Dagatalið mitt

Ásta Júlía Hreins­dóttir safnar fyrir útgáfu­kostn­aði fyrir Daga­talið mitt, sem er fjöl­nota afmæl­is­daga­tal með texta og myndum eftir hana.

Ásta Júlía Hreins­dóttir er leik- og grunn­skóla­kenn­ari og stofn­andi ÁJ hönn­unar. Hún hefur alla tíð haft mik­inn áhuga á mynd­list og alltaf teiknað mikið og málað. Nú er ÁJ hönnun að gefa út Daga­talið mitt sem er fjöl­nota afmæl­is­daga­tal með texta og myndum eftir Ástu Júlíu. Safnað er fyrir útgáfu­kostn­aði á Karolina Fund.
Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Fyrir tveimur árum var ég að byggja mig upp og styrkja mig og ákvað að skrifa niður eins margar upp­byggj­andi setn­ingar og ég gæti. Það urðu ansi margar setn­ingar og ég fór að hugsa hvort ég gæti ekki gert eitt­hvað við þær. Ég fór að mála myndir við text­ana og gefa þær, sumar á ensku og aðrar á íslensku.

[adspot]Góð kona spurði mig af hverju ég gæfi þetta ekki út í bók og ég fór að hugsa um það. Ég hélt áfram að skrifa niður setn­ingar sem komu í huga minn og mynd­skreyta þær, sumar voru upp­byggj­andi, aðrar örsögur og enn aðrar áminn­ingar.

Allt í einu voru setn­ing­arnar orðnar nærri 200. Ég var enn að hugsa um það hvort ég ætti að gera eitt­hvað meira við mynd­irnar og einn dag­inn þegar ég var að reyna að skrifa nafn á nýfæddu barni inn á mán­að­ar­dag­inn minn, kom hug­myndin að Daga­tal­inu mínu. Hún var fljót að þró­ast í það sem varð og nú er Daga­talið mitt að verða að veru­leika.“

Hvað hefur hvatt þig áfram?

„Það hefur hvatt mig áfram að þetta var svo skemmti­leg vinna og það voru svo margir áhuga­samir. Ég við­ur­kenni alveg að stundum var þetta erfitt og sér­stak­lega að hugsa upp hvernig ég ætti að mynd­skreyta hvern texta fyrir sig. Það end­aði þó með því að ég var komin með langt yfir 400 texta svo þetta var ekk­ert mál því ég gat valið úr.

Það var mér líka hvatn­ing að þegar ég var langt komin við að mála mynd­irnar sagði góður maður við mig: „Ásta Júlía, þú verður að muna að þeir sem kaupa Daga­talið mitt munu kaupa 366 lítil lista­verk.“
Hvað er sér­stakt við þetta daga­tal?

„Daga­talið mitt er ekki bundið daga­tal með ákveðnu ári eða viku­dögum heldur er það fjöl­nota. Hver síða er til­einkuð einum degi á árinu og þar eru örsögur úr hvers­deg­inum eða upp­byggj­andi orð og síðan er mynd­skreytt af mér í takt við text­ann. Þannig fær hver dagur árs­ins sinn sess með sínum orðum og sinni mynd þar sem orð og mynd fá jafnt vægi. Einnig er á hverjum degi reitur þar sem eig­and­inn getur gert sitt daga­tal per­sónu­legt með því að skrá inn nöfn og fæð­ing­arár afmæl­is­barna dags­ins.

Þetta er góð gjafa­vara allt árið um kring, ár eftir ár og hægt að opna það hvenær sem er, hvaða ár sem er. Daga­talið mitt er fyrir fólk á öllum aldri, á öllu land­inu, sem hefur áhuga á að hafa upp­byggj­andi orð með skemmti­legum myndum í kring um sig.

Það er vin­sælt að hafa hluti með fal­legum eða upp­byggj­andi orðum í umhverfi sínu. Daga­talið mitt er einmitt þannig en einnig daga­tal sem eig­and­inn getur gert per­sónu­legt og nýtt það svo ár eftir ár.“

Hér er hægt að skoða og taka þátt í verk­efn­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár