Megintilgangurinn er að breiða út fegurð og fjölbreytni íslensku sauðkindarinnar

Ragnar Þor­steins­son sauð­fjár­bóndi í Sýrnesi í Aðaldal gefur nú út Lamba­daga­tal sitt í níunda sinn og segir meg­in­til­gang­inn þann „að breiða út sem víð­ast, feg­urð og fjöl­breytni íslensku sauð­kind­ar­innar.“

Ragnar Þorsteinsson sauðfjárbóndi gefur út Lambadagatal sitt í níunda sinn og fjármagnar útgáfuna á Karolina Fund.
Ragnar Þor­steins­son sauð­fjár­bóndi gefur út Lamba­daga­tal sitt í níunda sinn og fjár­magnar útgáf­una á Karolina Fund. Mynd: Aðsend

Lamba­daga­tal Ragnars Þor­steins­sonar sauð­fjár­bónda og ljós­mynd­ara í Sýrnesi í Aðaldal fyrir árið 2023 er komið út og er það í níunda sinn sem hann sendir frá sér sér­stakt lamba­daga­tal. Ragnar hefur veg og vanda að útgáfu lamba­dagtals­ins líkt og und­an­farin ár.

Hann tekur allar mynd­irnar á fjár­búi sínu í Sýrnesi og sér um umbrot og hönnun daga­tals­ins sem hefur verið fjár­magnað á Karolina­fund nú í sjö ár og fjár­mögnun þess alltaf tek­ist. Síðasti dagur fjár­mögn­unar á Lamba­daga­tal 2023 er 17. nóv­em­ber og nú vantar rétt herslumun­inn að það náist.

Samkvæmt venju eru ljós­mynd­irnar teknar á sauð­burði frá árinu áður þ.e.a.s. á Lamba­daga­tali 2023 eru allar mynd­irnar teknar sl. vor á sauð­burði 2022 og end­ur­spegla því líka veð­ur­farið á þeim árs­tíma.

Fallegt með þjóðlegum fróðleik

Að venju prýða daga­talið stórar myndir af fal­legum, marg­litum, unglömbum um eins til tveggja sól­ar­hringa gömlum lömbum úti í sínu nátt­úru­legu umhverfi. Daga­talið er í A4 stærð og hver mán­uður á einni blað­síðu. Það er gor­mað með upp­hengju og því auð­velt að hengja það upp þar sem hentar. Á það eru merktir allir hefð­bundnir helgi- og frí­dagar. Einnig eru merk­ingar fyrir fána­daga, komu jóla­svein­anna, gömlu mán­aða­heitin og ýmsir aðrir dagar sem tengj­ast sögu lands og þjóðar. Daga­talið er því ekki bara fal­legt og dregur fram bros, heldur líka gagn­legt með sínum þjóð­lega fróð­leik.

[adspot]

Finnur velvild í garð sauðfjárbænda

Lamba­daga­tölin hafa hlotið góðar við­tökur og vina­hópur Lamba­daga­tal­anna á Facebook telur nú rúm­lega 1.500 manns. Að sögn Ragnars þá er meg­in­til­gangur útgáf­unnar „að breiða út sem víð­ast, feg­urð og fjöl­breytni íslensku sauð­kind­ar­innar.“

„Það er líka mjög svo skemmti­legt og gef­andi að standa í þessu og finna þá miklu vel­vild sem er meðal fólks til okkar
sauð­fjár­bænda og íslensku sauð­kind­ar­innar sem hefur fætt okkur og klætt í gegnum ald­irnar, og að maður tali nú ekki um hve skap­gerðin og sterkur per­sónu­leiki sauð­kind­ar­innar og sjálf­stæði hennar, hefur smit­ast í gegnum ald­anna rás í genin okkar og gert okkur að þeirri þjóð sem við erum öll svo stolt af að til­heyra,“ segir Ragnar.

Hér er hægt að eign­ast daga­tal

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár