Lestrar Flóðhestar eru fjölskylduverkefni

Lestrar Flóð­hestar eru ný spil fyrir börn sem eru að taka sín fyrstu skref í lestri. „Okkur fannst vanta eitt­hvað fjörugt og skemmti­legt í lestr­ar­úr­valið fyrir byrj­endur,“ segir Helga Árna­dóttir sem hannar og mynd­skreytir spilin.

Helga Árnadóttir hannar og myndskreytir Lestar Flóðhesta
Helga Árna­dóttir hannar og mynd­skreytir Lestar Flóð­hesta Mynd: Lestrar Flóðhestar/Karolina Fund

Helga Árna­dóttir er hönn­uður og mynd­skreytir Lestrar Flóð­hesta, nýrra spila fyrir börn sem eru að taka sín fyrstu skref í lestri. Spilin eru ekki venju­legt létt­lestr­ar­efni, heldur eru þau skemmti­leg og glað­leg spil fyrir alla fjöl­skyld­una. Safnað er fyrir útgáfu spil­anna á Karolina Fund.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

Spilin urðu til þegar við fjöl­skyldan vorum með heima­kennslu. Maðurinn minn, ég og börnin okkar þrjú höfum verið búsett í Danmörku síð­ustu ár. Við erum mikið fyrir að ferð­ast, gera eitt­hvað öðru­vísi og brjóta upp hvers­dags­leik­ann

Á síð­asta ári tókum við eitt ár í heima­kennslu og ferða­lög, meðal ann­ars til Íslands. Þarna var yngsta barnið okkar í 1. bekk að læra að lesa. Þegar hann var búinn að læra staf­ina, kom að sjálf­sögðu að því að byrja að lesa. Þá hins­vegar lentum við í smá ves­eni, því honum fannst svona ofboðs­lega leið­in­legt að lesa! Við reyndum að finna eitt­hvað áhuga­vert og skemmti­legt létt­lestr­ar­efni fyrir hann, en sáum að það var algjör vöntun á íslensku efni fyrir byrj­endur í lestri. Fátt var í boði annað en létt­lestr­ar­bækur með engum sögu­þræði.

[adspot]

Okkur fannst vanta eitt­hvað fjörugt og skemmti­legt í lestr­ar­úr­valið fyrir byrj­endur, svo ég bjó til orða­spil á litla miða sem vöktu mikla lukku og við tókum strax eftir fram­för í bæði lestr­ar­á­huga og færni hjá gutt­anum okkar. Það besta var að við vorum bara að spila saman fjöl­skyldan og eng­inn að hugsa um lær­dóm. Spilin urðu síðan ofur vin­sæl hjá öllum þeim sem spil­uðu með okkur, þannig að okkur lang­aði að gefa þau út, og leyfa fleiri krökkum að njóta.

Aðal­á­herslan hjá okkur er að spilin séu skemmti­leg, og börnin upp­lifi ekki að þau séu að læra. Okkur sýn­ist það hafa tek­ist mjög vel því spilin eru mikið spiluð þegar vinir eru í heim­sókn. Spilin eru fjöl­skyldu­verk­efni og börnin okkar eiga stóran part í því, þau hafa verið með í öllu ferl­inu. Svo er ég alveg vand­ræða­lega tækni­heft á mörgum sviðum og þá er gott að eiga mann sem er hug­bún­að­ar­sér­fræð­ingur og sér um allt tengt tækn­inni, og virð­ist hafa enda­lausa þol­in­mæði fyrir kon­unni sinni sem er stundum eins og hún sé frá stein­öld.

Spilin eru tvö. Það er Lestrar Flóð­hestar Lottó - minn­is­spil sem er fyrir 4 ára og eldri. Í því eru nokkrar útgáfur af sam­stæðu spilum sem sam­an­standa af orða­spilum og mynda­spilum og þau er hægt að spila á marga vegu. Svo er það Lestrar Flóð­hestar Sláðu slag­inn sem er fyrir 6 ára og eldri. Það er aðeins meira hraða­spil sem gengur út á að safna sem flestum spilum, og er mjög fjörugt og skemmti­legt. Spilin eru fram­leidd á Íslandi og svans­merkt.

Við erum að fjár­magna smá hluta af fram­leiðsl­unni á Karolina Fund og þar er hægt að kaupa spilið áður en það kemur í búðir, á aðeins lægra verði. Einnig er hægt að fylgj­ast með Lestrar Flóð­hestum á Facebook, Instagram og www.lestrarflodhestar.is. Við erum afskap­lega þakk­lát fyrir hvert ein­asta fram­lag og okkar von er að aðrar fjöl­skyldur og börn eigi eftir að skemmta sér og læra smá í leið­inni.

Hér er hægt að nálg­ast spilin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár