyrir. 

Veiðar Samherja í Afríku hafa hins vegar verið afar arð­bærar í gegnum tíð­ina, sér­stak­lega þegar fyr­ir­tækið áttu útgerð­ina Kötlu Seafood á árunum 2007 til 2013. Þá kom um þriðj­ungur af tekjum Samherja, meira en á milli 20 og 30 millj­arðar króna, frá Afr­íku­veiðum félags­ins. Afr­íku­veiðar Samherja eru því stór ástæða fyrir því að Samherji hefur hagn­ast um vel yfir 100 millj­arða króna á síð­asta ára­tug, sér­stak­lega á á árunum 2010 til 2013 þegar fyr­ir­tækið átti Kötlu Seafood. Starf­semi Samherja í Namibíu var smærri í sniðum og voru tekj­urnar oft á milli 6-8 millj­arðar og hagn­að­ur­inn í kringum millj­arð árlega. 

Í grein The Namibian segir fram­kvæmda­stjóri félags Samherja í Namibíu, Jackie Thiardt, að samn­inga­við­ræður við verka­lýðs­fé­lags starfs­mann­anna þar í landi hafi klár­ast þann 13. mars síð­ast­lið­inn. „Samn­inga­við­ræðum lauk föstu­dag­inn 13. mars. Heilt yfir gengu þær mjög vel. Allar við­ræður fóru fram í góðri trú. Hins vegar var þetta ekki auð­velt ferli fyrir mörg af okkur sem tókum þátt. Óvissan um fram­tíð starfs­fólks­ins er okkur ennþá mikið áhyggju­efni,“ segir Thiardt. 

„Við erum ekki ánægðir með það að hafa misst vinn­una.“

Lokun Samherja í Namibíu er í sam­ræmi við það sem fyr­ir­tækið greindi frá í byrjun febr­úar; að til stæði að hætta allri starf­semi í Namibíu en að fyrst þyrfti að semja um starfs­lok þeirra sem unnið hafa hjá útgerð­inni. „Áður en Sam­herj­a­sam­stæðan mun alfarið hætta starf­semi í Namibíu munu dótt­ur­fyr­ir­tæki sam­stæð­unnar í land­inu upp­fylla allar skyldur gagn­vart skip­verjum sem hafa unnið fyrir þessi fyr­ir­tæki. Full­trúar Samherja hafa fundað með þeim sjó­mönnum sem eiga í hlut og full­trúum stétt­ar­fé­laga þeirra. Samherji mun leit­ast við að veita eins mörgum þeirra áfram­hald­andi vinnu og mögu­legt er. Þá einkum þeim sem tengj­ast Heinaste,“ í frétt á heima­síðu Samherja. 

Starfsmenn fá greidd laun í einn mánuð

Starfs­menn­irnir hjá Samherja í Namibíu fá meðal ann­ars greidd laun í einn mánuð, eina viku greidda auka­lega fyrir hvert ár sem þeir hafa starfað hjá félag­inu, og tíu­þús­und namibíska doll­ara eða 94 þús­und íslenskar krónur. 

Í við­tali við einn af starfs­mönnum Samherja sem missir vinn­una, Leonard Shinedima, kemur fram að hann harmi það að vera nú atvinnu­laus og kennir yfir­völdum um að hafa ekki látið Samherja fá kvóta. „Við erum ekki ánægðir með það að hafa misst vinn­una, þetta hefði ekki gerst ef rík­is­stjórnin hefði látið fyr­ir­tækið fá kvóta. Ef rík­is­stjórnin vill bæn­heyra okkur þá eiga þeir að útdeila okkur kvótum svo við getum haldið að vinna,“ segir hann. 

Líkurnar á því að Samherji myndi halda áfram veiðum í Namibíu eftir að greint var frá mútu­greiðslum þeirra í Namibíu voru hins vegar nær engar. Málið hefur vakið mikla reiði í Namibíu, sem sést meðal ann­ars á hörðum og hröðum við­brögðum lög­regl­unnar og ákæru­valds­ins. Málið er eitt stærsta, ef ekki stærsta, spill­ing­ar­mál sem komið hefur upp í land­inu og hefur umræða um það verið nær stöðug í namibískum fjöl­miðlum síð­ustu mán­uði þó sú umræða sé lítil um þessar mundir, líkt og á Íslandi, vegna Covid-plág­unnar sem geisar um nær allan heim og meðal ann­ars í Namibíu. 

Stundin sendi Björgólfi Jóhanns­syni, starf­andi for­stjóra Samherja sem tók við stjórn þess eftir að Namib­íu­málið kom upp, sms-skila­boð með spurn­ingum um lokun Samherja í Namibíu. Björgólfur hafði ekki svarað þeim þegar fréttin var birt.

Tekið skal fram að Björgólfur kom ekk­ert að mútu­greiðslum Samherja í Namibíu og teng­ist því ekki mál­inu sem er til rann­sóknar  beint per­sónu­lega. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár