Styðjum Úkraínu!

Safnað er á Karolina Fund fyrir fjár­munum til að gera vef­síðu þar sem hægt er að styrkja ein­stak­linga og mál­efni að eigin vali í Úkraínu.

Soffía Reyn­is­dóttir er 53 ára, dóttir, móðir, systir, frænka. Hún hefur upp­lifað eitt og annað eins og gengur og ger­ist í líf­inu. Alin upp í sveit og á stóra fjöl­skyldu sem er sam­heldin. Hún á eina upp­komna dóttur sem hún hefur alið upp sem ein­stæð móðir. Hefur unnið ýmis störf í gegn um árin, stundum mörg störf til að eiga fyrir salt í graut­inn, stundum sem almennur starfs­maður og stundum sem yfir­maður á vinnu­stað. Allt eftir aðstæðum hverju sinni.

Hún er lærður nudd­ari, marg­miðl­un­ar­hönn­uður, versl­un­ar­stjóri, skúr­inga­kona, kokkur. Hún er harð­dug­leg og fylgin sér og klárar það sem hún tekur sér fyrir hendur nema kannski stöku lopa­peysu sem liggur hálf­prjónuð í stof­unni. Nú stendur hún fyrir söfnun á Karolina Fund til að hægt sé að koma vef­síðu í loftið þar sem hægt verður að styrkja ein­stak­linga og verk­efni í Úkraínu. Styrk­ur­inn á að fara beint til fyr­ir­tækja í Úkraínu og styrk­þegar sækja það sem þau þurfa til fyr­ir­tækja í sínu nærum­hverfi í Úkraínu.

Samtöl í Covid-19 veikindum

Hún segir hug­mynd­ina hafa vaknað í Covid-19 veik­inga­leyfi. „Það er þannig þegar maður liggur fyrir las­inn, haus­inn er nokkuð heill þó skrokk­ur­inn neiti að fara í vinn­una. Ég fór að hanga á net­inu og datt inn í að hlusta á fólk spjalla saman. Eftir að hafa gert það í nokkur skipti þá fer maður að setja inn ummæli og spurn­ingar, fær svör og það varð til sam­tal. Það sam­tal er orðið þannig að ég fylgist dag­lega með hvernig þeim gengur og hvað er að ger­ast.“

[adspot]Í gegnum þau sam­töl hefur opin­ber­ast að ein­hver í Úkraínu var að safna fyrir sér­stökum hjálm fyrir her­mann sem er með sprungnar hljóð­himnur, en hann er kom­inn aftur á fram­lín­una en kvelst þegar sprengj­urnar falla í kring um hann. Þá kynnt­ist hún Breta sem er að keyra bíl sem hann keypti til flytja búnað til her­manna í fram­lín­unni og til að flytja særða. „Hann keypti bíl­inn sjálfur og keyrir hann til þeirra og fer svo heim með lest. Við töl­uðum við hann þegar hann var í Kharkiv, sprengjur heyrð­ust falla í miðju sam­tali og sam­bandið rofn­aði. Við vissum ekki hvort það var í lagi með hann fyrr en dag­inn eftir. Ein stúlka vill aðstoða ein­stæða móður með 4 börn, hún hefur misst mann­inn sinn og allar sínar eigur. Börnin þurfa skóla­gögn og kannski ein­hver föt.“

Um þetta snú­ist sam­tölin sem Soffía á. „Stundum sendi ég þeim mynd af Eski­firði eða segi þeim frá eld­gos­inu. Þeim finnst það skemmti­legt og hafa áhuga á að vita hvað er að ger­ast hér til að leiða hug­ann frá stríð­inu. Ég sendi þeim myndir af snúð­unum sem ég baka á morgn­ana í vinn­unni og segi góðan dag­inn. Þeim þykir ekki síst vænt um að vita að fólki er umhugað um þau, hlustar og vill hjálpa. Það er mitt hlut­verk, að hlusta og ekki bara gera það sem mér finnst að þurfi heldur láta þau segja mér hvað þau þurfa.“

Vill að vefurinn verði að alþjóðlegu verkefni

Einhvern tíma í miðju sam­tali um fjöl­skyld­una með börnin, gerði Soffía til­raun til að kaupa skóla­gögn fyrir þau í vef­verslun sem starfar í Úkraínu. „Ég ætl­aði að versla, borga og láta þau svo sækja í versl­un­ar­mið­stöð í borg­inni sem þau búa í. Mér tókst ekki að gera þetta því greiðslan fór ekki í gegn en þá datt mér þetta í hug. Við þurfum að geta gert þetta, stutt mál­efni, ein­stak­linga eða fjöl­skyldur með því að eiga þessi við­skipti við fyr­ir­tæki sem starfa í Úkraínu. Ekki bara kaupa skóla­gögn hér á Íslandi, pakka þeim í kassa og senda með til­heyr­andi kostn­aði og óvissu um afhend­ingu. Mikið ein­fald­ara væri að kaupa skóla­gögnin bara þar og láta þau sækja dag­inn eftir og styðja þá um leið atvinnu­starf­semi í land­inu, skattar og virð­is­auki af við­skipt­unum renna til Úkraínu en ekki ein­hvers ann­ars lands. Þá þarf ég ekki að taka ákvörðun um að senda pen­inga til ókunn­ugs fólks sem ég er að kynn­ast í gegn um netið, því það gerir maður ekki. Annar vink­ill á þess­ari nálgun er svo líka blessuð umræðan um kolefn­is­sporið.“

Henni langar að vef­ur­inn sem hún vill koma á kopp­inn með söfn­un­inni á Karolina Fund verði að alþjóð­legu verk­efni. „Þetta á ekki bara við um Íslend­inga heldur fólk um allan heim sem vill hjálpa en veit ekki alltaf bestu leið­ina til að gera það. Það eru margar leiðir til að styrkja og hjálpa. Ótal mörg sam­tök sem eru að vinna mikið og gott starf en svo eru ein­stak­ling­arnir sem að ströggla við hver í sínu horni, sumir af veikum mætti með lítið milli hand­anna að safna fyrir ein­hverju fyrir ein­hvern sem þau þekkja. Ef þessi vefur gæti hjálpað þessu fólki að koma sínu mál­efni á fram­færi, hjálpa þeim að ná til þeirra sem vilja styrkja væri mik­ill ávinn­ingur af því.“

Hér er hægt að styrkja verk­efnið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár