„Þessi frábæra hugmynd hans Lalla lét mig bara aldrei í friði“

Lárus Haukur Jónsson hefur gengið með bók í mag­anum í mörg ár og loks hillir undir að hún komi út, með aðstoð vinar hans, Guðjóns Inga Eiríks­sonar, og mynd­skreytt af Haraldi Pét­urs­syni.

Guðjón og Lárus Haukur með eitt eintak af bókinni í fanginu.
Guðjón og Lárus Haukur með eitt ein­tak af bók­inni í fang­inu.

Jóla­svein­arnir í Esjunni eftir Lárus Hauk Jónsson og Guðjón Inga Eiríks­son er bók sem von­andi kemur út um næstu jól. Bókin byggir á ævin­týri sem Lárus Haukur, Lalli, skap­aði í huga sér fyrir mörgum árum en Guðjón Ingi Eiríks­son bætti við og færði í letur. Bókin er mynd­skreytt af lista­mann­inum Haraldi Pét­urs­syni. Safnað er nú fyrir útgáf­unni á Karolina Fund.

Lárus hefur síð­ustu ára­tugi glímt við MS-sjúk­dóm­inn, en hefur alltaf haldið áfram að gefa af sér og dreifa gleði, skrifa sögur og létta land­anum lund­ina. Hann var á sínum tíma mik­ill marka­hrókur í knatt­spyrnu og gat sér gott orð í Aft­ur­eld­ingu um ára­bil. Þá var hann einn af lyk­il­mönnum Leik­fé­lags Mos­fells­bæjar og hefur að auki margoft birst í auka­hlut­verkum í íslenskum kvik­myndum.

[adspot]

Hvernig hófst þetta sam­starf?

„Lalli er búinn að ganga með þessa bók í mag­anum í mörg ár og sagði mér frá henni á sínum tíma, senni­lega um 1995 eða ´96. Ég aðstoð­aði hann síðan við að koma hug­mynd­inni á blað þar sem við erum búnir að þekkj­ast lengi og erum góðir vinir,“ segir Guðjón. „Hann er örlítið fljót­ari en ég að vél­rita,“ bætir Lárus við og glottir.

Þess má geta að Lárus hafði ekki hug­mynd um að Guðjón væri að bauka við þetta á síð­asta ári, enda voru þá fjöl­mörg ár síðan að þeir fóru í þetta ferða­lag saman í hug­anum. „Þessi frá­bæra hug­mynd hans Lalla lét mig bara aldrei í friði og mér fannst að hún yrði að kom­ast á prent,“ segir Guðjón. „Nú stefnir í það að hún verði að bók og ég veit að margir munu hafa gaman af.“

Vinir Lalla úr fót­bolt­anum með Aft­ur­eld­ingu, sem kalla sig Bossa-blossa, hitt­ast alltaf hjá Lalla í kringum jólin og þeir ákváðu um síð­ustu jól að aðstoða við að safna fyrir útgáf­unni. „Bossa­blossar er að sjálf­sögðu nútíma íslenska fyrir Aft­ur­eld­ingu,“ útskýrir Guðjón.

Um hvað fjallar bókin svo?

„Bókin fjallar um Lalla, sem er nýkom­inn úr erf­iðum fót­bolta­leik og nennir ómögu­lega að fara með for­eldrum sínum og systur á Esjuna að honum loknum. Svona eins og krakkar eru oft með for­eldrum sínum. Hann var dauð­þreyttur, en argur og með sem­ingi fer hann samt með og þegar upp er staðið verður þetta ferð sem hann sér alls ekki eftir. Á Esjunni kynn­ist hann m.a. jóla­svein­unum og kemst að því að einn þeirra hefur mik­inn áhuga á fót­bolta. Hver skyldi það vera?“

Hver sjáið þið fyrir ykkur að sé les­enda­hóp­ur­inn?

„Lesenda- og hlust­enda­hóp­ur­inn eru drengir og stúlkur á aldr­inum 4-12 ára. Bókin er um 90 síður í stóru broti og með letri sem hentar vel fyrir börn sem eru að byrja að lesa, svo er hún skemmti­lega mynd­skreytt af Haraldi Pét­urs­syni. Hún höfðar til þeirra sem hafa gaman af fót­bolta, ævin­týrum og skemmti­legri atburða­rás. Annars geta að sjálf­sögðu allir lesið bók­ina, þetta er skemmti­leg lesn­ing,“ segja þeir félagar, Lalli og Guðjón.

Til að styrkja útgáfu þess­arar bókar og dreifa gleði og hug­mynda­heimi Lárusar Hauks er nú safnað fyrir útgáfu­kostn­aði á bók­inni JÓLASVEINARNIR Í

ESJUNNI á Karolina Fund en bókin fer í prentun á næstu vikum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár