Landskunnur leikari gefur út ljóðaplötu

„Ljóðið hefur fylgt mér frá því ég var pjakkur fyrir norðan og allar götur síðan,“ segir Arnar Jónsson leik­ari, sem hefur und­an­farin ár safnað saman sínum upp­á­halds­ljóðum og hyggst nú gefa út eigin upp­lestur á þeim, bæði á vínyl og raf­rænt.

Arnar Jónsson leikari áformar að gefa út plötu með eigin upplestri á ljóðum úr ólíkum áttum, sem hann segist vilja veita framhaldslíf.
Arnar Jónsson leik­ari áformar að gefa út plötu með eigin upp­lestri á ljóðum úr ólíkum áttum, sem hann seg­ist vilja veita fram­halds­líf. Mynd: Aðsend

„Ljóð í upp­á­haldi“ er drauma­verk­efni Arnars Jóns­sonar leik­ara en hann hefur und­an­farin ár safnað saman sínum eft­ir­lætis ljóðum sem hann nú áætlar að gefa út bæði á vínyl en einnig á staf­rænu formi fyrir þau sem eru búin að týna plötu­spil­ar­anum eða vilja hlusta í bílnum eða uppi í rúmi.

Hann hefur fengið til liðs við sig úrvals­hóp til að láta þennan draum sinn ræt­ast og hefur hafið söfnun fyrir kostn­aði við útgáfu á þessu verki á Karolina Fund.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Ljóðið hefur fylgt mér frá því ég var pjakkur fyrir norðan og allar götur síðan. Í barna­skól­anum á Akureyri voru „Skóla­ljóðin“ lesin og lærð, og auð­vitað var það örvun að fá þar verð­laun fyrir að læra ljóð. Í mennta­skóla tókum við okkur nokkur saman og stofn­uðum ljóða­klúbb og þá var áhug­inn vak­inn fyrir alvöru. Fljót­lega eftir að ég kom til Reykja­víkur fór ég að flytja ljóð opin­ber­lega við hin ýmsu tæki­færi, m.a. í útvarpi, á opin­berum sam­komum, við jarð­ar­farir og einnig unnið tölu­vert með tón­list­ar­fólki.

[adspot]

Fyrir ekki svo löngu laust þeirri hugsun niður að gaman væri að kinka kolli til minna fjöl­mörgu góðra og geng­inna fyr­ir­mynda eða „mentora“ í ljóða­lestri með því að gefa út vín­yl­plötu með safni ljóða úr ólíkum áttum, sem mér vit­an­lega hefur ekki verið gert um langt skeið,“ segir Arnar.

Hann segir verkið vera safn ljóða úr ólíkum áttum, spurður um hvort eitt­hvað þema hafi verið ráð­andi við val ljóð­anna.

„Þar verða mörg þekkt ljóð íslenskrar bók­mennta­sögu, en einnig lítt þekkt­ari meist­ara­verk. Sum eru risa­stór og erfið, önnur aðeins fal­legt and­ar­tak. Því veit ég veit varla hvort hægt er að tala um sér­stakt „þema“, kannski helst að þessi ljóð hafa ómað í höfð­inu á mér í ára­tugi, önnur skemur, en þau hafa öll talað til mín, hvert með sínum hætti. Einnig má finna í bland nýleg ljóð sem hafa kallað á athygli mína.

Í skarkala nútím­ans á ljóðið undir högg að sækja en ég held að þess hljóð­láti og hóg­væri tónn geti náð athygli fólks og jafn­vel átt við það erindi, eitt ljóð fyrir svefn­inn væri öllum hollt! Alla tíð höfum við átt frá­bær ljóð­skáld og unga kyn­slóðin er þar engin eft­ir­bátur. Þannig vona ég að ástríðan fyrir því að útbreiða fagn­að­ar­er­indi ljóðs­ins falli í góðan og frjóan jarð­veg hjá sem flestum ald­urs­hópum. Mig langar að deila þeim með ykkur. Skila þeim af mér, ef svo má segja. Ég vil að þau eigi sér fram­halds­líf,“ segir Arnar.

Hér er hægt að styrkja verk­efnið og eign­ast ein­tak

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár