Setja spurningarmerki við að Seðlabankinn safni þjóðargersemum í geymslur

Bandalag íslenskra lista­manna gerir athuga­semd við að Seðla­bank­inn hafi ákveðið að fjar­læga verk Gunn­laugs Blöndal af veggjum bank­ans og komið fyrir í geymslu. Jafn­framt gagn­rýnir banda­lagið að bank­inn safni mynd­list í geymslur sem engum sé aðgengi­leg.

Stúlka með greiðu 1937, eitt verka Gunnlaugs Blöndal.
Stúlka með greiðu 1937, eitt verka Gunn­laugs Blöndal. Mynd: Gunnlaugur Blöndal

Bandalag íslenskra lista­manna hefur sent frá sér erindi þar sem banda­lagið lýsir yfir furðu sinni á þeirri ákvörðun Seðla­banka Íslands að fjar­læga verk Gunn­laugs Blöndal úr almenn­ings­rými og koma því fyrir í geymslum bank­ans. Í athuga­semd banda­lags­ins segir að ef það sé skiln­ingur Seðla­bank­ans að hann eigi að sinna menn­ing­ar­legu hlut­verki þá verði það hlut­verk að byggj­ast á fag­legum grunni. Banda­lagið segir að bank­inn ætti þá að stofna lista­safn og ef ekki þá gerir banda­lagið kröfu um að verk­unum verði komið í umsjá Lista­safns Íslands. 

„Ef bank­inn er að safna þjóðar­ger­semum í hirslur sínar ætti það að ger­ast með form­legri stofnun lista­safns, ráðningu fagfólks, skráningu og aðgengi almenn­ings. Geti bank­inn ekki sinnt þeirri menn­ing­ar­legu skyldu sinni hlýtur Bandalag íslenskra lista­manna að gera þá kröfu að hann komi verk­unum í vörslu og umsjá Lista­safns íslands,“ segir í erind­inu.

Seðlabankinn ákveður að fjarlæga öll nektarmálverk

Á laug­ar­dag­inn fjall­aði Frétta­blaðið um að Seðla­banki Íslands hafi tekið ákvörðun um að fjar­læga alfraið „nekt­ar­mál­verk“ eftir Gunnlaug Blöndal af veggjum bank­ans. Verkin hafa verið sett í geymslu um ókomna tíð eftir að starfs­maður kvart­aði um að honum var mis­boðið af mál­verkum sem inni­halda nekt og fór fram á þær yrðu fjar­lægðar. Kvörtunin kom í kjöl­far mik­illar metoo-umræðu í þjóð­fé­lag­inu og var hún tekin föstum tökum af stjórn­endum bank­ans sem settu málið í ferli til að ákveða örlög nekt­ar­verk­anna.

Í kjöl­far þess­ara ákvörð­unar sendi Bandalag íslenskra lista­manna frá sér athuga­semd þar sem segir að þessi ákvörðun veki upp margar spurn­ingar, bæði hvað varðar saf­n­eign, umgengni og vörslu lista­verka stofn­un­ar­innar og ekki síður þá segir banda­lagið að ákvörð­inin veki spurn­ingu um þá „und­ar­legu tíma­skjekkju purit­an­isma að ­rit­skoða list með þessum hætt­i“.

Í erindi banda­lags­ins segir að skiln­ingur á hug­mynda­heimi hvers tíma bygg­ist að stórum hluta á verkum lista­manna, skáldskap, tónlist og mynd­list. „Frá upp­hafi menn­ing­arsögu okkar hefur nakið og ber­skjaldað form mannslíkam­ans verið eitt af helstu við­fangs­efnum lista­manna, hefur tjáð trúarlega, pólitíska eða til­vist­ar­lega afstöðu. Um þetta vitna mörg stærstu og mik­il­væg­ustu verk listasögunnar.“ Banda­lagið bendir jafn­framt á að þetta verk Gunn­laugs Blöndal, Kona með greiðu, standi sterkt í þess­ari hefð list­ar­innar . „Mikið er það und­ar­legt að vera stödd á þessum stað í umræð­unni í upp­hafi tutt­ug­ustu og fyrstu ald­ar­innar. Að van­virða svo þetta fal­lega verk með tepru­skap og purit­anískum við­brögðum,“ segir í erind­inu.[adspot]

Ef bankinn er að safna þjóðargersemum í hirslur sínar ætti það að gerast með formlegri stofnun listasafns

Banda­lagið bendir á að það sé ekk­ert nýtt að listin tak­ist á við valdið um hvað sé við­eig­andi og hvað ekki. „Oftast hafa þessi átök spegl­ast í baráttu list­ar­innar við kirkj­una og trúarlegar hug­myndir, en kannski segir það eitt­hvað um samtímann að þessi til­tekna rit­skoðun skuli upp sprottin í Seðla­banka Íslands, sem afleið­ing af nafn­lausum athuga­semdum.“

Að lokum gagn­rýnir banda­lagið að geymslur Seðla­banka Íslands skuli safna mynd­list sem engum sé aðgengi­leg án fag­legar umsóknar. „Ef það er skiln­ingur Seðla­bank­ans að hann eigi að sinna menn­ing­ar­legu hlut­verki verður það hlut­verk að byggj­ast á fag­legum grunni. Ef bank­inn er að safna þjóðar­ger­semum í hirslur sínar ætti það að ger­ast með form­legri stofnun lista­safns, ráðningu fagfólks, skráningu og aðgengi almenn­ings.“

Jafn­framt segir að ef bank­inn geti ekki sinnt þeirri menn­ing­ar­legri skyldu þá hljóti Bandalag íslenskra lista­manna að gera þá að kröfu að bank­inn komi verk­unum í vörslu og umsjá Lista­safns­ins. Að lokum fer banda­lagið fram á upplýsingar um fjölda verka í safni bank­ans, hverjir höfundar þeirra verka séu og hvenær þau hafi komið í eigu bank­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

list

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár