Besta platan með Metallica – Master of Puppets

Gefin út af Elektra þann 3. mars 1986, 8 lög á 54 mín­útum og 47 sek­úndum.

Hug­myndin um bestu plöt­una hverju sinni bygg­ist ein­göngu á skoðun minni og þekk­ingu. Skoðunin er oft­ast mjög sterk en þekk­ingin getur verið alla­vega. Þannig hika ég ekki við að til­nefna bestu plöt­una og þá skiptir engu hvort ég þekki allar útgáfur við­kom­andi mjög vel eða bara þessa einu – já eða eitt­hvað þar á milli.

Ég er þess vegna alltaf til í rök­ræður og upp­fræðslu frá les­endum sem annað hvort vita betur eða telja sig vita betur. Aðal­málið er að hlusta á og ræða hljóm­plötur sem heild, bestu plöt­una í hvert skipti.

Hljóm­sveitin Metallica var stofnuð árið 1981 í Los Angeles, í Kali­forn­íu­fylki Banda­ríkj­anna. Metallica hefur gefið út 10 breið­skífur á ferl­inum:

Kill 'Em All (1983)

Ride the Lightn­ing (1984)

Master of Puppets (1986)

...And Justice for All (1988)

Metallica (1991)

Load (1996)

Reload (1997)

St. Anger (2003)

Death Magnetic (2008)

Hardwired... to Self-Destruct (2016)

Þetta var ótrú­legt ár í heimi Thrash-málms­ins. Anthrax gaf út sitt meist­ara­verk, Among the Living réttu ári eftir að Metallica sendi frá sér Master of Puppets en í milli­tíð­inni hafði Megadeth gefið út Peace Sells... but Who’s Buying og Slayer hrært í Reign in Blood. Allt þetta á einu ári. Og síðan hafa þessi bönd verið rétti­lega kölluð Hin fjögur fræknu – The Big Four.

Villi! Skilaðu plötunum mínum, helvítis Naglbíturinn þinn!

Ég heyrði fyrst í Metallica 1988. Held ég alla­vega, þetta rennur aðeins saman. Ég var tíu ára og velti ekki mikið fyrir mér í hvaða röð plöt­urnar höfðu komið út og svo­leiðis. Ég eign­að­ist þær svo senni­lega á árunum 1990 og 1991, allar fjórar sem þá höfðu komið út auk for­láta smá­skífusafns, sex 12 tommu smá­skífur í svörtum pakka. Í þeim pakka var stórt plakat af band­inu þar sem Lars Ulrich sendir umheim­inum fing­ur­inn. Óóó­geðs­lega töff. Þetta plakat hékk uppi í bíl­skúrnum hjá Agga vini mínum þar sem við stofn­uðum fyrstu hljóm­sveit­ina okkar í jan­úar 1991. Böbbi söng, eins og hann gerir í Skálmöld, og Aggi tromm­aði, eins og hann gerir meðal ann­arra verka í Ljótu hálf­vit­unum. Billi spil­aði á bassa og ég á gítar. Eftir að hafa eign­ast svörtu plöt­una 1991 lán­aði ég Villa Naglbít allar þessar plötur og hann mér Hendrix-safnið sitt í stað­inn. Og við það situr í dag. Mér hafa áskotn­ast önnur ein­tök af flestum Metallica-plöt­unum síðan en ég vil endi­lega fara að end­ur­heimta mínar gömlu. Vilhelm!

Load er söluhærri en Kill 'Em All

Ég hef þá skoðun að Master of Puppets sé síð­asta efa­lausa plata Metallica, síð­asta platan þar sem allir voru full­kom­lega hand­vissir um hvernig allt átti að vera. Bandið var búið að vera starf­andi í fimm ár, gefa út tvær plötur, drekka marga gáma af áfengi og spila á stór­kost­lega mörgum tón­leikum. Allt gekk upp og stefnan var bara í eina átt. Áfram! Metn­að­ur­inn var ótrú­legur og dugn­að­ur­inn sömu­leiðis.

Fyrstu plöt­urnar tvær eru báðar meist­ara­verk en þó gjör­ó­líkar, sú fyrsta óhefluð og hrá, næsta eins og tals­vert úthugs­aðri útgáfa af þeirri fyrri og þegar hér var komið sögu skyldi full­komna þessa þróun. Það tókst. James Hetfield, sem er besti gít­ar­leik­ari heims­ins, og Lars Ulrich, sem er alls ekki besti trommu­leik­ari heims­ins, eru ótrú­legt laga­smíðateymi og þarna á algerum hápunkti. Cliff Burton bassa­leik­ari kom tals­vert minna að smíð­unum en krydd­aði þó allt saman með blöndu af snilli­gáfu og inn­sýn í klass­íska tón­list. Kirk Hammet tók nú eig­in­lega bara gít­ar­sóló, en gerði það svo sem ágæt­lega. Útkoman er þaul­hugsað brjál­æði, fram­kvæmt af mönnum sem þá voru til­tölu­lega nýskriðnir yfir tví­tugt og graðir eftir því. Platan er hrein­lega yfir­þyrm­andi og svo mjög að hún breytti þung­arokk­inu til fram­búðar. Ég við­ur­kenni samt að hún var ekk­ert endi­lega upp­á­haldið mitt framan af. Þegar svarta platan án tit­ils kom út hlust­aði ég mikið á hana en fann þó fljótt að þar var komin stefna sem hent­aði mér síður en það sem hafði gerst á fyrstu fjórum plöt­unum.

Sú svarta breytti þó auð­vitað tón­list­ar­lands­lagi alheims­ins og gaman að velta því fyrir sér að á meðan Master of Puppets er þriðja sölu­hæsta plata Metallica, 14.000.000 ein­tök seld á heims­vísu, er sú svarta kyrfi­lega á toppnum seld í 31.000.000 ein­taka. Til sam­an­burðar hefur Megadeth selt um 38 millj­ónir af plöt­unum sínum sam­an­lagt, Slayer milli 15 og 20 og Anthrax minna. Metallica sam­an­lagt? 121 milljón! Annar áhuga­verður sam­an­burður fyrir nörda er að plöt­urnar Load og Ride the Lightn­ing hafa selst álíka mikið. Og einnig að hin arfa­slaka Reload hefur selst meira en sjálf Kill 'Em All!

...And Justice for All er fyrsta mísstígið

Næst­sölu­hæsta plata Metallica er ...And Justice for All, 15.000.000 ein­tök seld. Og eftir á að hyggja var það þar sem bandið byrj­aði að hnigna.

Justice var lengi upp­á­halds­platan mín og er að sumu leyti enn. En hún er fyrsta mis­stígið, eftir fyrsta áfallið. Á tón­leika­ferð um Evrópu við eft­ir­fylgni Master of Puppets lést bassa­leik­ar­inn Cliff Burton í rútu­slysi. Nóg hefur verið ritað um Cliff, líf hans og örlög, og óþarfi fyrir mig að eyða net­plássi í það. Frekar bendi ég les­endum á hina stór­kost­legu bók To Live Is To Die: The Life & Death Of Metallica's Cliff Burton eftir félaga minn Joel McIver og hlað­varpið Dead Rock Stars sem hann heldur úti við annan mann og fjallar meðal ann­ars um Burton.

Eins og gefur að skilja var dauði hans gríð­ar­legt áfall fyrir þá eft­ir­lif­andi sem unnu ýmist illa eða ekki úr aðstæðum. Það síð­asta sem þeim datt í hug var að slaka á og eftir að hafa sjang­hæjað Jason Newsted til sín á bass­ann óðu þeir beint í að búa til nýja plötu. Og sú plata er ofboðs­leg. Hún er alveg gríð­ar­lega góð. Sem sagt alveg fram­úr­skar­andi stór­kost­leg. En hún er ekki galla­laus. Fyrir það fyrsta hljómar hún mjög und­ar­lega. Hún er hrein­lega illa mixuð og þá helst fyrir þær sakir að bass­inn heyr­ist sama og ekki neitt.

Gít­ar­hljóm­ur­inn er á móti afar þrút­inn, hlut­irnir almennt á skjön og allt þetta má skrifa á þá félaga Ulrich og Hetfield sem voru allt í öllu, vinnu­þreyttir og mögu­lega haldnir mik­il­mennsku­brjál­æði. Þeir vildu heyra meira í sér og minna í hinum. Ég vil þó árétta einu sinni enn að platan er meist­ara­verk þrátt fyrir allt þetta sem segir ýmis­legt um gæði tón­list­ar­innar, og ég set hana hik­laust í annað sæti á heild­ar­lista yfir plötur Metallica. En, þetta er fyrsti feill­inn á ferl­inum og fram­hjá því vil ég ekki líta. Til við­bótar bendir ýmis­legt til þess að sumar ákvarð­anir hafi verið teknar í óvissu. Senni­lega hefur efinn ekki verið nema í hæsta lagi 3% en það er nóg. Allt fram af því hafði verið fram­kvæmt af 103% öryggi.

Muniði þegar DV var ekki mannskemmandi sorp?

Þegar við vorum að byrja í hljóm­sveit í skúrnum á Húsavík keyptum við hljóð­færin okkar ýmist glæný í Tóna­búð­inni á Akureyri eða notuð af þeim sem vildu selja. Þá komu smá­aug­lýs­ingar DV sterkar inn. Þar í gegn keypti ég fyrsta gít­armagnar­ann minn, agn­arsmáan Carlsbro sem ég á enn ásamt alls­konar öðru góð­gæti og það sama átti við um félaga mína. Aggi keypti Adam-trommu­settið sitt auð­vitað nýtt, for­rétt­indapés­inn sem hann var, en fann hins­vegar annað skemmti­legt í smá­aug­lýs­ing­unum. Nótna­bækur Metallica fyrir gítar, fyrstu fjórar plöt­urnar. Og hann keypti.

„Nótna-“ er reyndar ekki alveg rétt því þetta voru svo­kall­aðar tab-bækur þar sem tón­list er skrifuð niður eftir hinu verka­mann­svæna Tablat­ure-kerfi. Senni­lega voru nú nótur þarna líka til mála­mynda en við staut­uðum okkur miklu hraðar fram úr tabinu. Reyndar er líka ofsagt að þetta hafi verið bækur því það sem kom upp úr pakk­anum var mappa með ljós­rit­uðum sjó­ræn­ingja­út­gáfum af bók­unum. Ég man að blöðin voru samt ljós­grá og renni­slétt, miklu meira fansí en ljós­rit­un­ar­papp­ír­inn sem maður fékk í skól­anum. Ætli ein­hver muni eftir að hafa selt þetta norður í land snemma á tíunda ára­tugnum? Það væri gaman að heyra frá við­kom­andi og hvar hann eða hún komst í svona fal­legan pappír. Okkur fannst heil­mikið til þessa koma og þarna opn­að­ist heim­ur­inn. Við spændum lögin í okkur, sátum með gít­ar­ana og lásum í gegnum þessi ógur­legu riff sem við þekktum svo vel.

Og allt í einu fór þetta að meika sens. Þarna skildi ég í fyrsta skipti hversu miklu hljóð­færið stjórnar þegar tón­list verður til. Ég sá nákvæm­lega hvernig þeir höfðu samið ákveð­inn part og síðan leiðst yfir í þann næsta gagn­gert vegna þess að það var lógísk handa­hreyf­ing. Þannig bráði heil­ag­leik­inn af tón­list­inni og hún opn­að­ist. Kannski var þetta ekki svona flókið. Kannski voru tón­smíðar ekki ljóð­rænn sann­leikur aðeins á færi þeirra sem höfðu með­fædda snilli­gáfu. Það sem ég tók með mér var ekki hljóð­færafimi eða rokk­stjörnu­draumar. Það sem ég saug í mig var verk­fræðin. Hvernig kafl­arnir voru smíð­aðir og hvernig þeir tengd­ust hver við annan, blönd­uð­ust, þró­uð­ust og breytt­ust. Hvernig flókið var látið hljóma ein­falt, hvernig snúið var upp á hlut­ina og þeir bundnir í alls­herj­ar­flækju sem síðan leyst­ist aftur að því virt­ist af sjálfu sér en samt svo alls ekki. Endalaus snilld! En snilldin var mest á Puppets. Og snilldin er mest á Puppets. Og þess vegna er hún best. Ég var hooked og verð til ævi­loka.

Trujillo, bassaleikarinn sem gerði hið ómögulega

Titillag plöt­unnar er mest spil­aða tón­leika­lag Metallica frá upp­hafi og varla líður gigg hvar það heyr­ist ekki. Tvö lög til við­bótar heyr­ast mjög reglu­lega, Welcome Home (Sanit­arium) sem er slakasta lag plöt­unnar og opn­un­ar­lagið Battery sem senni­lega er besta lag Metallica fyrr og síðar. Önnur heyr­ast minna en þó er það mis­jafnt milli ára. Lengi vel var Orion, meist­ara­verkið sem Burton átti stærstan þátt í að semja og bass­inn spilar risa­hlut­verk í, álitið ósnert­an­legt. Lag sem með­limir Metallica sjá í sér­stöku ljósi, líkt og sjá má í þessum stutta við­tals­stubbi:

Í seinni tíð hefur hinn ógur­legi bassamaður Robert Trujillo sem gekk til liðs við teymið árið 2003 ráð­ist í það stór­virki að spila lagið og það með miklum bravúr. Ekki að það sé tækni­lega óleys­an­legt þótt krefj­andi sé, heldur var verk­efnið helst að nálg­ast þennan heilaga sálm af að því er virt­ist óyf­ir­stíg­an­legri virð­ingu.

Með þessu afreki Trujillo má segja að ekk­ert lag af plöt­unni sé utan færis á tón­leikum. Ég er reyndar á því að ef þeir hefðu ekki fundið Trujillo væri Metallica ekki að fylla leik­vanga í dag en það er önnur saga og lengri.

Ég hef fylgt Metallica þétt eftir í gegnum árin og hlustað gaum­gæfi­lega á allar plöt­urnar þeirra. Allt sem gerð­ist eftir svörtu plöt­una er misslæmt, sumt er afleitt og ekk­ert er gott. Eftir átta ára útgáfu­hlé sendu þeir þó frá sér hina marg­um­töl­uðu Hardwired... to Self-Destruct árið 2016 sem er lang­sam­lega besta verk þeirra í 25 ár. Í sjálfu sér má segja að platan bæti litlu sem engu við þótt hún sé ljóm­andi fín en þó má ekki gleyma því að vel­gengni og vel heppnuð útgáfa á borð við þessa gefur byr í seglin. Það er gaman á tón­leikum með Metallica og auð­vitað skemmta menn sér betur þegar þeir finna að þeir eru ennþá með­ð­etta en ekki bara á vegum fornrar frægðar.

Og að síð­ustu: Fólk sem fall­beygir og seg­ist hlusta á „Metallicu“ hefur rangt fyrir sér. Þetta er bannað.

Ég hvet ykkur öll til að hlusta á þetta meist­ara­verk í heild. Hér er mín skoðun en ég skal glaður rök­ræða hana: Master of Puppets er besta platan með Metallica.

Laga­listi:

01 – Battery

02 – Master of Puppets

03 – The Thing That Should Not Be

04 – Welcome Home (Sanit­arium)

05 – Disposa­ble Heroes

06 – Leper Messiah

07 – Orion

08 – Damage, Inc.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

list

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár