Segir húsnæðisverð hafa hækkað umfram þróun grunnþátta

Samkvæmt Seðla­bank­anum er ekki ein­ungis hægt að útskýra verð­hækk­anir á hús­næð­is­mark­aðnum á síð­ustu mán­uðum með lægri vöxtum og auknum kaup­mætti ráð­stöf­un­ar­tekna.

Merki eru um að hækkun hús­næð­is­verðs sé orðin umfram það sem megi skýra með þeim efna­hags­legu grunn­þáttum sem til lengri tíma ráða mestu um þróun þess. Þetta kemur fram í nýjasta riti Pen­inga­mála Seðla­bank­ans sem kom út í morgun.

Svipuð þróun í nágrannalöndum

Samkvæmt bank­anum eru einnig vís­bend­ingar um að hús­næð­is­verð hafi hækkað umfram þróun grunn­þátta þess í öðrum löndum, en svip­aðar verð­hækk­anir hafa einnig átt sér stað í Noregi, Danmörku og Svíþjóð á síð­ustu tólf mán­uðum.

Bankinn heldur úti um svo­kall­aða hús­næð­is­verðs­jöfnu í þjóð­hags­lík­ani sínu, sem metur hækkun hús­næð­is­verðs út frá sögu­legu sam­bandi þess við kaup­mætti ráð­stöf­un­ar­tekna og raun­vaxta hús­næð­is­lána.

Samkvæmt þeirri jöfnu var verð­hækk­unin á mark­aðnum nokkuð minni en búast mætti við í fyrra, miðað við meiri ráð­stöf­un­ar­tekjur og lægri vexti. Hins vegar fór verð að hækka mun hraðar á síð­ustu tveimur árs­fjórð­ungum og eru þær nú nokkuð yfir því sem spá lík­ans­ins gefur til kynna.

Hægir á verðhækkunum á næsta ári

Seðla­bank­inn segir þessar verð­hækk­anir hafa verið ástæðan fyrir því að fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd hafi ákveðið að lækka hámarks­veð­setn­ing­ar­hlut­fall á nýjum fast­eigna­lánum í haust, auk þess sem hann lækk­aði hámarks­greiðslu­byrði nýrra fast­eigna­lána niður í 35 pró­sent af ráð­stöf­un­ar­tekjum og hækk­aði eig­in­fjár­kröfur á fjár­mála­fyr­ir­tæki.

„Þessar aðgerðir ásamt vaxta­hækk­unum bank­ans ættu að stuðla að hæg­ari hækkun hús­næð­is­verðs og gerir grunn­spá bank­ans ráð fyrir að hægja muni tölu­vert á árs­hækk­un­inni þegar kemur fram á seinni hluta næsta árs,“ stendur í Pen­inga­málum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabankinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár