Hágæða íslenskir grænkera ostar framleiddir með jarðvarma í Hveragerði

Erlendur Eiríks­son mat­reiðslu­meist­ari safnar á Karolina Fund fyrir hús­næði undir vist­væna fram­leiðslu á græn­kera ostum með jarð­varma í Hvera­gerði. Sérstaða fram­leiðsl­unnar felst meðal ann­ars í ostum sem búnir eru til úr kart­öflum.

Erlendur Eiríks­son er mennt­aður mat­reiðslu­meist­ari frá Hótel- og Veit­inga­skóla Íslands, leik­ari frá Arts Educational Schools í London og með meistara­gráðu í lög­fræði frá Háskól­anum á Bifröst. Erlendur hefur starfað á fjölda veit­inga­húsa bæði sem stjórn­andi og mat­reiðslu­maður hér á landi og erlendis. Séð um kennslu í mat­reiðslu hjá Salt eld­húsi og tekur reglu­lega nám­skeið til að við­halda fersk­leika og frum­sköpun. Hann starf­aði sem yfir­mat­reiðslu­meist­ari og fram­leiðslu­stjóri skyr­gerðar hjá Skyr­gerð­inni í Hvera­gerði í um þrjú ár. Erlendur hefur einnig komið að upp­setn­ingum af verkum leik­listar hóps­ins Vest­ur­ports, unnið í kvik­myndum, sjón­varpi, hljóð­varpi og á sviði sem leik­ari. Nú safnar hann fyrir því á Karolina Fund að geta komið vist­vænni fram­leiðslu á hágæða íslenskum græn­kera ostum með jarð­varma á kopp­inn í atvinnu­hús­næði í Hvera­gerði.

Erlendur segir hug­mynd­ina að því að prófa þessa leið hafa sprottið upp úr því að hann og sam­starfs­að­ilar hans hafi verið að leita að atvinnu­hús­næði sem hent­aði undir osta­gerð­ina. „Við hjónin vorum að selja íbúð sem við áttum hlut í og ákváðum að nota fjár­magnið til þess að kaupa atvinnu­hús­næði. Þegar við fórum að skoða komu nokkur hús­næði til greina en staðan breytt­ist hratt þegar við sáum hús­næðið okkar. Fram­tíð­ar­hús­næði fyrir osta­gerð­ina. Við fórum að hugsa leiðir til þess að ná að fjár­magna það hús­næði og af hverju ekki að nýta okkur hóp­fjár­mögnun? Eig­in­kona mín og fram­kvæmda­stjóri Livefood ehf, hún Fjóla Ein­ars­dóttir, fór strax í málið og innan tveggja daga var síðan komin í loftið. Í því ferli var magnað hversu mik­ill stuðn­ingur og hvatn­ing kom frá starfs­mönnum Karolina Fund.“

[adspot]Markmið verk­efn­is­ins er skýrt: að kaupa atvinnu­hús­næði í Hvera­gerði til að fram­leiða hágæða inn­lenda osta úr plöntu­af­urðum, jarð­epla- og hafra­mjólkur osta ásamt mjúkum hvít- og blámyglu­ostum. „Við ákváðum í upp­hafi að fram­leiðslan yrði að vera í Hvera­gerði þar sem við viljum nota jarð­varma við fram­leiðsl­una. Hvera­gerði hefur verið okkar heima­bær sein­ustu sex ár og í okkar augum besti staður ver­aldar. Við fram­leiðsl­una munum við nota íslenskt hrá­efni upp að því marki sem hægt er og lág­marka kolefn­is­spor með því að nota þessa dásam­legu vist­vænu orku. Við munum að auki nota íslenskar krydd­jurtir, fjalla­grös og reykað­ferðir for­feðra okkar við osta­gerð­ina og skapa þannig sér­stöðu á ört vax­andi mat­væla mark­aði fyrir græn­kera. Við leggjum áherslu á að nota vörur sem eru líf­rænt rækt­aðar, hollar og beint frá býli. Við viljum einnig styðja við fram­leið­endur í okkar nærum­hverfi í anda sókn­ar­á­ætl­unar Suð­ur­lands.“

Sérstaka fram­leiðsl­unnar verða kart­öflu­ostar. „Þá osta er ég búinn að þróa í þó nokkuð langan tíma þar sem áherslan var lögð á að geta fram­leitt plöntu­ost úr íslensku hrá­efni í heima­byggð. Þessir ostar eru í grunn­inn fram­leiddir úr íslenskum kart­öflum og unnir með mjólk sem við fram­leiðum úr íslenskum höfrum. Breyti­legt er hvað við setjum í þessa osta þar sem not­aðar eru árs­tíða­bundnar vörur til að gera sem skemmti­leg­ustu brögð hverju sinni. Þrátt fyrir að þró­un­ar­ferlið og upp­bygg­ing nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækis okkar hafi tekið tíma og alla okkar auka orku þá erum við svo hrika­leg stolt af því að vera loks­ins komin á þann stað að fjár­festa í atvinnu­hús­næði og sjáum ljósið í enda gang­anna.“

Staðan á mark­aði hér á landi er sú að ekki er fram­leiðsla á þess­ari vöru hér inn­an­lands, þ.e. plöntu­ostum þar sem uppi­staðan eru kart­öflur og hafra­mjólk, og skapar það sína sér­stöðu. „Það er því mik­il­vægt að hefja fram­leiðslu hér á landi eins fljótt og auðið er. Grænkera mat­ar­gerð fer hratt vax­andi út um allan heim og mun halda áfram að þró­ast á ógn­ar­hraða. Áhugi og þörf á að geta sinnt ört stækk­andi mark­aði með afurðir úr plöntu­rík­inu er brýn og hefur verk­efna­stjóri verk­efn­is­ins orðið var við þá þróun í gegnum starf sitt í atvinnu­eld­húsum lands­ins. Grænkera osta­gerð er ný hér á landi en hefur tekið mikið stökk í lönd­unum í kringum okkur. Samkvæmt mark­aðs­rann­sóknum var Evrópa með mestu mark­aðs­hlut­deild­ina eða 43%. Búist er við að heims­mark­að­ur­inn fyrir græn­kera osta muni ná mark­aðsvirði 3,9 millj­arða doll­ara í lok árs 2024, sam­an­borið við 2,1 millj­arð doll­ara árið 2016 Inn­flutn­ingur á græn­kera ostum er alger og því kalli ætlar Livefood að svara. Við Íslend­ingar höfum alla burði til þess að vera leið­andi á þessu sviði. Með því að fram­leiða vöru, fyrir þann markað sem ekki vill eða getur notað hefð­bundna osta, náum við að stuðla að breið­ari og fjöl­breytt­ara vöru­úr­vali fyrir alla. Með það að mark­miði að fram­leiða úr íslensku hrá­efni og að stuðla að sem minnsta kolefn­is­fótspori erum við að bæta allt okkar umhverfi. Að auki með því að fram­leiða hágæða vöru með áherslu á það hug­vit og vinnu­fram­lag sem er til staðar hér í okkar nærum­hverfi á Suð­ur­landi mun þetta verk­efni verða lyfti­stöng og atvinnu­skap­andi, til lengri tíma.

Erlendur bendir á að græn­ker­a­fæði njóti nú sívax­andi vin­sælda, sér­stak­lega á meðal yngri kyn­slóða. „Fyrir því eru meðal ann­ars eft­ir­far­andi ástæður: Í fyrsta lagi hefur fólk ein­lægan áhuga á því að minnka kolefn­is­spor sitt og vist­spor almennt. Með því að nýta betur inn­lenda fram­leiðslu og skapa úr henni verð­mæti er dregið úr orku­frekum milli­landa­flutn­ingum á hrá­efni. Með því að nýta inn­lent hrá­efni má að auki sleppa við inn­flutn­ing á algengum hrá­efnum til fram­leiðslu græn­ker­a­fæðis. Í öðru lagi hafa stofn­anir eins og Sam­ein­uðu þjóð­irnar og aðrar þrýst mjög á um sjálf­bæra þróun í heim­inum og að við eigum að skila plánet­unni til næstu kyn­slóða í jafn­góðu eða betra ásig­komu­lagi en við tókum við henni. Mikið er í húfi og teljum við að verk­efni okkar stuðli tví­mæla­laust að slíkri þróun. Í þriðja lagi viljum við auka val­frelsi neyt­and­ans. Íslend­ingar hafa sýnt það og sannað að þeir taka feg­ins hendi við auknu úrvali.

Hér er hægt að taka þátt í söfn­un­inni og versla sér græn­kera osta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár