„Drollur níunnar“ og „bjagaðar minningar“ unglingsáranna

Snorri Helgason segir lög á nýrri plötu sinni fjalla um hug­ar­heim sinn á ung­lings­árum og „fíl­ing­inn að vera ung­lingur í kringum alda­mótin.“

Snorri Helgason
Snorri Helgason

Tón­list­ar­mað­ur­inn Snorri Helgason gefur út sína sjö­undu sóló­plötu sem ber heitið Víðihlíð. Lög af plöt­unni eins og Haustið '97, Ingileif og Hæ Stína hafa ómað á öldum ljós­vakans síð­ast­liðið ár og nú kemur platan loks út á vínyl og hóp­fjár­mögnun er í gangi á Karolina fund vegna þessa.

[adspot]

„Ég samdi slatta af lögum á frekar stuttu tíma­bili sem voru dálítið af sama meiði, þ.e. .au áttu það sam­eig­in­legt að fjalla um hug­ar­heim minn sem ung­lingur og fíl­ing­inn að vera ung­lingur í kringum alda­mótin,“ segir Snorri spurður um hvernig hug­myndin að lög­unum kvikn­aði. „Þetta voru svona nostal­gísk popp­lög sem ég átti allt í einu á lager. Ég ákvað að skipta þessum laga­bunka í tvennt og taka þau upp með tveimur mis­mun­andi upp­töku­stjórum og gera tvær EP plötur.“

Sú fyrri kom út staf­rænt í októ­ber í fyrra og stjórn­aði Guð­mundur Óskar Guð­munds­son upp­tökum á henni en sú seinni kom út nú í apríl og Daníel Friðrik Böðv­ars­son stýrði henni. Nú er svo komið að „físískri útgáfu“ á þessum tveimur EP-plötum sam­ein­uðum í eina stóra vín­yl­plötu.

„Lögin fjalla flest um ein­hvers konar bjag­aðar minn­ingar frá ung­lings­árum mínum,“ segir hann um tón­list­ina. „Lög eins og Ingileif sem fékk tölu­vert mikla útvarps­spilun síð­asta haust fjallar um ímynd­aða vin­sæl­ustu stelpuna í skól­anum sem ég mæti svo tutt­ugu árum seinna bug­aða og þrot­aða á Eiðis­torgi. Sömu­leiðis lagið Hæ Stína sem fjallar um fólk sem fór í leyni­legan sleik sem ung­lingar á Reykjum í Hrúta­firði en svo gerð­ist ekk­ert meira fyrr en þau hitt­ast aftur löngu seinna.“

Snorri leit­aði til hönn­uð­ar­ins Bobby Breið­holts varð­andi plötu­umslagið sem hann hef unnið með að síð­ustu útgáfum sínum. „Við fórum að „brain­storma“ hvað gæti hentað fyrir plötu sem er svona kyrfi­lega „plass­eruð“ í íslensku sam­fé­lagi um seinni hluta níunnar og strax eftir alda­mótin. Við fórum að hanga inn á tíma­rit.is og kasta milli okkar nostal­g­íu­boltum og fljót­lega kvikn­aði sú hug­mynd að vísa í plötu­umslög skosku hljóm­sveit­ar­innar Belle & Sebast­ian sem við hlust­uðum mikið á á þessum tíma.“

Umslög hennar eru yfir­leitt ljós­myndir af fólki í tví­lit. „Við fórum þá að máta þetta við okkar pæl­ingar og þá kom ekk­ert annað til greina en að fók­usera á nokkrar vel valdar 90’s/early 00’s drollur eins og Ingi­björgu Stefáns í Pís of Keik, Stein­unni Ólínu, Þóru Dungal í Blossa, Brynju X og Önnu Rakel,“ útskýrir Snorri.

Hér er hægt að taka þátt í söfn­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár