„Kynþokki er allavega og við ættum ekki að vera hræddar við að sýna hann“

Edda Falak safnar nú fyrir bók sem ber nafnið „Women Empowerment“ á Karolina Fund.

Women Empowerment – bók eftir Eddu Falak
Women Empowerment – bók eftir Eddu Falak Mynd: Aðsend mynd

Edda Falak er 29 ára íþrótta­kona, sem heldur uppi hlað­varp­inu Eigin konur. Hún hefur varið miklum tíma síð­ast­liðin ár í að vald­efla konur í gegnum Instagram og hlað­varpið sitt. Edda hefur fengið 40 íslenskar konur til þess að taka þátt í verk­efn­inu með sér.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Hug­myndin af bók­inni fékk ég út frá umræðu sem ég setti af stað á Instagram. Þar deildi ég skoðun minni á af hverju konur gætu ekki birt af sér kyn­þokka­fulla mynd án þess að vera kall­aðar athygl­is­sjúkar druslur. Yfir fimm hund­ruð manns birtu myndir af sér fáklæddum á Instagram eftir að ég steig fram með þessa umræðu og sýnir það hversu mikil þörf er á þess­ari umræðu.“

[adspot]

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins

„Bókin mun inni­halda 40 myndir af íslenskum konum ásamt fræðslu­efni um lík­ams­í­mynd kvenna. Konurnar verða ljós­mynd­aðar á nær­föt­unum og eru kon­urnar af öllum stærðum og gerðum. Þær eru meðal ann­ars með stóma poka, óléttar, hafa misst útlim, nýbúnar að eign­ast börn, grann­vaxnar, konur í góðum holdum og sterk­byggðar konur.

Markmið bók­ar­innar er að sýna að kyn­þokki er alla­vega og við ættum ekki að vera hræddar við að sýna hann eða hrein­lega við það að vera kyn­þokka­fullar, það gerir okkur ekk­ert minna klárar eða minna sterkar. Sjálf er ég með masters­gráðu í fjár­málum og vil ég að kon­urnar í bók­inni sýni það að þú getur verið frama­kona og samt birt kyn­þokka­fulla mynd af þér. Fjöldi þeirra sem tóku þátt í þess­ari umræðu með mér á Instagram sýnir fram á gíf­ur­lega þörf fyrir fræðslu á þessu mál­efni.

Notkun inter­nets­ins fer sífellt vax­andi meðal ung­menna og pressan á útliti virð­ist vera mikil. Sam­fé­lags­miðlar og fjöl­miðlar stuðla oft að óheil­brigðri lík­ams­í­mynd með því meðal ann­ars að sýna að lang­mestu leyti konur sem eru grennri heldur en eðli­legt þykir og sýna ein­stak­linga í yfir­vigt í nei­kvæðu ljósi jafn­vel þannig að þeir virð­ast mis­heppn­aðir og eigi til að mynda erfitt með róm­an­tísk sam­skipti. Ég vil að þessi bók fræði meðal ann­ars ung­menni og varpi ljósi á hvað sé eðli­legt og að allt sé fal­legt. Þar sem feg­urð­ar­stað­all­inn virð­ist sífellt verða óljós­ari og lúm­sk­ari, fara konur ómeð­vitað að miða sig við þessa óraun­hæfu staðla. Bókin á að sýna að engin er með eins lík­ama og það skiptir máli að læra að elska hann í því formi sem hann er.“

Hægt er að styðja verk­efnið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár