Sveittur í gegnum gallabuxurnar í hálfa öld

Ótrú­legur fer­ill Bruce Springsteen spannar meira en hálfa öld. Hann varð sjö­tugur á dög­unum. Galdr­a­rnir sem mynd­uð­ust í Capital Theatre í New Jersey fyrir meira en hálfri öld lifa enn.

Þegar Bruce Springsteen fer útaf tón­leika­svið­inu þá er hann yfir­leitt renn­andi sveittur í gegnum galla­bux­urnar.

Oftar en ekki teygj­ast tón­leikar hans fram yfir þrjá klukku­tíma.

Hann stígur á svið og hálf­lekur svo útaf því, örmagna, eftir að hafa gefið allt sitt og meira til í verk­efnið það kvöldið.

Svona hefur þetta verið hjá Bruce - “The Boss” - Springsteen, alveg frá því hann hóf að spila á sviði á litlum stöðum í New Jersey.

Hann hóf feril sinn 15 ára og hefur unnið fyrir sér sem tón­list­ar­maður síðan. Hann varð sjö­tugur 23. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Hann er einn af risum dæg­ur­lagatón­list­ar­innar í heim­inum og er einn þeirra sem hefur rutt braut­ina og búið til nýja sam­hliða. Það er helst jafn­aldri hans Billy Joel sem hægt er að stilla upp sem við­líka áhrifa­valdi. Hann var á leið­inni í fló­ann, eins og skrifað var um á sjö­tugs­af­mæli hans, á þessum vett­vangi.

Það er auð­velt að hrósa Bruce fyrir hans ein­staka fram­lag til tón­list­ar­innar, en áhrif hans á banda­ríska þjóð­ar­sjál eru djúp­stæð. Lögin hans fjalla um hvers­dags­leg vanda­mál oftar en ekki, sem almenn­ingur í Banda­ríkj­unum hefur alltaf tengt við. Vegna þess hve þetta er vel gert og af mik­illi ein­lægni þá nær þetta til fólks alls staðar í heim­inum.

Smellir hans eru ekki aðal­at­riðið heldur miklu frekar heið­ar­leik­inn og ein­urðin.

Text­arnir eru oft ein­faldar frá­sagnir af hvers­dags­legu lífi fólks, draumum þeirra, sorgum og spurn­ingum um lífið og til­ver­una.

Að mínu mati hefur Bruce varla stigið feil­spor allan sinn feril. En þegar hann birt­ist með hljóm­sveit sinni - The E Street Band - í Capital Theatre í New Jersey, 20. sept­em­ber 1978, þá var ljóst að þarna var eng­inn venju­legur hæfi­leika­maður á ferð­inni. Hljóm­sveitin frá­bær, og magn­aðir tón­leikar sem hún færði fram þetta kvöld fyrir áhorf­endur.

Upptakan af tón­leik­unum er einn af hápunktum ein­staks fer­ils þessa magn­aða lista­manns.

Þegar einn af helstu sam­starfs­mönnum Bruce, Clarence Clemons, sem lést 2011, stígur inn á sviðið í hinu frá­bæra Jungl­eland, og byrjar að öskra í gegnum sax­ó­fón­inn (3:42) - þá verða til galdrar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

list

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár