Seðlabankinn gaf starfsmannafélagi bankans tvær milljónir við stofnun listaklúbbs

Lista­klúbbur Seðla­banka Íslands var stofn­aður síð­ast­liðið haust. Ríflega hund­rað starfs­menn bank­ans eru í klúbbnum og greiða þrjú þús­und krónur í félags­gjald mán­að­ar­lega. Lista­verka­happ­drætti er haldið reglu­lega.

Um þriðjungar starfsmanna Seðlabanka Íslands tók þátt í stofnun Listaklúbbs Seðlabankans síðastliðið haust. Fyrsta listakvöld klúbbsins var haldið nýverið þar sem fyrsta listahappdrættið fór fram og fóru nokkrir meðlimir heim með ný listaverk í farteskinu
Um þriðj­ungar starfs­manna Seðla­banka Íslands tók þátt í stofnun Lista­klúbbs Seðla­bank­ans síð­ast­liðið haust. Fyrsta lista­kvöld klúbbs­ins var haldið nýverið þar sem fyrsta lista­happ­drættið fór fram og fóru nokkrir með­limir heim með ný lista­verk í fartesk­inu Mynd: Seðlabanki Íslands

Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri hélt tölu á fyrsta lista­kvöldi Lista­klúbbs Seðla­banka Íslands sem haldið var í síð­asta mán­uði.

Lista­klúbb­ur­inn var stofn­aður af Starfs­manna­fé­lagi Seðla­banka Íslands síð­asta haust og er öllum starfs­mönnum bank­ans frjálst að taka þátt. Í svari frá seðla­bank­anum við fyr­ir­spurn Kjarnans segir að Seðla­bank­inn lagði starfs­manna­fé­lag­inu til tvær millj­ónir króna við stofnun klúbbs­ins og verða þær nýttar í starf­semi hans. Bankinn mun að öðru leyti ekki koma að starf­semi klúbbs­ins.

Um þriðj­ungur starfs­manna Seðla­bank­ans, hátt í hund­rað tals­ins, gekk í klúbb­inn við stofnun og greiða þeir mán­að­ar­legt félags­gjald, þrjú þús­und krónur, sem nýtt er til kaupa á lista­verkum. Reglu­lega er efnt til lista­kvölda þar sem dregin eru út nöfn úr potti með nöfnum hepp­inna félags­manna. Lista­klúbb­ur­inn hefur einnig áform um skipu­lagðar heim­sóknir í gall­erí ásamt því að fá stöku sinnum fyr­ir­les­ara til að fræða félaga um sam­tíma­list.

Lista­klúbbar sem þessir eru ekki nýir af nál­inni en lítið hefur farið fyrir starf­semi þeirra eftir banka­hrun. Lista­klúbbur Arion banka (þá Kaupþing) var til að mynda stofn­aður árið 2006. Klúbb­ur­inn hætti starf­semi þegar ríkið tók yfir bank­ann haustið 2008 en var end­ur­vak­inn í nóv­em­ber 2009 og gengu þá um 200 starfs­menn bank­ans og tengdra félaga í klúbb­inn og greiddu eitt þús­und krónur í mán­að­ar­gjald.

Markmið Lista­klúbbs Seðla­banka Íslands er meðal ann­ars að „efla almennan áhuga á listum og menn­ingu og styðja við bakið á íslensku sem erlendu lista­fólki,“ að því er segir í svari bank­ans til Kjarnans.

Listin hugleikin starfsmönnum Seðlabankans

Lista­verka­safn Seðla­bank­ans er mynd­ar­legt og hefur ratað í umræð­una oftar en einu sinni. Minni­stæð­ast er lík­lega þegar starfs­maður bank­ans kvart­aði yfir mál­verki eftir Gunnlaug Blöndal sem prýddi vegg í bank­anum. Nekt er á mál­verk­inu og taldi starfs­mað­ur­inn það ósæmi­legt og fór fram á að mál­verkið yrði fjar­lægt. Eftir sér­staka skoðun sem fram fór innan bank­ans varð það nið­ur­staða stjórn­enda að mál­verk eftir Gunnlaug Blöndal sem inni­halda nekt skuli fjar­lægð úr almennum vinnu­svæðum og skrif­stofum yfir­manna og sett í geymslu þar til annað er ákveðið.

Í erindi sem Banda­lag íslenskra lista­manna sendi frá sér vegna máls­ins lýsti það yfir furðu sinni á ákvörðun Seðla­banka Íslands að fjar­lægja verkin. Í athuga­semd ­banda­lags­ins ­segir að ef það sé skiln­ingur Seðla­bank­ans að hann eigi að sinna menn­ing­ar­legu hlut­verki þá verði það hlut­verk að byggj­ast á fag­legum grunn­i. ­Banda­lag­ið sagði að bank­inn ætti þá að stofna lista­safn og ef ekki þá gerir banda­lagið kröfu um að verk­unum verði komið í umsjá Lista­safns Íslands.

Lista­safn Seðla­banka Íslands hefur enn ekki verið stofnað en nú hefur Lista­klúbbi Seðla­banka Íslands að minnsta kosti verið komið á fót.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár