Lilli Tígur í ævintýraleit á YouTube

Lilli Tígur vill lenda í fleiri ævin­týrum. Grettir Thor, 5 ára, og mamma hans safna fyrir fram­leiðslu á ævin­týra­legum, fræð­andi og lif­andi mynd­böndum fyrir börn á aldr­inum 2-6 ára.

Grettir fékk sköpunargleðina í vöggugjöf & hefur frá unga aldri samið sögur, sett upp leikrit & klætt sig upp sem hina ýmsu karaktera, sem oft er erfitt að ná honum úr.
Grettir fékk sköp­un­ar­gleð­ina í vöggu­gjöf & hefur frá unga aldri samið sögur, sett upp leik­rit & klætt sig upp sem hina ýmsu karakt­era, sem oft er erfitt að ná honum úr. Mynd: Aðsend

Lilli Tígur og vinir hans lenda í marg­vís­legum ævin­týrum á YouTube. Grettir Thor Árnason, fimm ára, og mamma hans, Þór­hildur Stef­áns­dóttir, safna nú fyrir fram­leiðslu á fleiri ævin­týrum Lilla Tígurs á Karolina Fund. Um er ræða barna­efni fyrir börn á aldr­inum 2-6 ára.

Þór­hildur er lærður vef- og menn­ing­ar­miðl­ari og hefur unnið við ýmsa miðlun m.a. hjá aug­lýs­inga­stofum, Háskóla Íslands og stofn­unum síð­ast­lið­inn ár. Grettir Thor 5 ára hefur frá því hann var lít­ill verið iðinn við að búa til sögur, setja upp ýmsar senur og leik­stýra fólki. Þau hafa nú þegar gefið út mynd­band sem sló í gegn hjá vinum og vanda­mönnum og rataði í fjöl­miðla.

Grettir hafði verið veikur heima í nokkra daga og farið að leið­ast þegar hann fékk þá hug­mynd að búa til mynd­band með dýrum í.

„Grettir hefur alltaf verið mikið fyrir dýr og veit til að mynda nöfnin á miklu fleiri dýrum en ég. Hann vissi þó að ég kynni betur á mynda­vél­ina og leit­aði því til mín með aðstoð við fram­leiðsl­una,“ segir Þór­hildur.

Stuttu síðar var hann búinn að stilla upp leik­mynd fyrir mynd­band um lítið tígris­dýr sem fékk nafnið Lilli Tígur. Í mynd­band­inu er Lilli Tígur á gangi með for­eldrum sínum þegar þau þurftu að fara yfir vatn með fullt af sjó­dýrum ofan í.

*ATH* Þau sem hafa ekki séð mynd­bandið ættu ekki að lesa lengra því í mynd­band­inu ger­ist sá harm­leikur að for­eldrar Lilla Tígurs deyja.

Þema verk­efn­is­ins er að leyfa Lilla Tígur að vera ævin­týra­gjörnum en á sama tíma reyna að stuðla að jákvæðum upp­lýs­ingum til áhorf­enda. Í mynd­bönd­unum verður fjallað um mhverf­is­mál, vin­áttu og ólíka menn­ing­ar­heima og munu þau höfða til 2-6 ára barna.

Nú hefur Lilli Tígur hug á að halda út í heim og lenda í fleiri ævin­týrum og hefur því verið sett upp söfnun fyrir fram­leiðslu á fleiri mynd­böndum af Lilla Tígur og vinum hans á www.karolinafund.is.

Þór­hildur og Grettir eru spennt að fram­leiða meira efni, en vilja gera enn betur.

Þau vilja fá fleiri raddir með, leita til sér­fræð­inga með aðstoð við hand­rits­gerð og frá­sögn og leggja mikla áherslu á að það sé íslenskt efni aðgengi­legt á Youtube fyrir börnin á Íslandi.

Hér má styrkja Lilla Tígur og vini hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár