Einkaneysla vegna eyðslu á sparnaði og fleiri ferðamenn undirstaða aukins hagvaxtar

Hag­vöxtur er meiri á Íslandi en áður var reiknað með vegna þess að heim­ilin eru að eyða sparn­aði sínum og fjöldi ferða­manna er vel umfram spár. Verð­bólgu­horfur hafa hins vegar versnað og hús­næð­is­verð er enn að hækka.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri. Mynd: Bára Huld Beck

Seðla­banki Íslands býst við því að hag­vöxtur verði 5,9 pró­sent í ár, sem er 1,3 pró­sentu­stigi meiri hag­vöxtur en bank­inn spáði í maí. Breyt­ingin er að mestu til­komin vegna þess að heim­ili lands­ins hafa eytt meira í neyslu síðan þá en Seðla­bank­inn hafði reiknað með. Verð­bólgu­horfur bank­ans gætu þó verið of bjart­sýnar, sér­stak­lega ef fyr­ir­tæki fara í vax­andi mæli að velta kostn­að­ar­hækk­unum út í verð­lag og víxl­verkun launa og verð­lags fer af stað í kjöl­far kjara­samn­inga­gerðar í haust.

Þetta kemur fram í rit­inu Pen­inga­mál sem Seðla­bank­inn birti í dag.

Þar segir að neyslu­út­gjöld heim­ila hafi auk­ist um 8,8 pró­sent á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins, en Seðla­bank­inn hafði spáð því að þau myndu ein­ungis aukast um 3,8 pró­sent. Þar munar heilum fimm pró­sentu­stigum.

[adspot]Vís­bend­ingar eru einnig um að einka­neysla hafi áfram verið kröftug á öðrum árs­fjórð­ungi, og talið er að hún hafi auk­ist um 14 pró­sent milli ára á þeim fjórð­ungi. „Þar vegur þungt mikil aukn­ing ferða­laga til útlanda í vor og sumar en einnig áfram­hald­andi mikil aukn­ing neyslu­út­gjalda inn­an­lands, sem m.a. má sjá í mik­illi aukn­ingu greiðslu­korta­veltu og enn frek­ari aukn­ingu á nýskrán­ingum bif­reiða.“

Einkaneyslan vel umfram það sem spáð var

Heimilin virð­ast því hafa dregið hraðar úr sparn­aði en gert hafði verið ráð fyrir, en sparn­aður jókst gríð­ar­lega á meðan að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn stóð yfir þar sem fólk gat ekki eytt með í sömu hluti og áður. Má þar nefna ferða­lög, mat­sölu­staði og bif­reið­ar­kaup. Í júli var til að mynda greint frá því að fólks­bif­reið­ar­kaup hefðu auk­ist um 50 pró­sent milli ára.

Þessi mikla eyðsla á sparn­aði er vel umfram það sem Seðla­bank­inn reikn­aði með. „Vegna kröft­ugs vaxtar einka­neyslu á fyrri hluta árs­ins er útlit fyrir að vöxt­ur­inn á árinu öllu verði meiri en áður var spáð. Gert er ráð fyrir að hún auk­ist um 7, pró­sent í ár en í maí var spáð 3,1 pró­sent vexti. Hins vegar er talið að hægja muni á vext­inum á seinni hluta árs­ins enda hefur verð­bólga auk­ist hratt og fjár­mála­leg skil­yrði þrengst. Heimilin eru því svart­sýnni nú um efna­hags­horfur en þau voru fyrr á árinu. Þá eru horfur á hæg­ari vexti einka­neyslu á næsta ári en í maí­spá bank­ans.“

Nánast allt er að hækka í verði

Þau fjár­mála­legu skil­yrði sem hafa þrengst eru margs­konar. Greiðslu­byrði hús­næð­is­lána hefur til að mynda hækkað gríð­ar­lega, sam­hliða miklum vaxta­hækk­unum en Seðla­bank­inn hefur hækkað vexti úr 0,75 pró­sent í 5,5 pró­sent frá því í maí í fyrra. Á þessu ári einu saman hafa stýri­vextir hækkað um 3,5 pró­sentu­stig.

Þá er verð­bólga vit­an­lega komin í 9,9 pró­sent og Seðla­bank­inn reiknar með því að hún verði komin í 10,8 pró­sent fyrir árs­lok. Verð­bólgu­horfur fara auk þess versn­andi vegna tölu­vert kröft­ugri vaxtar á inn­lendri eft­ir­spurn en búist var við í vor og hæg­ari hjöðnun á verð­hækk­unum á hús­næð­is­verði, en það er enn að hækka þótt hægt hafi á. Þar skipta miklar vaxta­hækk­anir Seðla­bank­ans og þrengri lána­skil­yrði sem hann hefur sett lyk­il­máli. Það er erf­ið­ara, og minna eft­ir­sókn­ar­vert, að taka hús­næð­is­lán nú en fyrir nokkrum mán­uðum síðan.

[adspot]Helsti drif­kraftur verð­bólg­unnar hefur nefni­lega verið gríð­ar­leg hækkun á hús­næð­is­verði, en á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur það hækkað um 25,5 pró­sent á einu ári.

Það er þó margt annað sem hefur hækkað. Verð á almennri þjón­ustu hefur hækkað um 8,5 pró­sent á einu ári, og vega miklar hækk­anir á flug­gjöldum þar þyngst. Inn­lendar vörur hafa hækkað um 8,7 pró­sent á sama tíma, en þar vegur verð­hækkun á mat­vöru þyngst. Elds­neyt­is­verð hækk­aði líka skarpt á fyrri hluta árs­ins, eða alls um 41 pró­sent milli ára. Það hefur þó tekið að lækka und­an­farnar vikur. Það hefur hrá­vöru­verð á alþjóða­mörk­uðum líka gert.

Á sama tíma hækk­aði launa­vísi­talan um 8,4 pró­sent, eða minna en ofan­greindir útgjalda­liðir. Á manna­máli þýðir það að ef fólk ætl­aði að eyða því sama, eða meira, og það gerði fyrir ári þá þarf það annað hvort að ganga á sparnað eða fá eyðsl­una lán­aða.

Spá því að 1,7 milljón ferðamanna komi í ár

Hin stóra ástæða þess að hag­vöxtur verður að öllum lík­indum meiri en reiknað var með er fjölgun ferða­manna. Seðla­bank­inn spáir því nú að tæp­lega 1,7 millj­ónir ferða­manna komi til Íslands á þessu ári. Það eru umtals­vert fleiri en bank­inn bjóst við að myndu koma hingað þegar hann spáði því í maí að fjöld­inn yrði 1,3 millj­ónir. Þá hefur bank­inn breytt spá sinni um komu ferða­manna á næsta ári á þann veg að hann býst nú við 1,9 milljón ferða­manna árið 2023, sem er um 200 þús­und fleiri en hann spáði í vor.

[links]Fjöldi ferða­manna sem heim­sóttu Ísland náði hámarki árið 2018 þegar rúm­lega 2,3 millj­ónir slíkra komu hingað til lands. Erlendir far­þegar voru um tvær millj­ónir árið 2019 en fjöldi þeirra hrundi með kór­ónu­veiru­far­aldr­inum og árið 2020 náðu þeir ekki hálfri milljón. Fara þarft aftur til árs­ins 2012 til að finna ár sem jafn fáir erlendir ferða­menn heim­sóttu Ísland. Í fyrra voru þeir svo um 700 þús­und alls, enda far­ald­ur­inn enn á fullu gasi með til­heyr­andi ferða­tak­mörk­unum.

Horfur í vöru­út­flutn­ingi hafa á móti versnað. Þar skiptir minni fram­leiðsla í lax­eldi á öðrum fjórð­ungi lyk­il­máli en hún er rakin til veiru­sýk­ingar sem kom upp á Aust­ur­landi í vor. Þá greindir blóð­þorri í sjó­kvíum á Reyð­ar­firði og í Berufirði. Slík sýk­ing leiðir til þess að slátra þarf öllum laxi og hvíla svo eld­is­stöðv­arnar í tölu­verðan tíma eftir á.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabankinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár