„Ekkert of mikið útsett og aldrei að vita hvað gerist í augnablikinu“

Marína Ósk safnar nú á Karolina Fund fyrir nýrri plötu. „Ég er í raun að þreyta frumraun mína í jazzlagasmíðum og er afar spennt að kynna þá tón­list fyrir heim­inum,“ segir hún.

Marína Ósk
Marína Ósk Mynd: Aðsend mynd

Söng­konan og laga­höf­und­ur­inn Marína Ósk er fædd og upp­alin í Keflavík. Hún hefur síð­ustu ár hreiðrað um sig á jazzsenunni á Íslandi og verið tíður tón­leika­hald­ari á helstu jazztónleikastöðum lands­ins, svo sem Jazzhátíð Reykja­víkur, Jazzhátíð Garða­bæjar, Sumarjazzi á Jóm­frúnni og Múlanum Jazzklúbbi.

Árið 2019 gaf hún út sína fyrstu sóló­plötu, Athvarf, og hlaut fyrir hana tvær til­nefn­ingar til Íslensku tón­list­ar­verð­laun­anna 2020. Hún gefur nú út aðra sóló­plötu sína, sem að þessu sinni verður hrein­ræktuð, gam­al­dags jazzplata með heima­bök­uðum jazzlögum eftir Marínu sjálfa.

Platan kemur út í ágúst 2022 og verður hún gefin út á vínyl og geisla­disk. Á Karolina Fund safnar Marína Ósk fyrir fram­leiðsl­unni á snert­an­legum ein­tökum plöt­unnar og býður þar upp á alls kyns val­mögu­leika fyrir þá sem vilja styrkja útgáf­una, til dæmis söng­tíma, stofu­tón­leika og svokölluð *ein­stök ein­tök* af vínyl-plötum. Platan kemur út hjá sænska plötu­fyr­ir­tæk­inu TengTo­nes og verða útgáfu­tón­leikar haldnir á Jazzhátíð Reykja­víkur 2022 í Hörpu.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Ég hef ein­beitt mér að jazzinum síð­ustu ár og á náms­árum mínum í Amster­dam og í Stokk­hólmi byrj­aði ég að hlusta rosa­lega mikið á gamlan jazz frá 50’s og 60’s tíma­bilum síð­ustu aldar. Þar fann ég tón­list sem átti rosa­lega vel við mig og eftir mikla hlustun, grúsk og stúd­er­ingar fór ég á flug í laga­smíðum.

Ég byrj­aði að semja lög í sama stíl og þessi gömlu jazzlög sem ég var að hlusta á, svipuð lög­unum sem Frank Sinatra og Ella Fitzgerald sungu, og úr varð þessi plata, One Evening in July. Hún mun inni­halda 8 lög, 7 nýbökuð og eina ábreiðu af lagi sem hefur fylgt mér lengi sem jazzsöngkonu. Tón­listin er hlý­leg, róm­an­tísk og dálítið gam­al­dags hljóm­andi. Ég ákvað strax að gefa plöt­una út á föstu formi en ég bók­staf­lega elska vínyl-plötur og finnst afar nota­legt að setja plötu á fón­inn, hlusta á brakið og brest­ina og þessa hlý­legu nálægð við upp­tök­una og lista­mann­inn, það er alveg ein­stakt,“ segir hún.

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins

„Ég er í raun að þreyta frumraun mína í jazzlagasmíðum og er afar spennt að kynna þá tón­list fyrir heim­inum. Þar sem tón­listin er gam­al­dags í eðli sínu, þó að hún beri með sér nútíma­lega nálgun, þá fannst mér til­valið að hafa upp­tök­urnar og útsetn­ing­arnar dálítið gam­al­dags líka; taka upp „live“ og leyfa þessu dálítið að ger­ast í hljóð­ver­inu. Bandið sem spilar á plöt­unni heitir Marína Ósk Kvartett og inni­heldur tvo dúetta; ann­ars vegar mig og kærast­ann minn, gít­ar­leik­ar­ann Mikael Mána Ásmunds­son og hins­vegar sænsku jazzbræðurna frá Uppsala, Johan og Erik Tengholm, en þeir leika á kontra­bassa og trompet. Þessi hópur á það sam­eig­in­legt að elska þennan gamla, nota­lega jazz og að spila tón­list í þeim stíl.“

Marína Ósk seg­ist ekki hafa getað fengið betra fólk með sér. „Þeir eru æðis­legir þessi drengir. Við tókum upp í hljóð­veri í Stokk­hólmi og ákváðum að gera það „live”; allir í sama rými og allir taka upp á sama tíma. Ekkert of mikið útsett og aldrei að vita hvað ger­ist í augna­blik­inu. Hlusti maður á gamlar jazzplötur má heyra ýmis­legt sem eflaust væri klippt út í dag, svo sem lítil mis­tök hér og þar, brak í gólfi eða ræsk­ingar. Mér finnst þetta svo heill­andi að ég vildi gera það sama. Við gerðum því ekk­ert yfir­spil, engar stór­kost­legar klipp­ingar og leyfðum tón­list­inni dálítið að stjórna ferð­inni. Á plöt­unni fær hlust­and­inn því að heyra heilar tökur sem hljóma svo gott sem nákvæm­lega eins og þær hljóm­uðu þegar ýtt var á „rec“-takk­ann í hljóð­ver­inu.“

Hún segir að þar sem hún sé mik­ill vín­yl­plötu­að­dá­andi þá hafi henni fund­ist til­valið að gera eitt­hvað skemmti­legt í kringum það. „Í sam­ráði við plötu­fyr­ir­tækið mitt, TengTo­nes, ákváðum við að prenta ein­ungis 100 ein­tök af vínyl-plöt­unum og 150 ein­tök af geisla­diskum. Mér datt svo í hug að láta hluta vín­yls­ins verða að ein­hverju sér­stöku og þá kom hug­myndin um *ein­stök ein­tök* í koll­inn, en þau ein­tök verða bara 50 tals­ins og aðeins í boði í söfn­un­inni á Karolina­fund. Hvert ein­tak verður núm­erað og því mun fylgja eitt­hvað per­sónu­legt, beint frá mér til þess sem ein­takið kaupir. Ég hef haldið því leyndu hvað það verður og læt það bara koma á óvart, en get þó sagt að það verður fal­legt, ein­lægt og jafn­vel krútt­legt.“

Marína Ósk ákvað svo að hafa fleiri mögu­leika í boði fyrir þá sem eiga kannski ekki plötu­spil­ara en vilja taka þátt í að styðja við íslenska tón­list. „Sem dæmi er hægt að forp­anta plöt­una á geisla­disk, kaupa söng­tíma hjá mér á vina­prís, en ég elska að kenna, og svo eru einnig í boði stofu­tón­leikar með með­leik­ara. Svo má auð­vitað styðja við verk­efnið án snert­an­legra verð­launa og styrkja þannig útgáf­una.

Ég hlakka mikið til að koma þess­ari plötu út í heim­inn og vona að tón­listin rati í eyru þeirra sem myndu njóta hennar,“ segir hún að lokum.

Hægt er að styðja verk­efnið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár